30 mars, 2004
|29 mars, 2004
Góða helgina um garð gengin. Fanney bauð mér í mat í pétur á fös, og stóð stúlkan sem endranær undir væntingum. Dýrindis lasagna (nb. með gráðaosti...fagnaðarerindið berst æ fleirum til eyrna), og rautt og blautt á kantinum. Á lau var árshátíð Deiglunnar, og var eins og ætla mátti með þann snilldarhóp, mikil gleði og mikið gaman. Datt í bráðan dansgír á leikhúskjallaranum, og tók í alvörunni köngulóna og gluggaþurrkumovið, án þess að vera í ljótudansakeppni....sem er ákveðið áhyggjuefni. En mánudagurinn hefur verið til furðulega lítillar mæðu. Átti nefnilega alveg sérstaklega skemmtilegan fund við (h)eldri mann, djassista nokkurn á fimmtu hæð í blokk í Fellahverfinu...sæll, Ásdís....sæl, Árni....spilum.
26 mars, 2004
Við Ásta Sóllilja skelltum okkur á þessa fínu tónleika í gær á Hressingarskálanum. Rannveig 'Idol' var þar mætt ásamt snilldargítaristanum Óskari með auðmelt og gott djassprógramm. Stelpan var drullugóð, félagsskapurinn ekki verri og bjór er góður. Elska föstudaga. Búin að fá snilldarkaffið mitt (bolli nr 2, allt að gerast) og köku í kroppinn og ég segi bara búha!
25 mars, 2004
...'sit á kínverskum veitingastað í Færeyjum akkurat núna'....tilkynnir Elvar Snær (Elli Lomm) mér. Það er eitthvað kómískt við það.
23 mars, 2004
France var semsagt æði. Sveitt myndu sumir segja. Ferðalagið gekk vonum framar, enda lögðu gestgjafarnir á sig ómælt erfiði til að koma okkur heilum til og frá Hahn flugvelli, sem af einhverjum stórkostlega furðulegum ástæðum er kenndur við Frankfurt. Völlurinn er barasta hvergi nærri Frankfurt!! Jæja, Strass er frábær. Það er bara þannig. Ekkert verra að borgin tók á móti okkur með sól og 20 stiga hita. Ekkert betra en að sitja úti á kaffihúsi og heyra óm af fiðlu og harmonikku í bland við frönskuna, sem ég nb. skil ekkert í, svala sér á góðum drykk, og furða sig á því að þessi nærri því súrrealíska sena sé hversdagsleiki einhverra. T.d Kötlu. Hehe. Við fjórar fræknu létum enga stund fara til spillis, og nutum í mat og drykk, en létum síðast en ekki síst eins og fífl allan tímann. Sem er gott. Við fjórar fílelfdumst síðan með kærkominni viðbót tveggja íslenskra valkyrja í teymið, þeirra Birnu og Erlu, sem settu algjörlega punktinn yfir i-ið á þessari ferð. Algjör snilldarreisa. Of langt mál kallar á upptalninguna að neðan sem lýsa stemmunni ágætlega. Fanney segir líka frá.
Warpzone, sviti, Baden Baden eða bara Baden, Hahnflugvöllur, erotica shop, Kehl, Rín, 7 klósett, ostur, gráðaostur, sól, bjór, tepru-Frakkar, indverskur matur, Tapas, Mojitos, St. Patrick´s day, Nanna, Gísli, Jeff, Reed, Antoine, frönsk kvefpest, 300 tröppur á Dómkirkjutopp, awsome, Evrópuráðið, græn/gul/fjólublátt mötuneytið þar og smókingklæddur þjónn, gráðaostur, vatnspípur, draumar, furðuleg skot, Gordon blue, bjórsúlan hennar Fönnsu, prumpuleir, steikti geitaosturinn hans Harðar og hvítvínssmökkun, La Treu, reiðingar á hjóli, Nelson, Carbomb, mexíkósk veisla Birnu og Erlu, ‘ég hef aldrei’, Dooley´s, ljótudansakeppni, bjórkassahattar, og pönnukökur með súkkulaði a la Birna, petite France, spooning....og svo mætti lengi telja. Búha!
