Hmmmmm

20 júlí, 2006

Fjörðurinn fagri.....farin.

|

13 júlí, 2006

....ég er veik og ég er að drepast úr leiðindum. Mig lengir eftir heilsunni, smá sól, grillpartýi og góðu fólki. Hef ákveðið að staldra ekki óþarflega lengi við í vinnunni og því er Seyðisfjarðarferð á plönum um þarnæstu helgi, en hin árlega stórmenningarhátíð LUNGA fer fram þar þá. Fyrst mun leiðin þó liggja til höfuðstaðar norðurlandsins, þar sem ég mun staldra við eina nótt og pikka Dr. Akureyri upp. Síðan verður lagt í hann til fjarðarins fagra. Ég auðvitað hlakka mikið til, enda jafnast hreint ekkert á við Seyðisfjörð. Simple.

|

11 júlí, 2006

Komst óhult frá Serbíu og er komin heim í hæðarselið, komin heim með nýja skó. Tvenn pör meira að segja. Og það er við hæfi að klára ferðasöguna áður en íslenskur hnitmiðaðari raunveruleikinn hittir tjásíðuna mína.

Allavega. Ferðalagið til Belgrad var sannarlega skemmtilegt. Mér leið sérstaklega ævintýralega á stelpu-roadtrippi um verulega ókunnar slóðir. Get ekki sagt annað en að tóninn hafi verið settur þegar landamærunum sleppti, og tvær stelpur í spreng eftir þriggja tíma bið í bílaröð, þurftu að þeysast um litlu húsaþyrpinguna við mærin í leit að leið til að redda serbneskum dínerum svo hægt væri að komast á salerni-sem reyndist síðan vera hola í gólfinu. Kötlu fannst þetta auðvitað afskaplega sjálfsagt, þetta með holuna í gólfuna, en mér heimaalna plebbanum var í senn misboðið og brugðið. En bara í sekúndubrot :) Arfaslakir vegirnir tóku síðan við okkur og minntu helst á geðklofið bútasaumsteppi, með sínum holum, misfellum og þarlendum bílstjórum sem þykir greinilega ekkert sérstaklega vænt um lífið.

Það var sömuleiðis afskaplega sérstakt að keyra inn í borgina, um Nýju Belgrad og sjá 'kommúnistablokkirnar' bera við himinn hver upp við aðra. Svolítið eins og í bíómynd. Engin eru götuheitin í þessum hverfum...heldur er systemið meira svona Block 1, Block 2 osfrv. Smart. Borgin varð auðvitað fallegri er nær dró miðbænum, glæsileg hús og fallegar götur. Þangað til augu manns festust á sundursprengdum byggingum hér og þar. Það var fáránlega átakanleg sjón. Fáranlega. Þarna dvöldum við í 3 daga í frábæru yfirlæti þeirra Gísla og Nönnu- algjörir snillingar, takk fyrir mig! Í Belgrad er btw besti matur sem ég nokkurn tímann smakkað, og mikið góð hvítvín. Frábær túr, sem gaf. Ógjörningurinn við að reyna að setja sig í spor íbúanna þarna, og það furðulega og holla veganesti sem maður hafði með sér þaðan gerir þessa litlu heimsókn ógleymanlega. Að gera sér grein fyrir því að vegabréfið mitt - er mín dýrmætasta eign.

Við áttum síðan tvo daga í Búdapest, og nýttum þá af alefli að reyna að ná okkur í tan. Urðum rauðbrúnar og frekknóttar. Þá lá leið mín til Kaupmannahafnar að nýju, hitti Björninn minn og Regínu og fór á tónleika með Hjálmum í Kristjaníu...sem var frekar skemmtilegt. Kannski ráð að verða gömul þar?

Heimleiðin gekk síðan heldur brösulega. Fluginu seinkaði um 5 tíma, og dísan var að skríða heim í hæðarselið árla föstudagsmorguns. Heppilegt að gefa sofið allsstaðar -alltaf. Náði að sofa á flugvellinum, alla leiðina í flugvélinni og m.a.s. leiðina til Reykjavíkur. Nett viðbrigði auðvitað að fara svitaklepraður úr 30 stiga hita inn í flugvél og út í 4 stiga rugli. Góð góð ferð. Ég á gott fólk.

Til tíðinda bar um helgina en miklir vinir mínir, þau Ásta Sóllilja og Davíð Björn giftu sig á laugardaginn. Athöfnin var æðisleg og veislan ekki síðri, mikil hamingja í loftinu :) :)

Fyrsti vinnudagurinn var síðan í dag, og það var eiginlega scary notalegt bara að komast aftur í mitt litla cubicle. Enda svosem annað heimili. Var reyndar búin að sakna kaffivélarinnar heavy.

Þá er ítarlegum tjáfærslum líklega lokið í bili, enda eingöngu þarft að útlista ferðalög og upplifanir svo ekki gleymist. Leben ist gut. Já eða fabjúlös eins og Ingunn myndi segja. Bara spurning um að sækja í sig gleðina.

|