Málaðu fjósið, já mánaljósið. Fagur er hann á þér fjaðrahamurinn.
30 janúar, 2006
|27 janúar, 2006
Frá því að það rofaði til hjá dísunni í morgun hefur verið 'óþolandi' hressleiki í gangi. TGIF.
Vikan hefur gengið vel, og verkefnisáætlunin komin á gott skrið hjá hópi G. Á dagskránni er fjölskyldustemma í Blásölunum yfir Idol í kvöld, og Actavis Idol á morgun. Idolhelgi. Söngur og gleði fer hönd í hönd. Án undantekninga.
....það opnaðist smá glufa hérna í vinnunni til að fara að vinna á Möltu í nokkrar vikur...hversu skemmtilegt væri það!!!!...en skólinn kallar. Ef það opnast önnur svona glufa eftir 2.maí...þá er ég FARIN!
Góða helgi góða fólk!
22 janúar, 2006
Ich bin bissý krissý. Skóli ALLA helgina og vikan vandlega pökkuð. Nettur hnútur í maga. En það er svona vont-gott. Sem á endanum er yfirleitt bara gottgott.
Fékk D-vottunar skírteinið mitt um helgina. Jeij. Ich bin certified project management associate. Rokk.
17 janúar, 2006
ahhhhh ég elska sex and the city...einhver lána mér 6.seríu pronto. Ég elska líka þegar ég er ótrúlega dugleg í ræktinni. Ég elska hinsvegar ekki að festa bílinn minn í innkeyrslunni heima.
...ok. Nú spyr ég (og hef reyndar spurt nokkuð marga í dag, en engin svör fengið). Hvað eru ýtukarlarnir að bardúsa þegar þeir eru búnir að ýta aðalgöturnar??!!! Af hverju er ekki búið að ýta uuuuu uuuu uuuu t.d. Selið hæða? Ég meina halló! Er ýtunum bara lagt þegar búið er að hreinsa strætóleiðirnar?! Ásdís er ekki ánægð. Ég er afskaplega góðu vön frá Seyðisfirði, en þar var mín gata þokkalega rudd (ekki strætóleið- reyndar engir strætóar hehe) og það sem meira er (og töluvert frábært) þá var innkeyrslan að húsinu mínu rudd líka. Þetta síðasta gæti þó mögulega hafa verið fyrir vinskap pabba og Gvendar á gröfunni - en það er sama. This is doable. Ég vil láta ryðja innkeyrsluna mína. Anyone?
16 janúar, 2006
..monday monday. Ég átti eitthvað svo mikla klassahelgi. Hitti svo margt gott fólk, og átti fullt af quality-tíma með góðum vinum. Vinnupartý á föstudaginn, og matarboð hjá Sólinni á lau. Síðan er ekkert eins hressandi og byrja sunnudag á ritstjórnarfundi og vera svo bara að dúlla sér í bænum á kaffihúsum í kjafti með vinkonum, jafnvel með glanstímarit á kantinum ALLAN daginn. Dýrmætt frelsi að þurfa ekki að vera neins staðar, þurfa ekki að gera neitt, þurfa ekki að sinna neinum...og enda svo helgina í bíó með popp og kók. Klassi.
13 janúar, 2006
Ég er svo lánsöm að þekkja ótrúlega vel gerða og frábæra manneskju sem heitir Drífa Kristín, og hún á afmæli í dag. Til hamingju Drífa mín.
11 janúar, 2006
|08 janúar, 2006
....mér finnst rockstar INXS hryllilega skemmtilegt. Kannast samt við dularfullt lítið af lögunum þeirra, nema hvað eitt af mínum uppáhalds var sungið í þættinum í kvöld...'Need you tonight', illa töff lag sem bara verður ekkert leim með árunum. Omg hvað J.D. er flottur!!!!!
Það var sem ég vissi. Þegar þessi fyrsta vika ársins er frá, er dísan komin á skrið. Búið að útrýma allri óhollustu úr selinu hæða (bæði hent og innbyrgt), og ræktin á dagskrá á morgun (búið að vera dáldið morgen, morgen, nur nicht heute í þeim efnum :S). Kom 2006 kom.
...verð að láta eina sögu af Lóu dóttur bróður míns fylgja. Smá viðtal.
"Hvað heitirðu?"
"Ég heiti Salóme Júlíusdóttir sykurpúði"
"Já er það. ...og hvað finnst þér best.....að borða?"
"mmmmm...mmmmm....sko...kakó....mmmm...snjór.....mmmmm...mmmm og hor."
...jebbs. Hún veit sínu viti.
06 janúar, 2006
TGIF!!!!!!!!....friday...I´m in love dururururururur.
Björn nokkur Hildir er á landinu Ísa. Þess vegna er teitla á Sólvallagötunni í kvöld. Þar munu koma saman systkinin kennd við Bank, Jónas frændi (aka Nazaret), Úlfar frændi (Úlli rjúpa), Sófí mágkona og fleiri góðir til skála og mér segir svo hugur að gutlað verði á gítar, hristur hristar og sungið í röddum. Ég hlakka gífurlega til að ná loks í skottið á Birninum áður en hann stingur aftur af til Danmerkur og skilur okkur undirspilslaus eftir enn á ný - enda hefur hann um árabil átt sæti í topp 5 yfir uppáhaldsfólkið mitt í heiminum.
05 janúar, 2006
|02 janúar, 2006
Nýtt ár. Og ekkert með það. Það er bara komið nýtt ár. Eins og nýr dagur.
Svaf ekki í nótt fyrir hósta, og er því veik heima í dag. Vesalings ég.
'Vesalings ég' var yfirskrift á einni dagbókarfærslu Þráins Bertels í síðustu viku.
"Vesalings ég
Ennþá veikur. Ég er sármóðgaður yfir því að fá pest. Ég verð eiginlega aldrei veikur. Eins og það sé ekki nóg að vera þunglyndissjúklingur og alkóhólisti?"
...það er unaðslegur eiginleiki að geta haft húmor fyrir sjálfum sér. Jafnvel lífsnauðsynlegur.

