Lítil dama fékk nafn í gær, Þóra Andrea. Þóra Andrea Júlíusdóttir. Þetta er klassadama. Hún lét þessi læti ekki á sig fá og svaf í gegnum skírnina og megnið af veislunni. Hún rumskaði ekki einu sinni þegar við Ívar fluttum henni lítið skírnarlag. Þóra vísar í afa Þórð, og Andrea í litla vinkonu Salóme. Afi Þórður er gríðarlega ánægður með þetta, enda hefur hann haldið því fram frá því að Þóra Andrea var í móðurkviði, að barnið væri engum líkt, nema sér. Nett debat um þetta í móðurfjölskyldunni :)
23 mars, 2007
15 mars, 2007
...ég velti því fyrir mér hvort bloggþörfin sé horfin, eða hvort ég sé einfaldlega dottin úr æfingu. Ég er a.m.k. hætt að henda saman færslu í huganum og klæja í fingurna eftir að koma henni á alnetið. Hvað því veldur veit ég eigi, vandi er um slíkt að spá.
Tíðindi til bloggs hljóta þó að teljast þau að Seyðfirðingapartý verður haldið í Selinu hæða á föstudaginn, enda verður árlegt Austfirðingaball haldið á Players þá um kvöldið. Jújú, venju samkvæmt spila Á móti sól, Dúkkulísurnar og SúEllen fyrir dansi. Jahú. Teitlan er þó sérstaklega haldin til að ginna Palla og Erlu Rut til að setja börnin í pössun og koma út að leika við mig áður en þau flytja búferlum til Gautaborgar.
Að öðru leyti er flest við það sama. Nema hvað að það bíður mín nýtt starf handan við hornið, og íbúum í Selinu hæða hefur fjölgað um 1,75. Gaaaaman að því.
09 mars, 2007
Hrönn Sigurðardóttir, hlýjasti harðnagli sem ég þekki, á afmæli í dag. Hún er snillingur. Í dag verður hægt að kasta á hana kveðjum milli 14 og 18 á Apótekinu :)
Það er grrríðarstemning hér í Hafnarfirðinum, góður bolli við hönd, harðsperrur á undarlegustu stöðum, og helgin framundan. Hííííha!
06 mars, 2007
"..ég tók hann á lofti fyrir utan teig og hamraði hann í fjærstöng og inn.." -var mér tjáð af einlægni áðan á msn.
Þær eru misjafnar ástríðurnar:) ....en auðvitað allar jafn stórbrotnar, meira að segja fótbolti.