22 mars, 2004
..komin heim i heidardalinn ur algjorlega pottthettum tur, med nokkur fronsk ord, hardsperrur i maganum og nyjar vinattur i farteskinu. Nanar sidar..
16 mars, 2004
jæja...þá fer að styttast í þetta...við Fannsa og Rakel Júlía erum komnar í gírinn og munum bruna til KEF innan skamms...ferðaplön hin síðari enn óljós, og munu að mörgu leyti byggjast á þeim sannfæringarkrafti/ljóskutilburðum sem stúlkunum mun vonandi takast að framkalla fyrir framan ryanair-deskið á Stansted. Krossum fingur. Annars er það bara bless Ísland í bili, og ég mun rapportera næst frá France!
15 mars, 2004
Á morgun..Frakkland..ahhhhhh. Hlakka geigvænlega til, þó að ferðalagið í heild sinni sé ekki alveg niðurneglt, og þá kannski sérstaklega síðustu 300-400 kílómetrarnir...mér hefur verið tjáð að ég muni ekki framar koma nálægt bókunum ferðalaga....en hei, gaman að ferðast!
13 mars, 2004
..ég vann því miður ekki limbókeppni ómega farma þetta árið. Limbókóngur var enginn annar en húsráðandi, hann Þórður og limbódrottningin var hráefna-Elísabet. Í salsapartýinu var líka auðvitað ráðist í margaritugerð og verður að segjast að óvissa um hlutföll og aðrir byrjendaörðugleikar blandaranna, kom út á besta veg! Dansinn var stiginn, og síðan haldið í bæinn og þar tjúttað fram eftir nóttu. Gaman. Í kvöld býður Fanney (25) heim í Pétur, og hlakka ég mikið til að sjá hann fullbúinn og fallegan.
11 mars, 2004
Langur dagur í dag. Danskur fyrirlesari með fyrirlestur um HPLC súlur á ensku...er ekki uppskrift að frábærum degi. En við fengum reglulega góðan þorsk í hádeginu, og síðan má heldur ekki gleyma því að sólin braust fram í dag.
'...the here and now is a gift! That´s why I call it the present.' hehehe (slæddist til mín úr Malcolm in the Middle þegar ég rásaði milli stöðva áðan)
....ég er að fara á súlunámskeið á morgun. Á Grandhótel. Það eru amk 6 kaffipásur á dagskránni. Umræddar súlur tengjast þó hvorki dansi, né heldur eru þær festar í loft annars vegar og gólf hinsvegar. Tengjast heldur ekki vængjuðum dýrum. Þýðir lítið að reyna að útskýra súlu, en ég er samt að fara á súlunámskeið. Steikt færsla ég veit. Yfir og út.
09 mars, 2004
Ég er að lesa Handbók Epiktets, um gæfuna og smiði hennar. Snilldarlesning. Í eftirmála er dregið saman svo: , Hann trúir því og boðar það, að menn eigi það undir sjálfum sér, hvort þeir verða hamingjusamir eða vansælir, þeim er nóg að temja sér rétt horf við því, sem við ber, gera sér ljóst, hvað þeir eiga og hvað þeir eiga ekki, hvað þá varðar um og hvað ekki. Er engin fýsn þá svo máttug, enginn harmur svo sár, að réttur skilningur sefi ekki hverja fíkn og bæti ekki hvert böl.' Hmmm. Ég myndi segja að maðurinn hafi nokkuð til síns máls.
Hrönn Sigurðardóttir eðalmanneskja á afmæli í dag! Til hamingju Hrönnsa mín! ....rosalega eiga margir vinir mínir afmæli fyrri parts árs..ég er bara í því blogga heillaóskir. Ég á t.d enga vinkonu eða vin, sem er vog eins og ég, að ég held...skrýtið. Með 'ubbsiloni'.
