Hmmmmm

24 ágúst, 2007

Fyrir nákvæmlega 6 árum síðan fæddist lítil stúlka, Salóme Júlíusdóttir (Lóa). Hversu mikilli fegurð, lífsgleði og sjarma getur lítil manneskja búið yfir? Félagsskapur hennar er mannbætandi og hún fær sérstakar frænkukveðjur á alnetinu af þessu tilefni.

|

23 ágúst, 2007

Leiðréttingarsystemið í Outlook forritinu, sem er afar áhugsamt um að leiðrétta allt sem ég skrifa á íslensku (skiljanlega) hefur stungið upp á því að ég leiðrétti Asdis og skrifi þess í stað Sadist.

Hvernig á maður að taka þessu?!

|

01 ágúst, 2007

Það er kominn nýr meðlimur í fjölskylduna í Selinu hæða. Unaðslega fallegur og svartur Hyundai Tuscon var ættleiddur í gær, öllum öðrum meðlimum til mikillar ánægju - þó óhætt sé að segja að sumir hafi verið örlítið ánægðari en aðrir. Ég ímynda mér að á næstu dögum verði teknir nokkrir viðhafnarbíltúrar, þannig þið skuluð endilega hafa augun hjá ykkur:)

Ágústmánuður er hafinn og það er sitthvað í plönum. Innipúkastemning hvílir reyndar yfir verslunarmannahelginni, en annars eru ættarmót, líffræðiteitla, upptroðslur og norðurferð til Dr. Þóru á dagskrá. Haaalelúja.

|