Það bregst aldrei að þegar maður lendir á klakanum eftir dvöl erlendis er það alltaf veðralegur niðurgangur sem tekur á móti manni.
Dísunni langaði reyndar ekkert sérstaklega til að koma heim, en stærsta ástæða þess er líklega nettur verkkvíði sem virðist vera að láta á sér kræla í takt við verkefnin sem virðast ekki gera neitt annað en að hrannast upp.
Ferðin mín var eins og vitað var fyrirfram algjör gargandi snilld. Gestgjafarnir dekruðu við okkur og þessi helgi sem einkenndist af jólabjór, stelpustemmu, öfgakenndum verslunarleiðöngrum, nettilegu djammi og litlum svefni gleymist seint. Stimplaði mig að lokum útúr skandinavísku stemmningunni (sem þó fékk á sig nett tyrkneskan blæ undir lokin) sofin og sæl.
Kann mínum elskulegu ferðafélögum og gestgjöfum beggja vegna sunds bestu bestu þakkir fyrir frábæra samveru. Ég er rík.
....er rokin á Marú að hitta hryllilega skemmtilegt fólk í sushi og hvítu. Maður er manns gaman.
Rokk og ról.