Hmmmmm

30 ágúst, 2004

Klukkan er rétt rúmlega átta, dísan er mætt í vinnuna. Það er reyndar ekkert nýnæmi...en það sem er fréttnæmt er hinsvegar að hún vaknaði fyrir allar aldir (svo snemma að annað eins hefur vart gerst nema til þess helst að ná flugvél til útlanda) og fór í ræktina! Svo mætir maður blaðskellandi hress í Skútuvogi og á daginn fyrir sér. Snilld. Spurning um að halda þessu bara áfram. Tjingtjing.

|

27 ágúst, 2004

Það hefur lengi lengi verið draumur minn og ætlunarverk, að skríða einhvern tíma á lífsleiðinni ofan í dimma reykmettaða holu, einmitt helst í Harlem, og lenda þar í einhverju þeldekksta 'jam-session-i' í heimi.
Ég hef oft hugsað til þess sem ég myndi gefa til að geta fengið í eins og einni genetískri færslu það sem mörgu þeldökku fólki er gefið í rythma og söng. Gæfi mikið. Þegar maður sér svona listamenn eins og ég sá á sviði í kvöld...þá hugsar maður bara með sér hvað allir bleiknefjar heimsins eru eiginlega að reyna. Það er a.m.k. einhver annars konar list. Ég gæti verið að taka fullsterkt til orða, en ég er náttúrulega bara svo upprifin og heilluð að það verður ekkert auðveldlega tjáð.
Kvöldinu í kvöld var eytt á Borginni í návist þessara þvílíku snilldarlistamanna og kvenna sem hafa undanfarið sýnt Harlem Sophisticated í Loftkastalanum. Þau komu þarna upp eitt af öðru og í hóp, og bókstaflega gerðu lítið úr öllu öðru sem ég hef heyrt live. Vildi að allir hefðu verið þarna. Vá vá vá.
Enn ein síðbúin færsla...ætla að hitta sekkinn, og reyna e.t.v. að dreyma mig ofan í reykmettaða holu. James Brown a.k.a. Jón Brúni á laugardaginn!

|

26 ágúst, 2004

Þar sem ég ræð mér ekki fyrir barnslegri kátinu yfir nýja blogginu mínu...hef ég afráðið að í stað þess að fara sofa í hausinn á mér (sem btw er austfirskur frasi sem ég veit ekki hvort meikar almennt sens eða er réttur íslenskulega) sé það eina í stöðunni að blogga svoldið. En ekki hvað.
Miðvikudagurinn rann sitt skeið á Bölinu þar sem samankomnar voru nokkrar snótir til að fagna heimkomu Birnu spyrnu frá Strass..ég treysti auðvitað á sterka innkomu hennar á lífsins leiksvið, sódómu Reykjavík.
Þar sem dekur stendur Actavis starfsmönnum til boða þessa vikuna, brugðum við Fannz og Elísabet á það ráð að skella okkur í World Class, Laugar og taka púlsinn. Á staðnum. Skráðum lithimnuna okkar í gagnabanka WC (alveg scary shit), og skelltum okkur í smá púlskúnstir á hlaupabrettunum. Því næst fórum við í Baðstofuna. Baðstofan var dúndur. Alveg eitthvað til að mæla með. Þar eru svona ca. 7 tegundir af saunum þ.á.m. ein með appelsínusauna og önnur mintusauna, ein blautsauna með stirndum 'himni', náttúrusalta heiti pottur....en síðast en ekki síst.....myrkrað herbergi með svona 20 leðurklæddum lazy-boy stólum í kringum lítinn arinn. Þar sofnuðum við held ég allar í alsælu. Þess ber hreint að minnast að í hverju herberginu var tónlist eftir stemmningunni. Þvílík gargandi snilld! Anywho, farin í ból. Linkar koma inn á morgun býst ég við.

|

25 ágúst, 2004

jibbíjei!! Ákvað að fara að ráðum hins óviðjafnanlega smekklega Guðfinns Guðjóns...og bara hrista aðeins upp í blogginu mínu. Þetta er alveg miklu fínna!! Hitt var orðið guggið og leitt. Nú hafa m.a.s poppað inn gamlar færslur og alles. Snilldin ein.

