Hmmmmm

25 janúar, 2003

Var að koma af 8 miles, Eminem myndinni. Alveg bráðfín. Stefni að rímnaflæðikeppni á næsta mannfögnuði sem ég fer á. Er m.a.s strax komin með nokkrar rímur......að öðru, - hvað er þetta með að sýna Vini á föstudagkvöldum!! Það þýðir ekki bara að skipta um dag bara svona allt í einu í síðustu seríu. Eins og grámygla á mánudögum,eins og fiðringur á föstudögum-eru Vinir alltaf á laugardögum!! Í kvöld milli átta og hálfníu, horfði ég t.d á regnbogalita geimkrakka á Ríkis, meðan að snilldin rúllaði á hinni. Súrt.

|

21 janúar, 2003

Hver pantaði þennan kulda? Magnað að leggja það á sig að pirrast á hverjum einasta vetri,-oft á vetri, yfir kuldanum á Íslandi. En maður gerir það samt alltaf.

|

16 janúar, 2003

Lenti í svolitlu sérstöku í gær. Fór í verklega veirufræði, og planið var að rækta veirur uppúr lifur úr kjúklingafóstrum, sem hljómar svo sem ágætlega þannig séð. Svo kemur uppúr dúrnum þegar Halldór Þormar er að týna fóstrin uppúr eggjunum að þeir eru enn lifandi...!! Átti alveg örugglega að vera búið að kæla eggin svo þau væru líflaus. En....við stóðum semsagt þarna agndofa með fullgerðan, nett fiðraðan unga á petriskál. Hann hreyfði vængina, opnaði gogginn og var eiginlega bara sprell-alive. Mér leist aldeilis ekki á að þurfa að aflífa blessaðan ungann, þannig ég lét Kötlu gera það. Sem hún gerði vel, og hún sá eiginlega líka um að opna hann og ná í lifrina...ég var meira svona móralskur stuðningur. En punkturinn er að ég er t.d. fylgjandi tilraunum á dýrum (þó innan allra lagaramma og allt það), og hefur aldrei fundist þetta sérstakt tiltökumál, en þegar ég stóð frammi fyrir þessu, að taka lífið þ.e, þá runnu á mig tvær grímur. Frökk úr fjarlægð.

|

13 janúar, 2003

Jahérna, þetta er eitthvað skertur mánudagur, þrátt fyrir að helgin hafi verið með þeim rólegri í langan tíma. En það sem er skemmtilegt við daginn í er það að hún Drífa Kristín eðalmanneskja er 25 ára í dag!! Til hamingju með afmælið Drífa mín.

|

Þessi texti hefur fengið að vera í friði upp á töflu í tölvustofunni á gásnum síðan í vor einhvern tíma. Nuddar sér í mig hvern dag. Veit ekki alveg hvaðan hann kemur, en hef sterklega á tilfinningunni, að Valli beri ábyrgð á þessu. Flottur. Textinn altso :) hehe

|

The north is to south what the clock is to time, there´s east and there´s west and there´s everywhere life. I know I was born and I know that I´ll die. The in-between is mine. I am mine...

|

09 janúar, 2003

Ég er í þessum pakka þessa dagana að reyna að hlaupa af mér prófin og jólin, sem einmitt einkenndust af setu, lífi í láréttunni, glasalyftingum og matarskófli. Allir hinir líka. Stöðin "mín" er gjörsamlega að springa af vel mettu fólki í sömu erindagjörðum. Sem er auðvitað gott sem slíkt, fyrir hina. Þetta er samt hálfgerð geðveiki, því maður finnur sig í því að upphugsa alls kyns plön og plott um hvernig maður ætlar að komast í þessi tæki og hin, eða ná palli og góðum stað fyrir hann, og komast á réttum tíma í klefann til að ná sturtu og sleppa þannig við endalausa bið, handalögmál, 100 berar konur og sveittar, og það að verða svo illa pirraður að maður leggji hreinlega upp laupana í þessum efnum í bili.

|

07 janúar, 2003

Fyrsti skóladagur í dag. Síðasta önnin. Fór í einn tíma, ónæmisfræði, sem ég held að verði svoldið skemmtileg. Ætla líka að taka veirufræði, sameindaerfðafræði og tölvunotkun. Púfffff, vona að þetta blessist. Er nefnilega ekki í nokkrum gír til að byrja aftur í skólanum.

|

02 janúar, 2003

Gleðilegt ár. Eyddi gamlárs í bílandi rólegheitum, en tók nett tvist í gær, á nýjársfagnaði Vöku-sem var gottgott. 2003 lofar góðu og fær sitt fyrsta ris (ef svo má að orði komast) með sigri 2003 takk.

|

Ég var að lesa stjörnuspá vogarinnar fyrir 2003 og hún bara hljómar svo helv... skynsamlega að ég er að hugsa um að líta á hana sem forskrift og fara bara eftir henni. Badabing.

|

Það kom enn á ný að þessum árlegu tímamótum, sem bera óumflýjanlegt uppgjör liðins árs með sér. Þá neyðist maður til að horfa yfir farinn veg. Vega og meta góðar sveiflur og slæmar. Skoða hvernig árið samræmdist því sem það lofaði í upphafi...... og þegar búið er að brjóta heilann nægilega yfir þessu öllu þá situr maður uppi með milljón hluti sem betur mega fara, og þessu öllu verður maður þá eftir fremsta megni að reyna að "zippa" í eitt innihaldsríkt, en þó, nokkuð raunsætt áramótaheit. Álag maður. En tókst.

|