Ég ætla ekki að hreyfa mig í dag. Nett heilsuleysi í gangi, enda heldur vel tekið á því um helgina. Fór til Stokkseyrar á föstudagskvöldið í góðum félagsskap og borðaði humar í fyrsta skipti. Hann kom mér verulega á óvart og var alveg geggjað góður. Hitti síðan stelpurnar í borg óttans, og sakleysislegur hittingur umbreyttist í eitthvað annað og drukknara á undraverðum tíma. Í gær var síðan unnið hörðum höndum að því að vera spræk, sem tókst. Var framan af kveldi hjá Kötlu, þar sem að Thaibrandarar flugu lágflugi og 'hvor er svartari' keppnin hélt áfram. Fór síðan í snilldarveislu á Ásvallagötunni þar sem að grænn fíll gestgjafans hélt liðinu blautu og hressu. Fína helgin.
29 júní, 2003
27 júní, 2003
íslenskir stafir komnir aftur, gottgott. Dásemdarföstudagur runninn upp og vinnudagurinn að klárast. Ætla niður á laugarveg með Katli í svoldið skemmtilega sundfatabúð. Það er eiginlega kominn tími á sundfataendurnýjun, þó svo að fjólublái sundgallinn minn standi alltaf fyrir sínu. En er samt búin að eiga hann síðan ég var 14 og hann ber þess merki öll. Hann hefur dugað vel við ýmis tækifæri, en þó sér í lagi í pottum, -sér í lagi í vökupottum :) Síðan er ég bara að hugsa um að fara í einhverja bleytu! Á morgun er svo 1 partý og 1 veisla á dagskrá, en Katla er með blandað Thaifarar/Breiðhyltingar partý og Andri er með skaðræðis Deigluveislu. Þannig það verður nóóóóóg að gera. Góða helgi!!
26 júní, 2003
ok eg er ekki alveg nogu anaegd med thetta nyja bloggkerfi sem leyfir ekki islenska stafi. Sit heima ad salast ur threytu, var i bodypump hja Kotlu og er gjorsamlega buin a thvi. Thad gerdist tho gledilegt i dag ad eg var bodud i aframhaldandi atvinnuvidtal (eftir thriggja vikna bid!) a naesta thridjudag, oskaplega anaegd med thad. Aetla mer i rumid von bradar med allar thessar baekur sem mer hafa verid gefnar ad undanfornu i tilefni utskriftar. Fékk hreint glaest ljodasafn (thvi Drifa thekkir sina), heimspekibok 'from Plato to Kant' fra Erlu og Palla (theim finnst eg thurfa lifsins leidarvisi), nu og svo fékk ég Storu kynlifsbokina fra Julla bro og Sossu (er enntha svoldid hissa og skil ekki alveg hvad thau eru ad fara med thessu! :) ). Held ad best sé e.t.v ad blanda thessum lesningum bara saman, enda augljost ad thessi kokteill inniheldur allt thad sem ein kona tharf, eda her um bil.
24 júní, 2003
Ég vinn á ótrúlega heilnæmum stað, einmitt í þversögn við það sem hann raunverulega byggir á. Misjafnlega veikt fólk með sögur og svipi, fá mann til að fyllast lotningu fyrir lífinu oft á dag. Í dag fékk ég t.d. sögu og svip sem gerði einhvern veginn allt annað lítilvægt. Lotningin virðist því miður aldrei vera langvarandi, en finnst afskaplega heilnæmt að vera minnt á það sem raunverulega máli skiptir, fallvaltleikann og allt það. Staldra við, hrista svoldið hausinn yfir sjálfum sér og hlægilegu vandamálunum sínum og halda síðan áfram. Hugvekja í boði Landspítala-Háskólasjúkrahúss.
23 júní, 2003
|Á laugardaginn útskrifaðist ég sumsé og er ennþá í sælu. Þó ég hafi nokkuð verið búin að venjast tilhugsuninni þá var ferlega notaleg tilfinning að fá prófskírteinið í hendurnar, og fá gráðuna svarta á hvítu. Athöfnin sjálf var ágæt, en alveg ógurlega löng. Þórður fór m.a.s í göngutúr í miðjum klíðum. Síðan var haldið heim á leið og grillað ofan í skyldfólkið, skálað og skemmtilegt. Fékk ýmsar fallegar gjafir,blóm og kveðjur, og var himinsæl með það allt. Trítlaði síðan yfir til Fanneyjar í Skagaselið og sat þar úti í garðpartýi fram á nótt, kíktum í teitluna hans Óla og enduðum síðan á 22, enda fáránlegar raðir allsstaðar.
