....og það var fjör. Fór í matarboð til Guðnýjar á föstudagskvöld, ásamt Sunnu og Þóru, og Gúgú töfraði fram ótrúlega máltíð. Henni tókst samt sem áður á sama tíma að setja lit í hárið á sér, klæða sig og mála. Fjölhæf. Kíktum í bæinn, en það var stutt og heldur endasleppt. Skrópaði samt sem áður í leikfimi, en fór þess í stað á rúntinn um suðurlandið, dýfði mér nettilega í Bláa lónið ásamt Fanneyju, og við hresstum okkur síðan við með grindvískri pylsu. Gott og blessað. Deiglupartý á Ásvallagötunni þá um kvöldið, sem endaði í maraþondansi á 22. Reglulega góður DJ í húsinu það kvöldið. Ef að hægt er að gefa skemmtunum einkunnir í samræmi við luftguitarmarbletti, þá fær kvöldið fullt hús stiga.
29 september, 2003
25 september, 2003
Ég og leysnihraðatækið höfum fundið friðinn í bili. Keyrðum saman fjögur próf í dag, og ég er ekki frá því að þetta gæti orðið farsælt. Lítið títt, nema þá helst það að mér tókst að keyra á móti umferð í dag. Jamm, sólin blindaði mig og jamm ég er ekki frábær bílstjóri. En kom sjálfri mér þó á óvart með ótrúlegu snarræði þegar ég sá þessa 2 flutningabíla koma íþjótandi í áttina að mér, og bakkaði eins og Bond útúr klípunni. Mamma og pabbi í Barcelona, og þau eru svo elskuleg að senda mér reglulega skilaboð um hið ljúfa líf á römblunni, og biðja fyrir kveðjur í kuldann. Hlæhlæ.
17 september, 2003
Keypti Sting safndisk í London og hann er þvílíkt að gera sig. Sting er nefnilega ekki bara tónlistarsnillingur, heldur eru textarnir hans bæði töff og meiningaþrungnir, og síðan syngur hann eins og ég veit ekki hvað. Nú svo á hann íslenskan hest og iðkar jóga! Þarf ég að segja eitthvað meira. Nýr diskur væntanlegur 30.sept. Annars finnst Fanneyju vera heljarinnar gloppa í tónlistarsmekk mínum, sem hún er sem villt manneskja að reyna að fylla uppí með Cure þessa stundina. Gef því sjéns.
Fer ekki ofan af því að það er svolítið undarlegt að vera komin í átta til fjögur pakkann, og vera ekki að slæpast í skóla. Ekki vont, alls ekki alvont, en e.t.v ekki algott heldur, samt gott. Hmmm. Eða er það kannski bara ég, sem hef búið við þann ótta stærstan alla mína tíð, að ég sé að missa af einhverju einhversstaðar....mögulega, líklega. Annar rythmi. Annar og betri líklega, a.m.k um mánaðarmót.
15 september, 2003
Ég er að vera skelfilega léleg í blogginu. Er bara í ruglinu. Helgin var góð, brunaði í bústað með Þurý og Fanney á föstudagskvöldið, og þar var mikið étið, drukkið og hlegið. Skírn hjá Jóhönnu Iðu og Hjalta á laugardeginum, en litlan fékk nafnið Leonóra Sóley. Síðan var matarboð hjá Freydísi líffræðinirði sem er á leið til USA, en þar var allt gamla góða liðið samankomið. Blandað var í víðfræga Haxabollu og tekið á því. Líffræðingar eru náttúrulega snillingar. Máluðum bæinn rauðan. Fór síðan í sex ára afmæli á sunnudagskvöldið, en þar tókst mér að skemma eina afmælisgjöf barnsins, mjög leiðinlegt, en svoldið fyndið. meira síðar.....súpa.
10 september, 2003
Ég fór og kíkti á sætan strák í gær. Hann var allt sem vonir stóðu til um og meira. Benedikt Kristinn sýndi sínar bestu hliðar, og þar sem hann lá á maganum á mömmunni sinni eftir sopann, var sannarlega eins og hann væri 'heima', og Ingunn ekki síður. Heima. Engin ný sannindi þar á ferð, en alltaf jafn beautiful.
