Hmmmmm

27 september, 2002

Helgin: föstudagurinn hefur fram að þessu farið í það að reyna að lesa mig í gegnum heimildar fyrir ritgerðina mína og fyrirlesturinn í tengslum við hana sem ég er að fara að flytja næsta föstudag. Ég á að fjalla um himnufleka (lipid rafts), tilurð þeirra og tilgang, og tengsl þeirra við boðflutninga í frumum, sér í lagi tengsl þeirra við insúlín og T-frumur. Akkurat núna veit ég mest lítið um þetta allt saman, en næsta föstudag verður ekki hægt að sjá hvar ég enda og himnuflekavísindi byrja. Í kvöld er útgáfugleði á Astró, í tilefni af útkomu fyrsta tölublaðs Stúdentablaðsins þetta skólaárið, undir ritstjórn nýs ritstjóra Eggert Þórs. Ég hugsa maður láti sjá sig þar, enda ekki von á öðru en að það verði skemmtileg samkunda. Ég er hinsvegar harðákveðin í að vera á bíl, og láta áfenga drykki eiga sig að sinni því morgundagurinn og allir hans himnuflekar bíða mín, og vænta mín spakrar og vel upplagðrar. Svo er afmæli annað kvöld, en hún Erla Ósk Vökustelpa verður 25 ára. Þá ætlar stelpan hinsvegar að gíra sig upp, fara jafnvel í flatbotna skó, og taka alvarlegan snúning á dansgólfinu. Ég sé sunnudag fyrir mér í Kentucky veislu, og í eðlilegu framhaldi nachos-shit veislu hjá Kötlunni. Hmmmhmmm. Góða helgi.

|

Í dag komst upp um mig. Ég er ekki lengur eina manneskjan sem veit af þessari síðu. Maður þarf svo sem ekki að vera stjarneðlisfræðingur til að sjá að e.t.v hefði verið ráðlegra að kenna síðuna við eitthvað annað en nafnið mitt, fyrst ég ætlaði að halda henni úti í "lágum prófíl". Man það næst.

|

25 september, 2002

Ég sé að ég er engan veginn að standa mig í þessu bloggi. Það er næstum liðinn mánuður síðan síðast, og í samanburði við hina reyndari bloggara eins og t.d. Munda og Tomma Hafliða, er ég greinilega hálfgerður kettlingur. Málið er greinilega að blogga stutt og laggott, skjóta fram skoðunum um fólk og fréttir líðandi stundar, og vera fáránlega vel að sér í hvað allir sem þú eitthvað kannast við og eru líka að blogga, eru að segja á sínum síðum. Þetta virðist vera heljarmikil vinna, og ég sé ekki fram á að komast nokkurn tímann í flokkinn ´eðalbloggari´ ....snuff. En ég held þó ótrauð áfram í mínu bloggi, enda veit enginn af þessari síðu, og ég hef þetta allt útaf fyrir mig...

|

05 september, 2002

Þá er næstum liðinn mánuður síðan ég bloggaði eitthvað síðast. Ágústmánuður fór eins og vera ber, hjá ungu fólki á kafi í félagsmálum, í að taka sumarprófin. Það var eitt af því ömurlegasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur um ævina, enda alger ógjörningur að ætla sér að kveðja sumarið í byrjun ágúst og verma skrifborðsstólinn í staðinn. Ekki smuga. En þetta gekk allt saman að lokum, og reyndar gekk þetta m.a.s bara mjög vel. Skólinn byrjaði svo 27. ágúst, og það var eiginlega alveg rosalega gott að byrja aftur. Það er alltaf jafn gaman á Grensásnum og frábært að hitta félagana alla eftir aðskilnað sumarsins. Þannig að þrátt fyrir nokkra persónulega lágpunkta, virðist allt stefna í eina uppsveifluna enn, guði sé lof. Vaka er komin á fullt skrið niður í skóla og veturinn leggst rosalega vel í mig frá þeim bæjardyrum séð. Var ég einhvern tíma búin að kommenta á hvað það er gaman að vera í meirihluta? Ef ekki, þá er rosalega gaman að vera í meirihluta. Það kom einmitt út stórglæsilegt Vökublað núna í vikunni og planið er að halda mikla Vökugleði á Hverfis á föstudaginn, til að fagna útgáfu þess og blása í leiðinni vetrarstarf Vöku af stað. Það verður eflaust mikil gleði. Föstudagurinn virðist reyndar vera að yfirbókast hjá mér, þó ekki tvíbókast eins og oft, því ég er að fara á tónleika með pabba í hádeginu, svo er vísindaferð í Vífilfell, bjórkvöld á Grensás og að lokum partýið á Hverfis....þessar félagslegu byrðar....djók,þetta er frábært, hlakka til.

|