Fimmtudagur fyrir versló....og veðrið sökkar. En hei, ef maður lifði af Þórsmörkurgeðveikina fyrr í sumar verður þetta leikur einn. Það er kannski meira spursmál um að lifa af Herjólfsferðina til 'meginlandsins' (þannig útlagt fyrir Brynjólf Ægi) í nótt! En dísan kveður í bili, og óskar öllum gleðilegrar þjóðhátíðar!!
29 júlí, 2004
26 júlí, 2004
Ó hvað er gott að vera í fríi! Elska það elska það elska það. Ekkert ljúfara en að slökkva á snoozeranum sem maður stillti viljandi til þess eins að geta slökkt á honum....og fara aftur að sofa. Það var heldur ekki vanþörf á fegurðarsvefninum, enda mikil ljóta í húsinu eftir annasama helgi. Hittumst á föstudagskvöldið í Pétri, líffræðinördar nokkrir, við Fannsa, Katla, Valli og Gunnar Þór auk annarra bráðnauðsynlegra óbíólógískra fylgifiska. Alltof skemmtilegt fólk. Það var bullað og breikað ( í alvöru), þar til við ultum niðríbæ og enduðum, ótrúlegt en satt, á Kaffi List. Þar var engin röð, geðg tónlist og gott fólk. Færðum okkur síðan á 22..ligesome vanligt. Mikið grín, mikið gaman. Gott kvöld.
Á laugardagskvöldið bauð Gúgú skvís, okkur Sunnu og Þóru Kristínu heim í nýju íbúðina á Hjarðarhaganum í grill og tjatt. Stakk síðan af til að hitta Kötlu, Antoine snilling og Fannz á ölstofunni..og auðvitað þróaðist saklaus viðrun mín í eitthvað ofsafengnara á augabragði. Enduðum í frekar skondinni stemmu á 22..again. Jæja, hef ákveðið að horfast í augu við það að undangengin djammalda í hafsjó dísunnar er rétt að ná risi sínu og mun ekki falla að fjöru fyrr en haustar..og það er fínt. Það er ungt og leikur sér, ekki satt?
Hvað ætlar fólkið annars að gera um versló? Ég segi bara 'lífið er yndislegt' og ALLIR á þjóðhátíð. Jæks...hlakka til.
23 júlí, 2004
Ég er komin heim í Hæðarselið, ég er komin heim í nýja nettengingu. Halelúja. Er búin að rembast við það síðan á fimmtudaginn í síðustu viku að koma mér huglægt í þetta sumarfrí sem ég hef skv. stimpilklukku verið síðan þá. Maður kann ekkert að vera í sumarfríi...en ég held þetta sé að koma hjá mér.
Við Heiðrún brunuðum fyrir síðustu helgi austur á Seyðisfjörð. Keyrðum landið þvert í ótrúlega fallegri sumarnótt og það stendur sem sagt er, Ísland bezt í heimi. Skemmtum okkur konunglega á LUNGA, Hildirhans trylltu lýðinn á hótelinu á föstudagskvöldinu og þar voru margir gleðilegir endurfundir og mikið stuð, og á laugardagkvöldinu var ball í Herðubreið. Listahátíðin heppnaðist vel og það var frábært að sjá iðandi lífið í bænum þessa daga. Hefði þurft að blogga mörgum sinnum á dag til að segja frá skemmtilegu fólki og senum...en læt þetta nægja. Tók reyndar nokkrar mblogmyndir.
Katla er komin heim!! Sem er frábært. Ætlum að nýta tímann þar til Búdapest býður henni búsetu til hins ýtrasta, og ekki er það ónýtt að fá ketilsbrag á fríið sitt. Príma.
