Hmmmmm

31 júlí, 2002

Í dag er miðvikudagur fyrir verslunarmannahelgi, og aldrei þessu vant stend ég frammi fyrir því að þessi mesta ferðahelgi ársins er óplönuð hjá mér. Það er reyndar sérstakt, en það sem ég áttaði mig á að er líka dálítið sérstakt, er að langflestir vinir mínir eru í sömu sporum, helgin óráðin. Nú eru vinir mínir eins og ég yfir línuna afskaplega aktivt fólk, þannig ég fæ það út í lokin að nú sé aldurinn farinn að segja til sín, hversu illa sem það kann að hljóma. En þó má líka skjóta hér inní, að ef að það er tilfellið, þá hefst ég elst þónokkuð mikið á aðeins einu ári, þar sem ég stóð í fremstu víglínu á Eldborg í fyrra.....ég reyndar fann verulega til aldurs míns þar. En það lítur samt út fyrir að ég verði í góðra vina hópi einhversstaðar á suðurlandinu, gítar og gleði...

|

30 júlí, 2002

Þetta byrjaði semsagt framar vonum, en satt best að segja er ég algjörlega strand núna...ég kann samt að setja inn link, sem er frábært...t.d alveg út úr blánum Vaka

|

Jæja, það var og að mér tækist þetta einsamalli....en auðvitað er þetta rétt byrjunin, sjáum hvað setur.

|