20 júní, 2003
Er ekki frá því að heilsan sé að koma til mín á ný enda ströng meðferð að baki. Var að gera heimilið vænt til boðs, en það er von á stórfjölskyldunni til skála á morgun. Ætlum að hafa grill og freyðivín, svo ég vona að það viðri vel. Síðan er planið eiginlega að hitta á fleiri líffræðinga , jafnvel krasha stórveisluna hans óla haha!
19 júní, 2003
Kvennadagurinn í dag og ég er í illa bleikum silkináttkjól, reyndar ekki í tilefni dagsins, en það kemur heppilega út engu að síður. Fór í apótekið í gær og byrgði mig upp af alls kyns dópi og er í allsherjar meðferð hjá sjálfri mér enda kvefreynd kona. Heit gufa, otrivin, strepsils, c-vítamín og nýjasta element meðferðarinnar er olive leaf extracts, sem skv. bæsa er málið. Enda kemur ekki annað til greina en að ég verði orðin góð á útskriftardaginn!! Mútta er annars að dekra við litlu stelpuna, enda á maður meira en lítið bágt þegar maður er lasinn. Hversu mikill vökvi getur eiginlega komið útúr höfðinu á manni?
18 júní, 2003
Þó það sé snilld að hafa 'rauðan' dag í miðri viku og frí, fær maður eiginlega bara í staðinn annan mánudag, með allri sinni mæðu. Annars var rosastuð í deiglugleðinni, lambakjöt og gráðaostasósa alveg að gera sig, gott fólk og stemmning. Fólk var almennt duglegt í þessari teitlu, og mín endaði á hverfis ásamt fleirum atorkusömum og mér skilst að það hafi farið frekar mikið fyrir mannskapnum :) Fór ekkert í bæinn á sautjándanum í 1.skipti ever. Kannski eins gott því það var víst kalt og blautt,-er nefnilega komin með þvílíkt hauskvef, hor og hita að ég sé ekki beint.
15 júní, 2003
Var að horfa á snilldarþátt um MR á ríkis. Sat með sólheimabros, límd við skjáinn, hló og skemmti mér konunglega. Fyrst kemur MR MR MR, svo kemur MR.....
Hrönn bauð mér í kaffi (bjór) og heilahræru í gærkvöld. Stakk síðan af með Bryndísi á Kaffibarinn, en honum var síðan lokað á okkur fáránlega snemma, stemmningin glataðist í stefnuleysi en við Bryndís enduðum samt í dansi á Vegamótum, fínt útlit. Átti síðan fagnaðarfund við Kötluna á Brennslunni í dag, og fékk ferðasögu, slúður og thai-stemmuna beint í æð. Deiglugrill á morgun, spái gríðarstemmu.
13 júní, 2003
Ljúfu vikulokin....voru sannarlega ljúf þegar ég komst að því að ég er komin með nettengingu inní herbergi til mín :) Sit því við tölvuna og reika um vefinn, til þess eins að reika-af því ég get það. Er að bíða eftir að American Idol byrji, og er mjög spennt þó svo ég viti eiginlega hvernig fer...Ruben er minn maður í þessari keppni, en ég er nokkuð ánægð með Clay, því þó svo að hann hafi ekkert í Ruben, má ekki gleyma því að Clay greyið er hvítur, en sem slíkur-er hann alveg glæstur. Frábær hugmynd allt saman. Eftir A.I ætlum við Drífa að skreppa í bíó á Anger Management og hlæja dulítið. Á morgun er síðan von á Thailandsförum til landsins, og ég verð að játa að ég er búin að sakna nörranna minna töluvert og hlakka óumsegjanlega til að sjá þau!
11 júní, 2003
Jæja, þetta er ekki nokkur frammistaða í blogginu hjá mér. Við erum einhverra hluta vegna ekki enn nettengd í blásölunum og mér líður sannarlega eins og ég hafi verið svipt einhverju. En þetta hlýtur að fara að koma. Fjölskyldan búin að koma sér nokkuð notalega fyrir, og ég er ánægð með veröndina og stærra herbergi-fyrir utan að þetta er nett partývæn íbúð, opið rými sem leiðir til verandar, -þess má geta að foreldrum fannst þetta ekki jafn skemmtileg pæling og mér. Annars er lífið bara gott, stemmning í blóðtökunum og útskrift á næstu grösum.
06 júní, 2003
það er komið að 5 ára reunioni-MR´98 ! Tíminn flýýýýýýgggggguuuuurrrrrr. Hlakka mikið til, hef sum bekkjarsystkini mín ekki séð í 5 ár held ég. Fyrirpartý hjá Ásdísi Maríu og síðan er för heitið í heljarinnar MR98 partý, híha.