13 júlí, 2004
Nú hef ég misst nettenginguna heima hjá mér, og er eðlilega bara hálf kona. Algjört möst að plögga ADSL a.s.a.p. Helgin var heldur mögnuð, og ég get óhikað sagt að í dag sé þriðji í eftirmálum ólifnaðar, svo ég reyni að orða þetta pennt. Fór á föstudaginn og grillaði í Pétri í góðum hópi en trillaði mér síðan niður á Eggertsgötu í bleiku gleðina,þar sem góðar konur voru samankomnar. Marði þó fundarsetu á laugardeginum hjá stjórn starfsmannafélagsins um miðjan dag, og síðan var Deiglugleði hjá Þórlindi um kvöldið. Bæjarröltið eftir þá gleði var mjööög skondið, og skemmtilegt. Einn dagur í frí!! Hef heyrt að það sé allt að gerast á Seyðisfirði um helgina...
09 júlí, 2004
Vá hvað það er gott veður, og ósköpin sem mig langar héðan út úr vinnunni minni og út í helgina. Huggun harmi gegn var þó hádegishléið, en við fengum sendar pizzur, fórum í ríkið og keyptum rauðvínsbeljur og sátum í sólinni og þóttumst vera í fríi. Nettur hittingur kringum víðfrægt grill Fanneyjar í Pétri áætlaður, svona rétt til að hita upp fyrir bleiku kampavínsgleðina hennar Ingunnar. Sem ég verð hress á fundum á morgun. Hmmmmmmmmmmmmmm.
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Ingunn Guðbrandsdóttir a.k.a. superwoman. Til hamingju, hlakka til bleikra kampavínsskála!
06 júlí, 2004
Þetta er frekar fyndið...þetta að 'búa ein'-dæmi er að sökkva inn. Dawning up on me. Hef oft búið ein áður..fyrst 16 ára...en núna er þetta bara eitthvað svo endanlegt ha. Diet Coke í ísskápnum, hrökkbrauð og kotasæla á matseðlinum...og í fyrradag höfðu fyrir aaaaaalgjöra tilviljun, tíu fingur upp til guðs, safnast saman cosmopolitan, marie claire og Bridget Jones II á náttborðinu mínu. Hvað er það? Hmmmmmmmmmmm. I´m every woman.
Komnar nýjar myndir af Salóme (Lóu, 2gja og hálfs) litlu og afa á hmmmbloggið, en við fórum á róló í dag í sólinni. Litla skrípið var í góðum fíling og kunni sig best á háhesti á 2gja metra afa sínum. Á leiðinni heim fann hún sig síðan knúna til að líta hæðnislega niður á mig, úr ca. 2.30 m hæð og segja 'huh þú ert lítil Ásdís'. Það fannst afa fyndið. Það er fyndið. Það er fyndið þegar svona litlar manneskjur pikka upp húmor, og læra að stríða og spila á fólkið sitt. Jæja auðheyrt að barnið á mig alla.
Eyddi kvöldinu með svo miklum eðalskvísum, MR gellunum, Dr. Sunnu, Dr. Þóru Kristínu og Guðnýju skvísupæ. Kíktum á nýju íbúðina hennar Guðnýjar á Kvisthaganum og hentumst síðan á Austurvöll og löptum í okkur síðustu geisla sólarinnar og bjór.
01 júlí, 2004
Nú er allt að gerast í Hæðarselinu. Íbúðin er óðum að taka á sig vistlega mynd og verða svolítið dísuleg. Komst að því í dag að IKEA er ÆÐISLEG búð. Æðisleg. Hef nú til dæmis eignast mína fyrstu uppþvottagrind..og það sem meira er..hún er svöl. Vissi ekki að þær gætu orðið svalar. Jæja, keypti líka glæsilegan glerskáp sem við Fannsa höfum sveittar eytt kvöldinu í að setja saman...villandi leiðbeiningar segi ég, villandi leiðbeiningar ;)! Glerskápurinn, ásamt þvottagrindinni og marglita sturtuhenginu, baðdótinu, bastkörfunum, pottagrindinni og handklæðunum hafa nú fengið sinn stað í selinu...og svei mér þá, ef mér líður bara ekki eins og heima hjá mér.
En að öðru, því þann 29.júní fæddist Hildi og Gumma lítill gullfallegur prins. Til hamingju elskurnar mínar!
