Stórtíðindi. Bandið Hildirhans og Kári treður upp á Vídalín í kvöld!! Grííííðarleg stemmning. Þeir félagar hafa verið duglegir að sinna glöðu fólki á landsbyggðinni undanfarið en eru nú eru þeir mættir í borg óttans, og ætla þeir að trompa kvöldið. Hvet glatt fólk til að mæta.
30 apríl, 2003
One down, two to go. Kláraði prófið um hálffimm og tók síðan frí það sem eftir lifði dags. Náði smá sólarglætu og settist svo á kaffihús í góðra vina hópi fram eftir. Mjög gott.
25 apríl, 2003
Gleði gleði. Flutt inn á Kötlu, og tilheyrandi kóffínofneysla (mikið kaffi og mikið diet Coke) hafin. Hápunktar dagsins snúast um matarpásur, og allar óvæntar truflanir eru sem gjafir af himnum. Próf á þriðjudag í sameindaerfðafræði, og er ætlunin að skora hátt. Samlífið (symbiosis-báðir aðilar hagnast) hefur gengið hnökralaust enn sem komið er, en því hefur verið spáð að þessi síðasta prófatörn í Hæðarselinu gæti endað í fáklæddum koddaslag (ef Óla verður að ósk sinni) eða jafnvel alvarlegri handalögmálum, enda hefur ketillinn nú tekið, fyrir tilstilli Heiðrúnar, upp seyðfirskt orðfæri og veit það ekki á gott.
23 apríl, 2003
Ég er búin að vera ein dugleg mama. Hef gert hreint ótrúlega hluti, námslega séð, á liðinni viku. Skilaði 2 ritgerðum í dag, og þremur skýrslum og er í gír fyrir prófin. Tsjing. Pink Floyd tónleikar með dúndurfréttum í kvöld....en ég ætla að vera heima að læra. Grátur og gnístan tanna.
20 apríl, 2003
Gleðilega páska! Páskaegginu hafa verið gerð góð skil, og nú sit ég nokkuð sæl og er að þýða síðari hluta 10. kafla í þeirri þrælskemmtilegu bók, Immunobiology. Ætla að taka dágóða rispu núna, því Júlli og Gunni koma með fjölskyldurnar sínar í kvöldmat, og þá er friðurinn eðlilega úti. Málshátturinn minn þetta árið var Ofþreyta má valinn vin. Skv. ráðleggingum reynds veisluhaldara þykir það gera mikið fyrir skemmtanagildi málsháttar að skeyta "í rúminu" aftan við hann. Þá myndi þessi útleggjast; Ofþreyta má valinn vin í rúminu. Ég verð nú að segja að seinni úrfærslan meikar meira sens en sú fyrri. En ef einhver getur útskýrt fyrir mér upphaflega merkingu væri það vel þegið.
17 apríl, 2003
Mætti að sjálfsögðu seint í matarboðið til Sunnu í gær (en það var auðvitað bara til að gera góða innkomu), en mér var fyrirgefið og um leið boðið uppá kokteilinn Bláa borðann. Síðan mölluðum við ítalska máltíð, pestospaghetti, tómata+ferskan mozzarella, og det hele. Ís með líkjör í eftirrétt og lítið páskaegg, sem innihélt afar torkennilegan málshátt. Lékum leiki, og héldum svo í bæinn, n.t.t Hverfis þar sem var fámennt en góðmennt. Hitti m.a Bjarna-og hann var að komast inn í leiklistarskólann, ekkert smá ánægð með hann og Erla Rut pæja kíkti á okkur líka. Voða fínt, og alltaf sérstök ánægja þegar danska læknastúdínan heiðrar okkur með nærveru sinni.
16 apríl, 2003
Í dag á ég hvorki meira né minna en 11 ára fermingarafmæli! Ég fermdist í bleikum kjól sem mamma saumaði og hvítum blúndusokkabuxum, en kjóllinn hefur víst verið aðhlátursefni síðan hjá vinkonunum, þó ég hafi reyndar bara nýlega frétt af því. Þó að ég hafi verið ansi trúuð sem lítil padda, þá hafði ég nú glatað henni á þessum tíma, en man að mér fannst þetta sannkölluð vígsla inn í samfélag hinna fullorðnu frekar en staðfesting skírnar og vilja míns til að ganga lífsins veg með guði. Maður sá hræsnina þá, en einmitt kaus að líta fram hjá henni allra hluta vegna. Obba var með hugleiðingar um fermingar á Deiglunni í dag, og ég get verið sammála henni um margt. Fermingarhefðin í núverandi mynd er hjákátleg.