09 september, 2003
Þegar maður er búinn að vera í berjamó allan daginn, þá sér maður ekkert nema ber fyrir sér þegar maður leggst til hvílu. Man þegar ég byrjaði í Strandasíld í den, sá ég ekkert nema kolaflök fyrir mér, -hauslaus koli. Um þessar mundir eru það leysnihraðatæki. Og HPLC-tæki, og pípettur, og glös og gúmmíhanskar. Fékk svo þvílíkt 'dejavú' í gær, þar sem ég sat í vinnunni og var að blanda lausnir. Var svona soldið að 'sulla' með búbbulínur og glös og þvíumlíkt, og hugurinn hvarflaði skyndilega aftur um svona ca. 20 ár, og ég var aftur orðin svona 5 ára og sat í vinnunni með mömmu uppá Landsa, með litla 'kittið' sem mamma hafði fundið til handa mér, sem samanstóð af alls kyns glösum og töppum og svona rannsóknastuffi. Sat þar alsæl og sullaði. Ég var oft í vinnunni með mömmu og sullaði við hvert tækifæri. Hló þegar mér varð þetta ljóst. Það hefur snemma verið hægt að spá um hvert stefndi. Kímdi yfir mömmu sem vissi sjálfsagt alveg hvað hún var að gera :) Skemmtileg pæling þetta, altso þegar börnin velja sér starfa foreldris.
04 september, 2003
Fjórða deginum í nýju vinnunni minni er lokið. Er alveg rosalega sátt, enda lofar þetta allt saman mjög góðu,- starfið, samstarfsfólkið, stemmningin...og svo skemmir ekki fyrir að hádegismaturinn er ókeypis og alltaf þvílíkt hollur og góður. Og endalaust kaffi á könnunni. Fór á nýliðanámskeið hjá Delta á öðrum vinnudegi, og tókst bæði að sofa yfir mig og villast áður en ég komst þangað. Síðan datt ég einhvern veginn inn í nettan fyrirlestrarsalinn, og rauf þannig pirruðu stemmninguna sem hafði myndast meðan beðið var eftir mér. Eins og þeir sem mig þekkja geta ímyndað sér, var ég ákaflega sátt við sjálfa mig á þessari stundu. En hei, fall er fararheill. Síðan er náttúrulega (auðvitað) Deltaskólinn í október, en þá er tækifærið til að sýna sitt rétta andlit, vera tímanlegur og helst klár. Nú svo er ég m.a.s komin með póstfang-> asdis@delta.is! Rúsínan í pylsuendanum er þó það ég er að öllum líkindum að fara að spila Deltabolta (fótbolti já) með Deltakonum á sunnudögum í vetur.....pínku fyndið. Nei, eiginlega alveg rosalega fyndið, en ég er staðráðin í að gefa því sjéns.
03 september, 2003
Verð að koma á framfæri þökkum til snillinganna sem hýstu okkur í London. Í litlu íbúðinni í Chiswick gistu nefnilega 8 manns um helgina. Gústi fær sérlegar þakkir fyrir kennslu í breskum glasalyftingum (boy they´re fast) og Doddi fær þakkir fyrir ....ummm...fáránlega þolinmæði! Takk öll....
Borg óttans. Ísland heilsaði mér með holdvotum x-vindstiga löðrungi síðla sunnudagskvölds. En það var svosem kominn tími til að vakna. London var draumur í dós, eins og alltaf. Ég var bara búin að gleyma því. Er hörð á því að hér eftir skuli aldrei líða meira en ár milli þess sem að ég yfirgef eyjuna köldu og gleymi mér einhversstaðar annars staðar. Helst minna. Furðulegt hvernig maður getur svo auðveldlega orðið samdauna öllu og bara svona helvíti sáttur við allt og allt, þegar maður þekkir ekkert annað. Ja eða kannski heldur þegar maður gleymir öllu öðru. Á við svo ótal margt í lífinu. hmmmm.
