Hmmmmm

28 maí, 2003

Fífulind hefur verið pakkað í kassa, og um helgina verða Blásalir teknir uppúr þeim. Skemmtilegt að flytja. Hmmm.

|

Það var gott að komast útúr bænum á laugardaginn, og Árnes stóð sem fyrr fyrir sínu. Grilluðum, fórum í brennó, horfðum á euro, fórum í pottinn, gaman. Ljóst að fyrrverandi formaður stúdentaráðs kemur hér eftir ekki nálægt mér með bolta, en vinurinn skaut mig út eftir mikinn hasar, þannig að á lærinu á mér er brennóboltalaga blettur með skært geislandi marblettasól í kring, slíkur umfangs að ég fékk vandræðalega mikla athygli í búningsherbergi Hreyfingar í gær. Hef trú á að fleiri gætu verið illa útleiknir eftir kappann.

|

23 maí, 2003

Við Snær og Salóme mættum í grillveislu Vöku í gær í dýrindisveðri og skemmtum okkur hið besta. Litlar manneskjur gerðu pylsum og gosi sérlega góð skil. Allt að gerast í Vöku þessa dagana en í dag flykkist Vökufólk uppí Árnes í vorferð Vöku, en þar verður jafnframt Eurovisionpartý aldarinnar annaðkvöld. Ég tek samt trompið á þetta og mæti bara í gleðina :)

|

Starfsmannaspjaldinu mínu var breytt í vikunni. Þar sem áður stóð 'Háskólanemi' stendur nú 'Náttúrufræðingur' ! Var frekar ánægð með þessa breytingu á alla kanta, en þó kannski helst fyrir það að blessaðir sjúklingarnir fá ekki svitaköst af því að lesa á spjaldið meðan sprautan er munduð. Það er gott. Enda er það alkunna að blóðtökur fræðinga eru allt annars eðlis og betri heldur en blóðtökur nema.

|

19 maí, 2003

Glimrandi helgi hjá dísunni. Fór á tónleika í Iðnó á föstudagskvöldið, en þar var Eivör Pálsdóttir Færeyingur með meiru, að troða upp ásamt hljómsveit. Það var upplifun. Hún hefur alveg hreint ótrúlega rödd, og hefur skapað sér mjög sérstakan stíl, með færeyskum rímnablæ í bland við einhverja svona ísraelska eða tyrkneska sönghefð...æ erfitt að segja frá því. En mín táraðist a.m.k tvisvar, þó það sé kannski enginn sérstakur mælikvarði per se, þá var hún alveg mögnuð- og reyndar hljómsveitin öll. Ég hef t.d aldrei séð einn mann handleika hljóðfærið sitt eins og kontrabassaleikarann, sem hreinlega elskaðist með bassanum. Svo tók hún smá senu þar sem hún söng bara, ekkert undirspil, enginn texti, bara improvise og fílingur, og þetta var svona sena eins og steikta söngatriðið í Fifth element. Jæja nóg um það. Uppnumin endaði ég auðvitað á skralli með Heiðrúnu. Katla kláraði síðan loksins skjaldbökuritgerðina, og bauð í litla teitlu á laugardagskvöldið. Það var mjög fínt, fyrir utan það að það var gestur þarna sem vildi ekki leyfa mér að spila Nirvana, sem ég var í mjög miklu stuði til að hlusta á, heldur laumaðist alltaf í græjurnar og setti Bob Marley á, -í þrígang! Fórum á Hverfis, Kaffibarinn, og enduðum á 22. Allt saman afar gleðilegt. Annars á pabbi gamli afmæli í dag!! Hann er argasta naut. Til hamingju :)

|

14 maí, 2003

Það er skrítið að vakna til þess að hafa enga dagskrá. Vaknaði reyndar við bróðurdóttur mína þennan morguninn, en Salóme ætlar að vera hjá okkur í tæpa viku þar sem að foreldrarnir skruppu til Parísar í einhverja rómantík í gær. Eru reyndar svo lukkuleg að verkfallaglaðir frakkarnir eru í gír þessa dagana, þ.e allar almenningssamgöngur liggja niðri osfrv, líkur á rómantískum hrakförum. Annars skrapp ég á bókasafn í gær, n.t.t Bókasafn Kópavogs, keypti kort en fregna svo að bókin sem ég var að eltast við er ekki bara ekki inni-heldur er hún bara ekki til. Velti því fyrir mér hvort að viðskiptin við Bókasafn Kópavogs hafi verið vanhugsuð. Ráfaði samt um safnið og endaði með Pétur Gunnarsson eins og hann leggur sig í poka, hæstánægð með það, og er semsagt núna loksins, 10 árum eftir fyrstu tvær, að klára þriðju bókina í Punktur,punktur trilogíunni. Seisei. Nú ætlum við mútta að skreppa með litlu skelluna í Smáralindina, en þar gerist allt.

|

12 maí, 2003

Jubilation. Kláraði veiruruglið tíu mínútur í tólf, og valhoppaði út í sumarið. Þannig séð. Prófið var ekki eins og ég vildi hafa það, reyndar ólíkt öllu sem áður hefur verið hjá Þormarnum, en ég hef ekki geð í mér í dag, frekar en nokkurn annan síðasta prófdag til að fárast yfir því, gleðigleði. Þannig að í dag má segja að ég hafi lokið námi....í bili. Ef fer sem horfir mætti ég sjálfsagt óðar fara að kalla mig sameindalíffræðing eða eitthvað álíka virðulegt :) Byrja í blóðtökunum 15.maí, og ætla að hafa það ískyggilega notalegt-, en skemmtilegt þangað til.

