Hmmmmm

30 apríl, 2005

Ég var í nafngiftarveislu í dag. Var þar tilkynnt að litlu rauðhærðu rúsínunni og nýju uppáhaldsvinkonu minni, hinni tveggja mánaða gömlu dóttur Rakelar Júlíu og Hrafns, hefur verið gefið nafnið Katrín Birna. Katrín Birna Hrafnsdóttir. Virkilega fallegt nafn. Vissi að ég gæti treyst því að barnið fengi almennilegt nafn.

Þessi tíska undanfarinna ára í nafnagiftum (Sól, Máni etc.) fer nefnilega beinlínis í taugarnar á mér. Ég vil stór íslensk, fjölatkvæða nöfn! (að því gefnu að orðið 'fjölatkvæða' sé til ;) )

|

29 apríl, 2005

Fanney Stefánsdóttir snilldarkvendi á afmæli í dag!!! Til hamingju beibikeiks!

|

28 apríl, 2005

Det er nemnlig det. Maggi frambyggði og Sigurður þjófur voru menn ofan af Skaga. Maggi átti frambyggða trillu, og Sigurður hafði lent í þjófnaði, þ.e. hann var rændur. Sagan er búin. Þetta var nóg til að kæta mig. Hvað væri maður eiginlega kallaður? Ásdís..uuuu..?

|

26 apríl, 2005

Var stödd í dag í afmæliskaffi hjá henni Guðnýju frænku minni í litlu ó svo sætu íbúðinni hennar á Fálkagötu. Sat þar á spjalli við frænkur mínar á öllum aldri og þáði veitingar. Sú elsta var 83 og sú yngsta 26 og þetta var allt bráðskemmtilegt, ættfræði og saumskapur meðal helstu umræðuefna. Harðangur og klaustur, og hulesaumur. Guðný hefur lofað að láta mig vita þegar hún selur. Þá gæti ég verið viljug til að kaupa.

Annars er heldur tíðindalaust af vígstöðvunum. Fallegur dagur og góður.

|

25 apríl, 2005

Sorgleg frétt. Þarna lýsa mínir fellowlíffræðinördar, Óli og Gunni bird í máli og myndum aðstæðum á vettvangi. Öööömurlegt. :(

|

Eftir überrólega helgi var ég engu að síður þreyttasta manneskja í Evrópu þegar ég loksins rankaði við mér um níuleytið eftir að hafa svefndrukkin slökkt á snoozinu. Þá var ég líklega búin að snooza í klukkutíma, og svaf svo annan til. Skemmtilegt. Er nb samt almennt mjög ástfangin af snooze-fítusnum.

Náði engu að síður að fara í matarboð, partý, fund, að gefa öndunum, rölta í kolaportinu, fara í ræktina, kaffiboð, bíó, matarboð og kaffihúsaferð. Svona afkastar maður miklu á rólegum helgum.

Fékk skýr skilaboð um það heima hjá mér í gær að ég liti greinilega ekki nógu vel út þessa dagana. Faðir minn, sem hefur aldrei á orði neitt um útlit mitt, hár eða föt, gat ekki setið á sér og spurði mig í bænatóni hvort ég gæti ekki fengið mér eitthvað svona brúnkukrem! Þau væru jú rosalega sniðug! Ég væri heldur ræfilsleg. Ég var nú bara alls ekki sammála, en þá sjaldan hann opnar sig með slíka hluti hlýtur honum að vera alvara. En mín hvíta frekknótta húð er samt nákvæmlega engum öðrum að kenna en honum og hans rauðu genum. Hann sjálfur er hinsvegar alltaf bleikur á litinn, og það finnst honum bara frísklegt og fallegt. Jæja, fer í málið.

|

24 apríl, 2005

Harpa Hrönn, mín gamla og kæra vinkona á afmæli í dag. Hún er stödd í Ástralíu ásamt sínum heittelskaða og bitlausa Guðjóni Braga þessa dagana, og ég sendi kveðjur yfir hnöttinn. Congratz beibikeiks:D

|

23 apríl, 2005

Kannski maður ætti að æfa íslenska glímu. Þó það væri ekki nema bara fyrir búninginn. Já og útbúnaðinn, altso mjaðmaleðursfítusinn. Sem ef tekinn væri úr sínu heilaga glímubúningssamhengi, gæti mögulega verið hryllilega misskilinn og að líkindum talinn þjóna einhverjum allt öðrum tilgangi, í einhverju allt öðru samhengi en hann í raun gerir. Hverjum veit ég svo sem ekki.

Það væri hægt að leggja metnað sinn í glímu, já eða eins og Spilverkið kyrjaði, í það að míga úti.