15 apríl, 2003
|

Blake Thorpe: Thu ert illgjorn kona sem svifst
einskis til ad koma ser a framfaeri, baedi i
atvinnu og astum! Pabbi thinn er rikur og
voldugur og thu notar sambond hans oft til ad
koma ther a framfaeri. Nuverandi elskhugi thinn
er fyrrverandi elskhugi modur thinnar og
erkiovinur pabba thins! En thad stodvar thig
ekkert!
Hvada Leidarljos karakter ertu?
brought to you by Quizilla
Ég er nett að drepast úr leiðindum. Er búin að logga mig svona 17 sinnum inná þau spjöll sem ég hef aðgang að, búin að taka afstöðuprófið á afstaða.is, og komst þar að því að ég er skráð í rangan flokk :) , og er u.þ.b að fara taka Guiding Light prófið sem Ásta og Obba eru búnar að reyna í sínum prófraunum. Er nefnilega með ADSL tengingu hérna hjá Kötlu, en kemst ekki (og kannski blessunarlega) inn á msn-ið. Hvílík fötlun. Já, og varðandi síðustu færslu, þá er sko alls engan skóg að finna nálægt Landakoti, hér ruglaðist Seyðfirðingurinn aðeins í landafræðinni, því ég átti að sjálfsögðu við Vífilstaði.
14 apríl, 2003
Til að tapa ekki gleðinni á fyrstu metrum próftarnar var ákveðið að skreppa á kaffihús á laugardagskvöldið. Með Kötlu og Heimi voru alveg líkur á því að planið myndi þróast eitthvað, en þegar Elvar Snær mætti var það fullvíst, sem það og gerði. Davíð Tómas hafði síðan uppá okkur og við trítluðum á Kaffibarinn. Það var svoldið gaman. Reyndar alveg rosalega þröngt, og þar fann ég ruddalegasta barþjón í Evrópu, en það var sjarmi í því. Lít þangað aftur. Enduðum seint og um síðir á Hverfis, tímanlega til að ná Nínunni. Á sunnudaginn vaknaði ég svo eldspræk á ónefndum tíma e. hádegið og við Erla Rut fórum í göngu. Fundum heilan skóg rétt hjá Landakoti og gengum í honum. Það var mjög fínt, enda langt um liðið frá siðasta O2 overdózi. Nú erum við katlan að læra fyrir prófið á miðvikudaginn-eða eigum að vera að læra, ég er meira að blogga og hún er meira inní stofu að æfa eitthvað body-pumplag.....hehe.
12 apríl, 2003
Eftir gærkvöldið og daginn í dag er ég orðin svo ótrúlega lagin við að gera gröf, að það er vart normalt. Ef einhvern vantar t.d að láta skella upp einu Lineweaver-Burk, já eða Eadie-Hofstee þá myndi ég vera manneskjan í verkið. Er semsagt búin að sitja sveitt við tölvuna (sem ég er að þróa dáldið sérstakt samband við), og töfra fram síðbúnar lífefnafræðiskýrslur fyrir Baldur. Hvað ætti maður annað að gera á sumardegi í apríl. :( Ennn er að spá í að kíkja på café i aften. Bið þess að á morgun verði skyndilega kominn 12.maí.
11 apríl, 2003
Aðalfundur Haxa verður haldinn í kvöld á Grensás. Grunar að það sé sjálfkjörið í þau embætti sem einhver hefur boðið sig fram í, og svo er bara spurning hverjir verði orðnir nógu fullir til að láta plata sig hin. Semsagt bjór og bolla á boðstólum, og liðið tekur síðasta djamm fyrir próf...að ég held...
10 apríl, 2003
Í gærkvöldi, þegar mér varð ljóst að prófatörnin er að ganga í garð, hoppaði ég í huganum yfir þann tíma og komst fljótlega í ótrúlegan sumarfíling og er gott ef ekki farin að sjá sumarið í hyllingum. Er komin með things to do lista fyrir það. Grófplanið er allavega að kíkja á Seyðó (kannski ganga í Loðmundarfjörðinn), heimsækja líffræðiliðið á Hóla, fara á Þjóðhátíð, flytja aðeins lengra upp í Kópavoginn, fá D-vítamín í kroppinn...já....framhald síðar.
