Hmmmmm

27 október, 2004

Katla mín Guðrún bloggar um truflaða Ungverja hehehehe

|

...og dísan er komin í frí, og er í annað skipti í þessum mánuði að leggja land undir fót. Föt komin í tösku, nýji passinn á kantinum og nú er bara að tjilla með rautt og telja niður. Deiglan hefur sögulega reisu til Boston á morgun, og á næstu dögum munu deiglupennar detta inn hver af öðrum í gleðina í Boston. Ný heimsálfa bætist í áfangastaðasafnið á morgun, og ég hef á tilfinningunni að reisan öll, félagsskapurinn og forsetakosningarnar verði efniviður skemmtisaga fram á efri ár. Jibbíjei!!!

|

20 október, 2004

Mikið eru pulsur alltaf góðar. Með yfsiloni. Matseljan veik heima, varamatseljan í fríi...þannig það var hent í pulsu með öllu. Hreint afbragð.

jamm, annars er heldur tíðindalaust af vígstöðvunum. Bara farin að telja niður í hina sögulegu Boston reisu....og get ekki beðið. Er jú reyndar að fara í fyrsta skipti á danssýningu á fimmtudaginn, aðalæfingu hjá Íslenska dansflokknum...gæti verið áhugavert. Prófa það. Prófa allt. Hmmmm.

|

15 október, 2004

Afmælisbarn dagsins: Hafa fágaðan smekk en hika samt ekki við að hneyksla og egna aðra. Þau hafa stíl og eru vel upplýst um það sem vekur áhuga; leiðtogar sem samferðamenn laðast að og vilja líkja eftir.

Hmmmm.

Dagurinn er síðan ekki síður merkilegur fyrir það að í dag eru 85 ár síðan nekt konunnar var í fyrsta skipti afhjúpuð á hvíta tjaldinu.

Það sem er þó verra er að í dag er jafnframt haldinn hátíðlegur í annað skipti á Íslandi, dagur dreifbýliskvenna!!! Án gríns. Heyrði viðtal áðan við bóndakonu í Árborg, sem ætlaði að sitja á útsaumsmarkaði eða eitthvað ámáta, og sötra te í tilefni dagsins. Reynum að gleyma þessu.

|

13 október, 2004

Koma sooooooo! Ísland er að sökka í fótbolta. Sökka. Ég sem keyrði eins og vindurinn með lýsinguna í útvarpinu heim til þess að horfa uppá þetta. Hvað er ég að segja? Setjum sökkið í annað samhengi. Ég sem flaug til Möltu til að horfa uppá þetta. Hvað er í gangi?

|

12 október, 2004

Malta. Var snilld. Heldur stuttur túr kannski, en á móti kom að hver mínúta var nýtt til fullnustu. Komum síðkvölds á fimmtudegi og smelltum okkur aðeins á fyndna barinn á móti hótelinu, sem var allur undir berum himni og bar hið skemmtilega nafn 7 rooms með vísun í 7 hvíttjaldaða make-out bása sem voru á svæðinu. Huhumm.

Föstudagurinn var þéttplanaður og byrjaði á skoðunarferð um elsta kjarna Möltu, Medina. Fengum góðan guidaðan túr um ótrúlega fallegan hnapp af fallegum byggingum, skreyttustu kirkju í Evrópu og så videre. Nett steikt að á þessari 14x27 km eyju búi 400.000 manns, og að á þessu litla svæði sé að finna meira en 330 kirkjur. Trúuð þjóð.
Fórum síðan og skoðuðum Actavis bækistöðina á Möltu. Ég fór og skoðaði nýju rannsóknastofuna þeirra, sem var glæsileg. Maður varð hálfabbó. Alveg 6 vigtar, 5 stinkskápar, nóg pláss, fullt af græjum...og allt í þessum dúrnum. Fannst svoldið sérstakt að á labbanum unnu aðallega ungir karlmenn....sem er ekki slæmt...en alveg í öfuga átt við kynjahlutföll á löbbunum hérna heima. Veit ekki alveg hvað veldur.
Síðan hófust leikar Actavis-Ísland vs. Actavis-Malta. Í stuttu máli, töpuðum við bæði körfubolta og fótbolta, en unnum blakið. Skúturnar (stelpurnar í Skútuvogi) töpuðu reyndar öllu sínu í fótboltanum....og var ekki kátina með það. Tek fram að í engu er hægt að kenna markvörslu dísunnar um! Eftir leikana komu allir saman, örugglega hátt í 200 manns, og haldin var matarveisla og partý undir berum himni. Maltnesk/íslensk hljómsveit skipuð actavisfólki var á staðnum og það ómar enn í hausnum á manni....'we are one'....'koma svo'...tralalala. Sökum almenns hressleika sumra hljómsveitarmeðlima sem og lífsgleði (athyglissýki..?) sumra gesta, var hljómsveitin á tímabili skipuð Betu kjuða, Hjalla gleðipinna og ...huhm..dísunni. Held það sé það fyndnasta sem ég hef séð, þegar ég sneri mér við milli laga, og sá Elísabetu snilling sesta við trommurnar, mundandi kjuðana. Hún hefur nb aldrei snert trommur en sló eins og herforingi í gegnum heilt lag. Gat varla sungið þetta var svo fyndið. Allavega gott gott kvöld, og stemmningin var heavy góð.