|

22 ágúst, 2004

Það er eitthvað mikið að blogginu mínu...skil þetta ekki alveg. Hægri kanturinn gleypir stafina og allt í hönk. Ef einhver kann skil á þessu má hinn sami kommenta takk.
Er búin að liggja í gula sófanum í dag eins og klessa. Ó svo gott. Frábær helgi liðin. Fór í þrjár frábærar teitlur á föstudagskvöldið, og átti svo ótrúlega skemmtilega menningarnótt. Elska menningarnótt. 'Ungur splæsir, gamall græðir....' bwhahaha. Í dag bauð Sunna sæta síðan í brunch, laxabeyglur og með þeim, sem var ljúfur punktur yfir góða helgi. En nú er mánudagur handan við hornið og ólifnaður með öllu úti..fram að næstu helgi líklega.

|

20 ágúst, 2004

Það henti mig svo skemmtilegt í hádeginu. Í gær varð ég nefnilega ástfangin. Af kúrekastígvélum. Ég er ekki ein af þessum fjölmörgu sem eiga við skóáráttu að stríða, þannig þetta kom mér dulítið í opna skjöldu. Síðan í gær, þegar ég leit þau fyrst, hef ég verið hálf. Síðan í dag, í hádeginu, er ég heil. Í flottustu kúrekastígvélum í Evrópu.

|

Björn Hildir Reynisson eðalmenni og stórvinur minn er 28 ára í dag. Til hamingju Björn! Björninn þykist vera að flytja eitthvað til útlanda, n.t.t. Danaveldis þar sem þau hjónaleysin ætla í nám. Ísland verður þá einum gítarleikaranum fátækara, sem er afskaplega miður. Í kvöld verður því afmælis- og kveðjugleði hjá Hildinum á Felix...síðasta tækifæri til að gleðjast yfir glamrinu hans Bjössa.



Í kvöld verður reyndar líka heljarinnar Deiglugleði hjá Rauða ljóninu, og síðan er hún Elísabet kennd við rokk með kveðjuteiti á Ölveri, countrystemmning, sælgæti og sígarettur á boðstólum. Aaaaallt að gerast.

|

18 ágúst, 2004

Í dag 18. ágúst eiga Reykjavíkurborg (218) og Stefán pabbi hennar Fanneyjar (58) afmæli. Amma mín heitin, Ásdís Ásmundsdóttir hefði orðið 92gja. Bra.

Kreisíness að gera í vinnunni í dag, pródúktið mitt var með óþægð, og magngreiningarsúlan sem mig langaði í hvergi nærri. Allt reddaðist þetta nú samt og ég náði að henda mér í leikfimi áður en ég rústaðist 'heim' í Blásalina til M&P í fjölskyldudinner. Við M&P (þó aðallega P), bræður og börn misstum okkur svo yfir landsleiknum. Gaman að því.

Annars er fjölskyldan mín svo ansi hreint fín. Kannski er ég að minnast á þetta fyrst núna af því ég er flutt...kannski ekki...en fín eru þau :D

|

17 ágúst, 2004

...ég er svááángúúúuuuur. Þetta er náttúrulega agalegt ástand í kotinu þar sem að jafnaði er mikil kota-sæla. Altso sæla í kotinu. Kotasæla í kvöldmat er hinsvegar barasta ekki alveg málið.

Í gærkvöldi var hinsvegar eitthvað allt annað uppi á teningnum. Hún Fannz gargandi snillingur gaf mér plástur í formi matarboðs, sem var svooooooo að gera sig. Þessi kona er náttúrulega bara skaðræði í eldhúsinu. Hún gæti haldið manni föngnum í gluggalausu herbergi með matseldinni einni saman. Framreiddar voru kjúklingabringur ofnsteiktar með fetaosti, grænum ólívum og pesto-i, geðsjúku villisveppa-risotto (sveppir sem Fannz btw týndi og þreif with her own bare) og ó svo grænu og gómsætu spínatsalati. Dreypt á hvítu með. snillllld. Ohhh, nú verð ég ennþá svengri af því að rifja þetta upp. Jæja, ætla að hitta sekkinn. Yfir og út.

|

15 ágúst, 2004

Um kvöldmatarleytið í gær bárust þau sannarlega gleðilegu tíðindi í hús að nýkjörinn formaður Heimdallar væri eðalmaðurinn Bolli Thoroddsen. Til hamingju blátt!!