|

10 maí, 2003

Furðulegur dagur í dag. Steikt 'fyrirmiðdegi' undirlagt af ónæmisendaspretti, próf dauðans til hálffimm, kosið rétt í Salaskóla, verðlaunamálsverður á Vegamótum, labb í eftirmiðdagssól á Laugavegi, botnlaust slæmur og endalaus húmor. Ægileg fýla yfir því að fá ekki að njóta kjördags og vera einhversstaðar í góðra vina hópi í kvöld. Óstjórnleg gremja yfir því að þurfa að setjast aftur við bækurnar í kvöld. Er bara ein súr mama. En hei, tveir dagar eftir. hmmm...as it goes.

|

09 maí, 2003

Mamma bauð okkur Katli í mat í aften. Fengum dýrindis fiskrétt og franska súkkulaðiköku í eftirrétt. Ótrúlega góð tilbreyting frá Freschettapizzunni, oxpyttinu, og Toropastanu. Kemur þá í ljós að settið er bara að fara á djamm bæði kvöldin um helgina! Usss, búin að plögga kosningapartý og alles. Londonfarinn mætti síðan í Hæðarselið með toblerone og bjór, gleiður eftir góðan túr. Langar alveg rooooosalega að kíkja aðeins til London. Tékka á stemmunni í Putney og svona. Við ketill áttum annars semi-pródúktívan dag, vorum aðeins í ruglinu, en uppskárum nokkrar mjööööög góðar hugmyndir sem verða nánar útfærðar og framreiddar eftir próf.

|

Valþór Ásgrímssson, ónæmisfræðilegur þjáningabróðir minn er 23gra í dag. Til hamingju með daginn Valli!

|

08 maí, 2003

jæja nú finnst mér þetta orðið gott. Ónæmisfræði hefur með öllu misst þetta skemmtilega element sem ég minntist á áður í einhverju bjartsýniskasti. I can not- I repeat- can not- wait till monday....garg.

|

07 maí, 2003

Pródúktívur dagur! Ónæmisfræði er nefnilega skemmtileg. Það munar um það. Nákvæmlega ekkert í fréttum. Nema hvað að sólheimabrosið hefur ekki farið af Homeodomain, en hann er að fara til London á morgun. Okkur er samt alveg sama. Nákvæmlega sama.

|

05 maí, 2003

Rólegur dagur í dag, lærdómslega séð. Kíktum í afmælisveisluna til Heiðrúnar í gær, á Laugavegskrána, og fengum okkur einn, þrjá bjóra. Það var fínt. Enduðum á 22 og tókum smá snúning. Vorum kannski aðeins lengur en við ætluðum, það var að minnsta kosti orðið albjart úti þegar við lufsuðumst þaðan út. Sumarfiðringur. Er með öllu sannfærð um að teitlur, glatt fólk og snúningur sé ultimate uppskrift að pródúktívum komandi dögum. Eða eitthvað.

|

03 maí, 2003

Heiðrún Hallgrímsdóttir stórvinkona mín er 25 ára í dag. Til hamingju með afmælið stelpa. Heiðrún var fyrsta manneskjan sem ég kynntist á 1.skóladeginum í Seyðisfjarðarskóla, báðar 11 ára, þar sem hún var ófeimnasta tryppalínan á svæðinu. Og er enn. Snillingur.

|

Það er heldur tíðindalaust af vígstöðvunum. Lífið gengur sinn vanagang í Kötlulandi, eins og góðvinur minn nefndi aðsetrið í Hæðarselinu svo skemmtilega. Klukkan hringir á morgnana og við skiptumst óskipulega á að reka hvor aðra á fætur, misjafnlega löngu eftir áætlaðan upprisutíma. Sú sem er fyrri til setur vatn á ketilinn, opnar bláberjaskyrið og kemur því fyrir á stofuborðinu ásamt Special K pakkanum. Hin staulast þá fram, og mætir beint í morgunmat og Ísland í býtið, og misgáfuleg svefndrukkin komment um menn og málefni falla. Lærdómssyrpa. Katla fylgist eins og haukur með klukkunni, og hefur slíkt nef fyrir vel tímasettri eldamennsku að leitun er að öðru eins. Á slaginu 12 er hádegismatur borinn fram og af einskærri tilviljun eru Nágrannar alltaf í sjónvarpinu á sama tíma. Tilneyddar fylgjumst við með raunum íbúa Ramseygötu, og ég verð nú að segja að Flick og Mark hafa leikið Steffi heldur grátt, þó mér finnist Mark í raun koma verst útúr þessu, verandi algjör bleyða. Þá tekur við önnur lærdómssyrpa, og um fimmleytið lætur Katla mig fara í bodypump eða eitthvað álíka með sér. Sem er mjög gott. Þangað til hún lætur mig gera armbeygjur. Þær æfingar eru sannarlega komnar einhversstaðar annarsstaðar frá en af himnum. Þá er haldið heim og meira lært. Ágætis prógramm þetta.

|