Þessi veðrátta undanfarið er algjört rugl! Finn að þetta er farið að fara í geðið á fólki almennt í kringum mig. Veðrið fer reyndar lítið í mig, en það er samt engan veginn á mína ábyrgð, ekki mín pöntun. Nú er bara vika í Frakklandsför, og það er ekki laust við að það sé nettur spenningur komin í stelpuna. Eina planið sofar, er að knúsa Kötluna og njóta í mat og drykk í góðum félagsskap. Annars tíðindalítið af vígstöðvunum. Reyndar er skemmtilegt að minnast á það, að litla fjölskyldan hans hans Júlla bróður er að pósa í nýju SPRON auglýsingunni sem var t.d aftan á fréttablaðinu í gær...ægilega sæt.
07 mars, 2004
Í dag er stór dagur í vinahópnum. Í nótt eignuðust Erla Rut og Palli frumburð sinn. Lítill drengur andaði að sér tilverunni í fyrsta skipti kl 3.29 í nótt. Reyndar var hann ekki svo lítill, heldur heilar 19 merkur og 55 cm. Sögur fara af myndarleika drengsins, sem ku vera ljós yfirlitum. Með einbeittum vilja megi þó sjá glitta í rauða slykju á hári, sem undirstrikar svo ekki verður um villst faðerni stráksa. Til hamingju, þetta gátuð þið!
05 mars, 2004
Titringur færist yfir Austfirðinga, enda er komið að því. Austfirðingaball á Players í kvöld. Ekki ómerkari hljómsveitir en Sú Ellen og Dúkkulísurnar spila fyrir dansi. Getur einhver misst af þessu? :)
04 mars, 2004
Elvar Snær Kristjánsson stórvinur minn á afmæli í dag!
Gat státað mig af því í lok dags í gær, að hafa setið tvenna tónleika á sama kvöldinu. Fóstbræður klikkuðu náttúrulega ekki, frekar en fyrri daginn, þó svo að ég hafi ekki fengið óskalagið mitt. Ánægð með mína menn. Að þeim tónleikum loknum lá leið mín niður á Næsta bar, en þar var bandið Hundur í óskilum með gjörning. Ég náði nú reyndar bara seinni hálfleik af þeirra prógrammi en þvílík snilld! Það er hreinlega gremjulegt að hafa ekki vitað af þeim fyrr. Alltof fyndið.
03 mars, 2004
jæja beautiful miðvikudagur. Fór í kaffi til bumbunnar í gær, og fann Dr. Þóru á staðnum. Drukkum mangóte, mauluðum heimabakað brauð og spáðum í spilin. Stúlkurnar voru ánægðar með nýja lookið á stelpunni, en stelpan er enn að melta. Bregður í hvert skipti sem ég lít í spegil...en ok, gaman að breyta til. Á dagskrá kvöldsins eru tónleikar Fóstbræðra, og ég bara hlakka til. Ég vonast að sjálfsögðu eftir því að fá 'Brennið þið vitar', en það ku vera það útjaskað að líkur er á að það sé borin von. Ég skil ekki hversu útjaskað það lag getur verið. Ég fæ a.m.k gæsahúð og læti í hvert skipti. Vi forse.
01 mars, 2004
Ég vaknaði nokkuð spræk til þessa mánudags, sem eru fréttir. Að líkindum vegna þess að ég var útsofin í meira lagi, og vel við heilsu, sem er annað ástand en var á mér um helgina. Fór í ótrúlega fína Beygluteitlu hjá Þorbjörgu, þar sem kjaftað og hlegið og 'dreypt' á tequila, og atlaga gerð að Hall of Fame. Mér fannst ég nú reyndar standa mig með ágætum, en býst við að ég þurfi aðeins að spæsa upp senuna næst. Laugardagurinn var hörmung ein, og ég skil ekki ennþá hvernig ég fór að því að koma mér í vinnuna um miðbik dags, gera sitthvað vitrænt meðan ég var þar, og svo aftur uppí rúm, án teljandi áfalla. Marði það þó að kíkja í 2 útskriftarveislur um kvöldið. Í dag er hugurinn hjá Erlu Rut, sem bíður og bíður eftir að bumbubúinn geri sig reiðubúinn fyrir útrás, já eða innrás, eftir því hvernig maður lítur á það. Held það gæti gerst í dag.
