Hmmmmm

28 febrúar, 2003

Við unnum!!!!!!!!!!! Segir allt sem segja þarf. Glæst.

|

27 febrúar, 2003

Signed, sealed, delivered....................I´m yours!! Sigur 2003!!

|

21 febrúar, 2003

Föstudagur á ný. Sem er gott. Árshátíðin er á morgun í einhverjum sal í Kópavogi, og það stefnir í metmætingu í líffræðinni. Ánægð með mitt lið. Gleðibankaáformin urðu reyndar að engu, svona þegar rann af fólki, þannig að skemmtiatriðið okkar verður við sjálf..svo verður Óli Palli á græjunum, en það lofar góðu, enda er hann í sérlegu uppáhaldi hjá líffræðinemum. En svo er líka hljómsveit, sem heitir Stóri Björn, veit ekki alveg með það. Store Bjorn. Pabbi var einu sinni að vinna í Tuborg verksmiðjunni í Köben. Pabbi, tveggja metra maður, sterklega byggður og röskur gekk auðvitað til verks sem hann væri í akkorði en var þó fljótlega kallaður á teppið. "Store Björn, vi må snakke lidt sammen. Problemet er, Store Björn...du arbejder for meget, for hurtigt. Vi tror det hele har slem influens på moralen på denne her arbejdsplads"...ok ég er aðeins að magna söguna hérna, veit ekkert hvað þeim fór á milli, en mergurinn málsins var að pabbi, sem þeir kölluðu Stóra Björn var að gera útaf við vinnumóralinn með þessum dugnaði. Þeir gáfu honum bara bjór og sögðu honum að slappa af. Danir eru náttúrulega snillingar.

|

17 febrúar, 2003

Tíminn líður hratt, á gervihnattaröld...það var ákveðið á föstudaginn í vísindaferð, að Gleðibankinn yrði þema skemmtiatriðis líffræðinema á árshátíðinni um næstu helgi..þetta var eðlilega allt ákveðið í huglægri ölmóðu, en ákvörðunin stendur víst sama hversu lítið mann lystir að taka axlapúða- og legghlífaglysdans fyrir aðra líffræðinga+nokkrar aðrar raungreinaskorir. Kannski fæ ég þessu hnikað. Fórum semsagt Náttúrufræðistofnun á föstudaginn, og það var mjög áhugavert. Hef reyndar komið þangað nokkrum sinnum, t.d í Reykjavíkurferðalaginu í 7.bekk og svona..en aldrei fengið bjór þar fyrr. Gunni bird greinilega að gera góða hluti þar. Trítluðum svo þaðan á Reðasafn Íslands, sem var sehr áhugavert, sér í lagi fyrir áhugafólk um líffræði. Enduðum á Hverfisbarnum og tókum trylltan dans. Frelsandi.

|

Heimir Óskarsson öðlingur og eðalmanneskja er 25 ára í dag. Til hamingju Homeodomain. Heimsi hélt uppá afmælið með pompi og prakt á laugardaginn og var í góðum gír. Katlan bar fram snittur og Homeo skenkti bjór og allt fór tiltölulega vel fram. Kíkti líka í teitlu til Andra skaðræðisgrips og þar var fín stemma, en hélt snemma heim, enda mæting í vinnu daginn eftir. Stuð.

|

11 febrúar, 2003

Ég skrapp niðrá Ísótópastofuna og hitti stelpurnar og þ.á.m Bibbu boss (Sigurbjörg Sigurðardóttir) sem var sko aldeilis búin að rekja ættir okkar saman. Við eigum sameiginlegan forföður í 6.lið að ég held, sem hét Árni Jónsson. Hann var prestur, eða eins og segir í söguágripinu um hann "slarkprestur". Árni forfaðir minn missti nefnilega prestsskap um sextugt, árið 1723, fyrir drykkjuskap og illyrði á jólanóttina. "Árni græddi mikið fyrstu búskaparár sín og keypti jarðir, en gerðist svo drykkfelldur og svakafenginn". Svo er líka talað um son Árna hann Ólaf en hann var sýslumaður í Haga á Barðarströnd, hann þótti hinsvegar óvæginn og kærleikslítill. Það er aldeilis. Hver ætli verði manns eftirmæli?

|

10 febrúar, 2003

Ég elska mánudaga. Sérstaklega þegar maður hefur snúið sólarhringnum duglega við helgina fyrir. Baldvin Reyr hélt uppá 25 ára afmælið sitt á fös á Sportkaffi-og það var boðið uppá bjór....og það var mjög fínt, og bíllinn sem ég kom á hreyfðist ekki meir það kvöldið. Gaman að sjá Badda, en mín fyrstu kynni af honum þegar við vorum ellefu ára á Sey, voru þegar hann kveikti mjög slysalega í sjálfum sér fyrir framan húsið mitt, sem segir einhvern veginn allt um Badda:) Vaka var reyndar með Alþjóðakvöld á Vegamótum á föstudaginn líka, kíkti þangað, fór svo á 22, renndi þá niður á Astró og endaði á Hverfis...maður gerir víðreist. Dagskráin hófst um fjögur á laugardegi, á kokteil, og svo fór ég þaðan í 2x25 ára afmæli hjá Erlu Rut og Palla. Það var ótrúlega fínt, gaman að hitta gamla og góða, en það er af sem áður var, hamsleysið í Seyðfirðingapartýum. Aldri og síbatnandii hjúskaparstöðu skarans kennt um. Enduðum á Celtic,sem var fínt, jafnvel þó svo að húsvörðurinn í KR-heimilinu væri ekki að syngja.

|

03 febrúar, 2003

jæja ég þarf að reyna að vera duglegri við þetta bloggblogg.

|

Um daginn rakst ég á lesningu í ljósritunarherberginu á Grensás, sem ber nafnið Fjöllyndi og sæðissamkeppni, og fjallar um atferlisfræði dýra í tengslum við mökun. Margt af þessu er svo auðvelt að heimfæra uppá menn að það er fyndið, enda menn dýr. Mjög fyndið. Smá sýnishorn; "Kvendýr flestra tegunda eru fjöllyndar, þ.e. makast við mörg karldýr en hagsmunir kynjanna stangast oft á þegar kemur að mökun. Karldýr og kvendýr vilja sem mestan árangur með sem minnstum kostnaði. Til að tryggja hámarks æxlunarárangur, reynir karldýrið að makast eins oft og hann getur og með eins mörgum kvendýrum og hann getur. Því fleiri karldýr sem kvendýrið makast við, því meiri verða gæði afkvæma hennar." Gaman að þessu.

|

Ég fór í leikhús í síðustu viku, og sá Með fulla vasa af grjóti. Magnað. Tveir menn, Hilmir Snær og Stefán Karl, sköpuðu heilan heim úr engu á 2 tímum, og kölluðu á sama tíma fram allt litróf tilfinninga, algjörir snillingar. Mæli með þessu.

|