Lífið er gott
Það hefur kólnað örlítið í Búdapest, og maður farin að geta einbeitt sér að öðru en að draga andann og setja vökva ofan í sig. Katla stóðst prófið sitt með glæsibrag og hún kom valhoppandi heim og vakti mig með kampavíni. Kampavín í morgunmat er frekar næs byrjun á degi í fríi. Við lögðum síðan, eins fáklæddar og við þorðum af stað í bæinn og ákváðum að versla bara í loftkældum búðum. Ég var algjörlega búin að gleyma hvað er fáránlega ódýrt að lifa hérna, og ekki alveg jafnkát að sjá bolina sem ég keypti í H&M í Kaupmannahöfn, helmingi ódýrari í H&M búðinni hér. Jeij fyrir mér!
Í gær gerði ég kaup, sem ég get óhikað sagt að hafi verið bestu kaup sem ég hef gert um ævina. Stelpurnar fjárfestu í viftu! Það er óhætt að segja að andrúmsloftið hafi verið spennuþrungið meðan við bogruðum yfir dýrgripnum og rýndum í leiðbeiningar um hvernig skyldi skrúfa hana saman meðan svitinn bókstaflega dropaði af okkur. Momentið sem hún hrökk í gang mun ég grínlaust tengja björtu ljósi og englasöng. Þvílík gersemi. Bestu kaupin í heiminum. Þetta fer í kategoríuna 'daginn sem kók bjargaði lífi mínu'(sem ég held reyndar að allir hljóti að eiga).
Við borðuðum síðan dýrlega máltíð undir beru lofti, drukkum hvítvín og skáluðum milljón sinnum fyrir viftunni. Cheers to the fu**ing fan!!!!!
Þá var haldið á úti-skemmtistað sem er by far það skemmtilegasta skemmtistaðaform sem ég hef kynnst. Allt undir beru lofti, barir og dansgólf, og allir í tjúllaðri stemmningu- undir beru. Fyrri staðurinn sem við fórum á var svona cross between 22 og Þjóðhátíð (hversu skemmtilegt!!), og seinni staðurinn svona cross á Óliver og Þjóðhátíð. Grííííííðarleg stemmning.
Í dag vorum við að vinna í tan-inu í sundlaugagarði á Margret Island sem stendur út í miðri Dóná, ekki dónalegt það. Shit hvað ég er fyndin. Nú er hinsvegar tími til að taka power nap fyrir kvöldið. Yfir og inn.