Kaffið mitt er unaðslegt og þetta er algjörlega frábær dagur. 13 dagar í Berlín-Zürich-París tikk takk.
30 maí, 2007
29 maí, 2007
| |20 maí, 2007
Já!
Ég var með glaðasta móti eftir X-Durovision helgina síðustu, enda sigraði mitt fólk á öllum vígstöðvum. Einntveir og Geir á landsvísu og hin serbneska maskúlín fröken Marija í gjörvallri Evrópu.
Það er ekki hægt að segja annað en að það verði síðan í meira lagi áhugavert að fylgjast, ef fer sem horfir, með samlífinu við Samfylkinguna. Þetta kallar á að fram fari hjá manni ákveðin afturköllun á meitlaðri mental auto-pilot stýringu sem aðeins verður til í pólítísku togi og dramatískum kosningabaráttum. Jamm.
Pabbi minn var líka afskaplega ánægður eftir helgina, þó aðallega með Geir en ekki Mariju enda líklega leitun að manni sem er jafn gallharður sjálfstæðismaður - og áhugamaður um pólítík og hann er . Þessi pabbi minn átti hinsvegar afmæli í gær! Til lukku deddíó.
Annars nokk tíðindalaust. Ég er að reyna að mastera lyfjalöggjöf EU og misjafnlega þolinmótt fólk út um allar trissur í vinnunni, og við Júlli erum byrjuð stilla strengi okkar saman að nýju, og komum fram í fyrsta skipti síðan að þjóðin yfirgaf okkur í gær, og gekk það bara bráðvel. Já!
Yfir og inn.