Eyddi einmitt laugardeginum í bækistöðvum í prýðisfélagsskap í sjoppulegustu en jafnframt frumlegustu kjördeild sem ég hef séð. Um kvöldið buðum við nágranninn í raklett-matarboð í Selið hæða, og áttum frábært kvöld með snillingunum sem sátu í SHÍ 2001-2002, þeim Brynna, Obbu, Baldvini og Guffa. Enduðum síðan í blátt áfram trylltri gleði á pravdanu.

Hversu fínn er Jeff Buckley annars ha? Hversu vel fer hann með Haleluja? Er a.m.k. á repeat.

|

12 ágúst, 2004

Hjálpaðu mér út, mér finnst ég vera að kafna. Eins og veðráttan er yndisleg, þá eru svona heitar, sveittar stemmur, eins og hafa skapast hérna inná rannsóknarstofunni undanfarna daga, þannig óbærilegar að dísan er u.þ.b. að urlast úr pirringi. Var m.a. búin að ákveða að stimpla mig út rétt eftir hádegið í dag og valhoppa í sólinni....en nei, hplc-tækið sem btw heitir Depill, í samvinnu við sljóvgað heilabú dísu, hafa pinnað mig niður hérna í heila tvö klukkutíma. Alveg pirr. Nú eru reyndar bara nokkrar mínútur í það að ég sjái hvort það komi toppar á réttum stöðum (get ekki útskýrt)...og ef ekki...þá er það annar klukkutími innanhúss. Halelúja segi ég. Halelúja. Huggun harmi gegn, að þegar loksins ég kemst út, þá bíður mín sæti og einn kaldur á Austurvelli. Samantekt: Það er heitt, Depill er með hund, en lífið er gott.

|

11 ágúst, 2004

Allir að kíkja á síðu þessa föngulega hóps sem undir forystu Bolla Thoroddsen býður sig fram til stjórnarsetu í Heimdalli. Komið er að kynslóðaskiptum.

|

06 ágúst, 2004

Hér er að finna greinargóða færslu sem snýr að komandi Heimdallarslag, og þeim rangindum sem mótframboðið var beitt af hendi fráfarandi stjórnar síðastliðið haust. Hvet alla til að renna yfir þetta.

|

05 ágúst, 2004

Ég er alveg að uppgötva á hverjum degi hvað er yndislegt að vera einbúasteik. Selið hæða fer vel í mig og með mig. Er ósköp kát með að það sé föstudagur á morgun enda ekki alveg eins frábært og ég hafði áætlað að byrja aftur að vinna eftir sumarfrí..já og eftir Þjóðhátíð bara. Þjóðhátíð var ævintýri. Hættum að fengum ráðum við að fljúga á föstudeginum og tókum nætursiglingu Herjólfs í staðinn, sem var í meira lagi ógleðileg. Eiginlega bara púra ógleði. En frekar fyndin eftir á. Mönnum eins og Haraldhval hvali að þakka. En helgin varð snilldin ein. Held ég taki strassbourgartaktíkina á þetta: Þorlákshöfn, úrhelli, grænn Tryggvi, rækjusamloka, Haraldhval hvalur, ógleði, Haraldmáv mávur, Vestmannaeyjar, grill, leikurinn, Bavaria (ekki bjór), Svala Björk og reyklausi bróðirinn, Kirkjubæjarbraut, Ný dönsk, DJ Tryggvi, hvítt tjald, bolla, Freydís-pó, Villi ananas, bekkjabíll, brennan, brekka, Jónsi, face house, gallaúlpan, Andri og hvalurinn, Jens og ljósastjarnan, Þórlindur, rúmstuldur, Heiðrún haglega geit, græn dýna, Fannz með malandi kött í klofinu, skvísur í stofu, egó, fjöllin hafa vakað, mínus, reyktur lundi með smjöri, Hey ya, Bigga-söngur, sól, moon (not as in tungl), Hálft í hvoru, Baldvin og erfðabreytti kjúklingurinn, þoka, flugstöð, slumberparty, tær í hári. Langt frá því að vera tæmandi listi, en svona var stemmningin. Hvað eru....359 dagar í næstu? J

|