Er til of mikils mælst af fólki með magakveisu, að það sleppi því að mæta í hóptíma í ræktinni og fari bara út að hlaupa þar sem það getur prumpað í friði?
29 mars, 2006
22 mars, 2006
...ert hægt að vera post-it miða fíkill??
Mitt litla office space fer óðum að fá á sig fölgulan blæ.....og það liggur við að hrip á einn gulan sé orðin nauðsynleg staðfesting á því að heil hugsun hafi átt sér stað í toppstykkinu......! What is one to do?
19 mars, 2006
..fór í bústað um helgina. Þar var allt sem dísuna vantaði. Góðir vinir, góður matur, góður húmor, heitur pottur og notalegt rúm. Sannarlega ofnærð, en um leið endurnærð.
Þetta sunnudagskvöld er eins og öll önnur sunnudagskvöld fullt af fögrum fyrirheitum um pródúktíva viku á öllum vígstöðvum. Ef plönin ganga ekki eftir, eftir svona helgi...þá veit ég ekki hvað :)
Yfir og inn.
14 mars, 2006
Fór á minningafyllerí í gærkvöldi. Reif fram heilu plastpokana af myndum frá Seyðó árunum, MR tímanum, Benidorm, London dvölinni, bréf, póstkort og fleira og fleira - algjör veisla fyrir minningafíkil. Innihald pokans sem spannaði tímabilið frá ca. 1994-2000 vakti upp margar og góðar (misgóðar þó) tilfinningar, sem mér finnst, þó ekki sé lengra liðið, að hljóti að tilheyra öðru lífi. Tímavélin virðist hafa hrokkið úr öðrum gír í þann fimmta stuttu eftir tvítugt. Fólk sem ég t.d. stóð greinilega í mjög persónulegum bréfaskrifum við (before internet '99) meðan ég bjó í London hef ég ekki talað við í mörg ár og þarna voru m.a.s. bréf frá manneskju sem ég mundi ekki til að hefði nokkurn tímann tilheyrt mínu lífi! En svo mundi ég það.
Næst á dagskrá er litla rauða boxið sem er pakkað af útkrotuðum dagbókum sem spanna tímann 1994-2001. Það er sko djúsí stöff, sem ég fæ reyndar á köflum, aulahroll af því að lesa. En það er mjög forvitnilegt að hafa dókumenterað sjálfan sig á þessum krúsíal aldri, og algjörlega hilarious að renna í gegnum vangaveltur unglingsins sem veit ekki hvort hann er að koma eða fara, hvort hann er reiður eða glaður eða yfirhöfuð nokkurn hlut um hvernig hann á að bera sig að við að VERA.
...já og þið sem þekktuð mig á 17-18 ára aldrinum og kölluðuð ykkur vini mína....held þið ættuð að skammast ykkur fyrir að leyfa mér að vera svona til fara. Maður minn. :)
Upp úr tösku frá þessu tímabili fann ég forlátan útvarpsvekjara sem átti alltaf sérstakan stað í hjarta mínu, því hann kynnti mig fyrir unaðssemdum snoozins. Í morgun snoozaði ég því á gamla útvarpsvekjaranum mínum (og gemsanum reyndar líka) og þetta var alveg smá groundhog - sérstaklega í framhaldi af kvöldinu áður. Var búin að gleyma því hvað það er mikil snilld að vakna við tónlist.
..jæja þetta er orðið gott. Langur mánudagur að lokum kominn. Það er brjóstsviði í húsinu og dísan heldur í ból.
08 mars, 2006
Það væri alveg jafn ómögulegt fyrir mig að hætta að blogga og að hætta öðru því sem að mér finnst gott....þannig að
...í dag er góður dagur.
...árshátíð Actavis er loks að fá á sig lokamynd, enda stefnan að stimpla sig útúr þessu starfsmannafélagi með glæsibrag. Það er mikil fróun í því að fylgjast með einhverju vinda snögglega og smoothly fram sem búið er að leggja mikla vinnu í yfir langan tíma - ef vel tekst til altso - því verður þetta mjög spennandi.
...tónlistin í eyrunum þessa dagana er annars Lauryn Hill. Þvílíkur snillingur. Schnilldartextar. Þvílík rödd. Það á að sekta talenta eins og hana fyrir að vera ekki að toura og gefa út - í sífellu :(
06 mars, 2006
Að blogga er góð skemmtun.
Fyrir fólk eins og mig sem hefur einfaldlega gaman af því að setja orð saman í setningar. Sem finnst gaman að vera í hringiðunni. Netsamskipti voru fundin upp fyrir fólk eins og mig - sem gengur stöðugt um með þá truflandi tilfinningu að það sé að missa af einhverju. Einhverju einhversstaðar. Að heimurinn sé í fullri alvöru að reyna að snúast án þess (sem auðvitað gengur ekki).
Að blogga er gott, þegar þess er þörf. En ef til vill er mál að linni. Að sinni.
Til húmorískra systkina. Textabrot úr laginu Superman (It´s not easy) með hljómsveitinni Five For Fighting.
I can't stand to fly. I'm not that naive.
I'm just out to find the better part of me.
I'm more than a bird more than a plane.
More than some pretty face beside a train and it's not easy to be me.
..og svo..
I can't stand to fly I'm not that naive.
Men weren't meant to ride with clouds between their knees.
I'm only a man in a silly red sheet digging for kryptonite
on a one-way street....and it´s not easy to be me.
..ég veina.