Laugardagurinn fór bara í rólegheit, setu á fallegum veitingahúsi með útsýni yfir litríka höfn, og púlstöku á Valetta. Síðan var haldið á landsleik. Það var gíííííífurleg stemning og eftirvænting í mannskapnum, sem kom valhoppandi að leikvanginum til þess eins að komast að því að ekki var hægt að nálgast bjór á staðnum! Hvað er það! Jæja, leikurinn var hundleiðinlegur, og hvatningarkórinn söng orðið sorglega undir lokin. Skúturnar og aðrir actavisstarfsmenn létu þetta eðlilega ekki stöðva sig og máluðu bæinn rauðan. Þvílíkur snilldartúr og eðal samstarfsfólk. Sniiiiiiiild. Skúta nr. 7 segir yfir og út.

|

11 október, 2004

Mánudagur eftir Möltu er sko ekki mánudagur til mæðu. Hvað eru mörg m í því? Malta fær alveg 12 á skalanum 1-10. Meira síðar.

|

06 október, 2004

Veðurspá í húsi. 25-30 °C og sól á Möltu um helgina. Hmmm.

|

Nú er bara réttur sólarhringur í að við tryllum út á Leifsstöð og tyllum okkur þar á barinn, við actavispæjur og gaurar. Fljúgum kl 16, lendum 23 að staðartíma og þá er spurning um kojara. Á föstudaginn verður farið í skoðunarferð í elstu byggðir Möltu, farið í Actavisverksmiðjuna, heilsað uppá landslið Möltu og Íslands, og Maltverjar síðan rassskelltir í íþróttum( ekki landsliðið altso heldur maltverskir actavisstarfsmenn). Held jafnvel að ég fái að standa í marki eða eitthvað ámáta. Hátíðarkvöldverður á ströndinni, þar sem m.a. er boðið uppá kanínur. Glyslífi Möltu kannað. Á laugardegi verður farið í búðir. Og á bar. Svo á landsleikinn Ísland-Malta, þar sem Skútuvogskonur munu að líkindum fara hamförum. Djamm. Alltof snemmbúin heimferð á sunnudaginn. Þetta hljómar ekkert illa ha??!!

|

05 október, 2004

bwhaha, Valli með viðbjóðslega fyndna færslu síðan á föstudaginn.

|

Líffræðingurinn var í þessu að tapa veðmáli við lyfjafræðing um meltikerfi kanína. Lyfjafræðingurinn sem er nb. kanínueigandi, hefur sýnt skjalfest fram á að kanínur losi sig við tvær gerðir af númer 2. Önnur gerðin er þurr og concrete, hin í blautari kantinum en þá síðarnefndu éta þær og melta aftur. Tvöfalt meltikerfi. Líffræðingurinn taldi þetta frámuna vitleysu og veðjaði því blákalt 3 bjórum að þetta fengist ekki staðist. Ég hef tjáð lyfjafræðingnum að ég ætli að færa honum kanínulöpp frá Möltu.

|

01 október, 2004

Gangurinn í kvöld. Það er fertugsafmæli á kantinum, Möltuupphitun á Gauknum, og Hjalli í starfsmannafélaginu er með hljómsveitina sína Mát á Hressó. Fyndið að vera farin að fá boð í fertugsafmæli, þ.e. hjá einhverjum öðrum en skyldmennum. En skemmtilegt.

..en þar sem nettur föstudagsfiðringur er kominn í hús..segi ég , endaðu dagur endaðu...og góða helgi!

|

haha! Í dag fékk ég í hendurnar 2 farseðla. Annan til Möltu og hinn til Boston. Nú vantar bara farseðilinn til Búdapest og þá er ég all set. Land lagt undir fót. 6 dagar og 2 fótboltaæfingar í Möltu.

|