Ég var fram á síðustu sekúndu með ónæmisfræðifyrirlesturinn í vinnslu, bókstaflega þar til ég steig í pontu. Tók m.a.s leigubíl á svæðið, sem segir allt um geðveikina. Var líka mjög langt frá því að vera fullupplýst um efnið..uhumm..en ég hinsvegar slapp fáránlega frá þessu. Sem er gott. Allir fyrirlestrar búnir!! En góðar 2 ritgerðir og ca 4 skýrslur eftir...og 1.prófið 16.apríl. Hva..
07 apríl, 2003
Hér má finna Spiderman í sveiflu....hahaha. Eða ætli þetta sé Göndullinn í dulbúningi...?
Það var rosalega gaman á árshátíð! Ásta Sóllilja stjórnaði veislunni af miklum myndarskap, og Vökufólk sýndi sínar bestu hliðar í söng, leik og almennum skemmtilegheitum. Takk fyrir gott kvöld góða fólk! Ég var mjög hress, en heldur óhress daginn eftir. Í dag hef ég hins vegar verið frekar leiðinleg (hversu slæmt er að finnast maður sjálfur vera frekar leiðinlegur??) en stefni á hætta því. Magnús gaukur hefur verið mjög hress í dag og reynt mikið að kæta mig. Hann fær reyndar vítamíndropa í vatnið sitt, ég ætti kannski að reyna þá.
Senan: Erna kemur eins og fín frú á sjálfskipta cherokeenum að ná í Þórð sem stendur í kjólfötunum eftir tónleika og bíður hennar. Þau eru bæði mjög svöl. Þórður sem er að ljúka símtali, sér Ernu útundan sér á kagganum koma. Hann fleygir í þeim svifum, símanum sínum fyrir bílinn, og Erna, verandi mjög svöl kona, keyrir yfir hann. Þórði finnst þetta ekki góð saga, en Ernu finnst þetta nett fyndið. Mér finnst þetta náttúrulega hræðilega fyndið, en hlæ inní mér, því ég hef ekki ennþá fengið að keyra jeppann. :)
05 apríl, 2003
Það er fátt frábærara en að sitja á föstudagskvöldi fyrir framan tölvuna og sjúga upp í nefið. En það er gott, og jafnvel rétt. Því á morgun er aðalfundur Vöku og um kvöldið verður haldin árshátíð Vöku. Hlakkar mína mikið til, og mikið verður gaman.
04 apríl, 2003
Ég held ég sé komin til heilsu. Katla bauð okkur Heiðrúnu í rauðvín og osta,+ smá sex in the city, og ég held að það hafi bara bjargað þessu. Alltof mikið af góðu fólki að fara í bjór í kvöld, en ég mun ekki láta glepjast, planað rólyndi fyrir framan tölvuna. Kannski maður skelli í einn pistil eða svo. Að öðru. Fjölskyldan hefur eignast nýjan farskjóta. Þórður hefur sagt skilið við meðalmennskuna hvað bílastatus varðar og keyrir nú aftur um á cherokee. Þórður er glaður maður, og í Fífulind þarf nú að fara beita nýjum herbrögðum til að fá bílinn að láni. Næsta ómögulegt.
03 apríl, 2003
Ég fékk reyndar ekki óskalagið, en ég fékk Hæ, tröllum á meðan við tórum.. sem er líka mjög fínt. Annars voru þetta alveg hreint brilliant tónleikar, mörg mjög flott verk. Færeysk stemmning í loftinu. Mjög flott. Ánægð með kallinn. En í dag ligg ég hinsvegar heima með einhverja óskilgreinda pest, og er ekki það veik að réttlæti rúmlegu, en þó það slöpp að ég get ekkert af viti gert. Hvað er það? Sit bara hérna og horfi á ólesnar bækurnar mínar og blóðþrýstingurinn hækkar.
02 apríl, 2003
Haxa-myndirnar eru komnar inn! Ótrúlega fínar. Mætti halda að Freydís hafi verið bak við myndavélina á árshátíðinni (eða meira fyrir framan hana). Annars er allt í blóma, kláraði onkoveirurnar í gær og svona. Pabbi fær sínar árlegu 15 mínútur af frægð í kvöld, það er semsagt komið að tónleikum og við mamma ætlum að mæta, og ég vona eins og alltaf, að Brennið þið vitar sé ennþá inní prógramminu. Annars er ég búin að vera hugsa svoldið mikið um þessa bráðalungnabólguveiru, SARS. Frekar ógnvænleg. Það er búið að komast að því að þetta er coronaveira. En það er ekki algjörlega vitað hvernig hún smitast, hvernig framgangur sýkingarinnar er, á hvaða stigi hún er mest smitandi, og engin lyf eru til né meðferðir!! - og líffræðin á leiðinni til Thailands. Spooky.