Sófakvöld í stóra mjúka misgula yndislega sófanum 'mínum' framundan. Sex in the city sería nr.2 er að gera undur fyrir dísuna um leið og hún furðar sig á hversu mörgum SITC fimmtudagskvöldum hún hefur greinilega misst af. Hamingja.

|

15 apríl, 2005

Countdown. Helgin handan við horn. Grámyglulegur föstudagurinn að renna í kvöld. Þreyta dagsins skrifast á tíð útstáelsi vikunnar og síðbúna för í sæng í gær. Fór nefnilega á late show í bíó í gær, Et hul i mitt hjärte (eða hvernig sem það er skrifað). Hún var bara alveg ferlega súrrealísk og ógeðsleg. Það sást alveg glitta í skemmtilegar pælingar, en þær fengu eiginlega ekki nauðsynlegt andrými fyrir viðbjóðnum. En hei, auðvitað þurfti maður að sjá herlegheitin.

Lúsaðist um hádegisbil, lúin og alltof södd í söngtíma (dauðadómur að syngja saddur) og það var sem endranær stórskemmtilegt. Skylark að pússast til, og ég skal hundur heita ef þessi skóli lufsast ekki til að taka mig inn.

Helgin verður tekin í rólyndinu, enda er dísan búin að eyða 3 kvöldstundum í bíó og einni á tónleikum (Fóstbræðratónleikar sem voru btw geðveikir, ánægð með pabba og brósa!) í vikunni! Ég kveð, yfir og út, góða helgi.

Þetta blogg var fyrir Magga boss.

|

12 apríl, 2005

Mér telst til að ég sé á fjórða kaffibollanum í dag, og það er hádegi. Þessi vika ætlar að mjatla heldur letilega af stað eftir helgina. Deigluárshátíðin var annars frábær, og það var dansað fram undir morgun. Silfurskórnir hafa hinsvegar verið úrskurðaðir ódjammhæfir. They were made for sitting. Endaði án gríns á hestbaki (samt ekki á hesti) . Sem reyndar hlýtur að hafa litið alveg sérstaklega afkáralega út, og er svona eftir á að hyggja alveg tryllingslega fyndið.

Fór á Hótel Rwanda í gær í bíó. Snilldar kvikmyndahátíð í gangi. Mæli með henni. Hún var alveg ótrúlega áhrifamikil og vel gerð. Ótrúleg.

|

08 apríl, 2005

Föstudagur í húsi. Ó svo gott. Ein af mínum aðaluppáhalds'athöfnum' handan við hornið. Hún er látlaus í sjálfu sér. Fer fram á 2gja til 3gja mánaða fresti. Felur í rauninni bara í sér það að einhver fiktar í hárinu á mér í ca 3 klst. Klippir, strípar, nuddar, þvær. Síðan fæ ég kaffibolla og sit í alsælu og les upp þann skammt af slúðurblöðum sem safnast hafa saman síðan ég var þar síðast.:D

MEGAS LX í gær. Miðum var reddað á síðustu stundu og var dísan sérdeilis ánægð með það, enda voru tónleikarnir frábærlega skemmtilegir og reyndar kvöldið allt. Ég þarf alveg að eignast tónlistina hans.

Engin lognmolla. Árshátíð Deiglunnar er síðan á laugardaginn, og ég hlakka geðveikt til, enda fátt sem toppar góða kvöldstund með þessu góða fólki. Jibbíjei. Góða helgi!

|

05 apríl, 2005

Hérna má sjá hana Sunnu stórvinkonu mína, verðandi lækni og algjöran snilling að störfum á Mungeli sjúkrahúsinu á Indlandi. Hún er þar ásamt skólasystur sinni á einum af fátækustu svæðum Indlands að vinna. Bréfin frá henni eru þannig skrautleg að maður í fyrsta lagi trúir því ekki að aðstæður til aðgerða og aðhlynningar geti verið svona frumstæðar og því síður að hún sé þarna mitt í hringiðunni. Maður fæddist með silfurskeið, og er skammarlega ómeðvitaður um það- sem og hversdagsleika annarra í heiminum. T.d. á Mungeli spítalanum. Tékkið á síðunni hennar Sunnu og á þessum myndum sem voru teknar á dögunum.

Þar sem að pælingu dagsins er lokið, get ég upplýst það að úr mínum silfurskeiðaryfirborðslega heimi er allt gott að frétta. Stórgott laugardagskvöld í tilliti tónleika og selskaps. Lexía helgarinnar; 'Eigi skal hvítvín innbyrða með hraða þeim er sæmir bjór'. Hananú.

|

01 apríl, 2005

Miðasalan á Franz Ferdinand byrjar á morgun!!! Hjálmar-bigband með tónleika á Nasa á morgun. Jei.

Er að eiga mitt fyrsta föstudagskvöld í langan langan tíma heima hjá mér yfir imbanum. Þetta er alls ekki svo slæmt! :D

|