Hmmmmm

28 september, 2006

Ég átti afskaplega sérstakt moment í vikunni. Moment sem var svo fullkomlega tært, húmórískt og óstjórnlegt, að það er einhvern veginn hvorki hægt að lýsa því eða deila því. Ég gældi samt við það að það væri efni í góða sögu á tjásíðuna, en ég held ég verði að sætta mig við það þetta verði einkagleði mín og Drífu.

Þannig að án þess að ætlast til að það gleðji nokkurn nema okkur skal það látið uppi að momentið involveraði mjög hátíðlega tónleika á balkneskri menningarhátíð í Salnum. Þar hamraði serbnesk kona hið hryllilega hljóðfæri sembal eins og hún ætti lífið að leysa - og við - lágum í massívasta hláturskasti sem ég hef fengið síðan á gelgjunni á aftasta bekk. Þetta var algert jafngildi þess að fá hláturskast í jarðarför. Hræðilegt og æðislegt í senn. Hún hristist og grét bak við efnisskrána og ég hristist í hnipri með puttana í eyrunum og munninn herptan í baráttu lífs míns við hláturinn. Við klöngruðumst síðan út í hléi með verki í iðrunum af því að halda í okkur tryllingnum í 40 mínútur. Menningarvitar ha.

|

14 september, 2006

Ég sat yfir bróðurdóttur minni, Salóme 5 ára, eina kvöldstund í vikunni og við spjölluðum mikið saman um heima og geima. Það er svo yndislegt við barnshugann hversu allt er vandlega klippt og skorið út frá þeim upplýsingum sem fyrir hendi eru. Salóme stendur til að mynda fastara á því en fótunum að ég sé unglingur. Það er bara ekki til umræðu að ég sé fullorðin. Samkvæmt skilgreiningunni er barn sem sagt barn þangað til að barn verður unglingur, og unglingur er unglingur þangað til að hann eignast barn en þá er hann fullorðinn. Það er ekki lifandi vegur að sannfæra hana um það að einhver geti verið fullorðinn án þess þó að eiga barn. Ég er því unglingur í heimi Salóme. Og eftir því sem ég hugsa meira um það þá kemst ég sífellt meira á þá skoðun að skilgreiningin sé kannski ekkert út í hött. Eða slæm. Ég er að sjálfsögðu ekki táningur. En líklega er unglingur ekki rangnefni :D

..annars ég hef lítið að segja þessa dagana nema hvað að ég mæli sterklega með nýútkomnu efni Péturs Ben. Þetta er einn sá alskemmtilegasti diskur sem ég hef heyrt lengi. Hann heitir Wine for my weakness...og þið verðið ekki svikin. Hann fer með mann í fantatísk ferðalög og veislur fyrir eyrað. Snilld snilld snilld.

|

04 september, 2006

Ég hefur áður minnst á það hversu unaðslegt það er að sitja fyrirlestur um lyfjafræðileg málefni hjá dönskum fyrirlesurum sem mæla á enska tungu. En nú hef ég uppgötvað annað undursamlegra.....! Fyrirlestur um sömu málefni hjá frönskum fyrirlesurum á ensku! Mein Gott im Himmel.

...ðö dröööög in se blöööd (the drug in the blood)...for eksamplööö (for example)...og my personal favorite er....þrúú ðö mommbrein (through the membrane)

Maður þarf ekki að láta sér leiðast á slíkum fyrirlestrum. Heill dagur í viðbót af þessu á morgun. Get ekki beðið, það segi ég satt.

|