Hmmmmm

26 maí, 2006

Einmitt. Akkurat þannig.

..og svo er það bara kross við X-D á morgun....dumm..dumm..dumm..dumm

Annars heldur tíðindalaust af vígstöðvunum, og þá meina ég mínum prívat. Kannski það helst að spínat skiptir mig máli. Ekki sama máli og gráðaostur. En samt.
Átti pistil á Deiglunni um daginn og svo annan. Islam er massa áhugavert stuff. Hlægilegt reyndar að ætla að kovera efnið í pistli, en þetta var smá intro sem kveikir vonandi á einhverju í einhverjum. Harpa Hrönn vinkona mín mannfræðingur ætlar að senda mér ritgerð eftir sig um feminisma í Islam og ég bíð spennt. Mér finnast trúarbrögð og trúarbragðasaga alveg fáránlega skemmtileg. Þetta er allt svo magnað og maður er svo smár og þröngsýnn. Töff töff töff. Hitt altso.

Ætla að eyða morgundeginum á æfingu með Júlla bró, í minni elskulegu vinnu, í kosningamiðstöðinni, á miðnæturtónleikum í Iðnó, á kosningavöku...og síðan vonandi heil heim í bóli, sæl og meirihlutuð.

Segið svo að maður sé ekki duglegur að blogga.

|

18 maí, 2006

Júróvísjón í kvöld!! Má til með að linka á Fannz og friends sem standa vaktina í Aþenu þessa dagana. Schnillingar.

|

16 maí, 2006

...lifandi og spriklandi. Það var alveg svona gaman í þyrluferðinni...magnað. Flugum yfir höfuðborgarsvæðið, tylltum okkar á topp Helgafells og poppuðum opna kampavínsflösku. Magnað.

Góð helgi liðin. Þyrla og 3 Frakkar á fös, glæsileg gæsun Sóllilju á lau, og langþráðum hvíldardegi varið í bólinu. Halelúja. Andri í Lundi (aka Lundri) varð eldri í gær en það varð líka Gunnar vinur minn fuglafræðingur. Toppmenn, sem fá auðvitað hamingjuóskir frá dísunni. Yfir og inn.

|

12 maí, 2006

Um kvöldmatarleytið mun ég í fallegum heiðskírum himninum skála í freyðivíni í þyrlu.

Finnst mér það töff?

Já. Mér finnst það verulega töff.

|

09 maí, 2006

Sumarið er tíminn, er mér líður best....

...svona á þetta að vera! Ætla að vera úti við þangað til ég sofna.

|

03 maí, 2006

Þegar kynningu á Ásdísi 11 ára, nýfluttri á Seyðisfjörð, fyrir nýja bekknum sínum var rétt lokið heyrist galað sterkri röddu þvert yfir stofuna: 'MIKIÐ VAR!Ég hélt þú ætlaðir aldrei að koma manneskja! Ég heiti Heiðrún. Komdu að leika?' (sem mér fannst reyndar mjög leim, þar sem við sögðum alltaf 'viltu vera memm' í borg óttans)

Þannig var fyrsta upplifun mín af Heiðrúnu - og hún var Heiðrún í hnotskurn. Það er enginn eins og Heiðrún. Hún er frábær og ómetanleg, og ein af mínum elstu og traustustu vinkonum. Heiðrún Hallgrímsdóttir haglega geit, snillingur, söngfugl, barstýra og gleðigjafi á afmæli í dag. Til hamingju elsku Heiðrún.

|

....signed, sealed, delivered...dumm dumm dumm dumm

....onei, ég var reyndar ekki að vinna kosningar. Ég var hinsvegar að skila inn lokaskýrslunni minni um IceWeb 2006 og ég er ótrúlega glöð!!! Sátt og þreytt með galsa býð ég sumarið velkomið :D:D:D

Verkefnishópi G - Vilborgu, Hróðnýju, Þorsteini, Einari og Borgari þakka ég fyrir frábæra samvinnu :)

.....dumm dumm dumm dumm dumm

|