Hmmmmm

17 júlí, 2007

Júlí júlí júlí. Þvílíkt sumar! Næsta ótakmarkað aðgengi að Bakkakoti í Skorradal og að Urðum í Landssveit, sól, grill, pottur og næs. Júlí er afmælismánuður beggja bræðra minna (Gunnar 15.júli og Júlli 25.júlí), fjölmargra vina (Ásta Sóllilja 3.júlí, Baldvin Þór 5.júlí, Þórlindur 7.júlí, Ingunn 9.júlí og Rakel Júlía 11.júlí) og dóttur þeirra Ástu Sóllilju og Davíð Björns, Eyrúnar Birnu (1.júlí) sem er alveg glæný og yndisleg. Júlí júlí júlí. Jamm.

|

04 júlí, 2007

Ég klikkaði algjörlega á bloggi á ferðalaginu, enda nóg annað að aðhafast í útlöndunum. Við lentum eftir frábæran túr á klakanum 26.júní, trúlofuð upp fyrir haus og ferlega fegin að komast í hreina loftið, fólksfæðina og rúmið í Selinu hæða.

Berlín var snilld. Við héldum okkur aðallega í austurhlutanum, gistum rétt við Oraniumburgerstrasse og gerðum þaðan út ýmisskonar skoðunartúra á merka og ómerka staði, þræddum 'fornar' Ívarsslóðir og ég var kynnt fyrir ótal útgáfum af allralanda keböbum og auðvitað hinum víðfræga skemmtistað 8mm, þar sem sviðakjammi hangir upp á vegg, og íslenska heyrist báðum megin barborðs. Í Berlín vorum við í 6 daga.

Þá var haldið til Zürich í Sviss, í heimsókn til Hörpu og Guðjóns , þar sem við vorum í 4 daga. Það var líka alveg frábært. Zürich heillaði mig uppúr skónum. Allt afskaplega fallegt og snyrtilegt, rosalega skemmtilegar og töff búðir, fallegar litlar götur í gamla bænum og fáránlega góður matur. Fengum aðeins of gott veður þar, en upplifðum líka þar það svakalegasta þrumuveður og rigningu sem sést hafði þar í lengri tíma. Þar var mikið spjallað og hlegið og hitinn tempraður með bjór. Takk elskurnar mínar fyrir okkur!

Svo var það París. París var svo óraunverulega falleg að ég tók ítrekað andköf af hrifningu. Ég hefði haft mjög gaman að því að vera búin að stúdera aðeins söguna og skoða þessar helstu byggingar og söfn sundur og saman, enda alveg heilluð. Málið var hinsvegar að það var svo viðbjóðslega mikið af fólki í París, á þessum ferðamannatíma, að það var bara út í hött. Alltaf allt kjaftfullt í bus og metro, óendanlegar raðir í allt og svo var fokdýrt þarna! Fer næst á slow tíma, uppfull af fróðleik og sýg þetta í mig.

Sólin hefur síðan skinið látlaust síðan við komum heim. Helvíti fínt. Yfir og inn.

|