...tölvan mín er að deyja :( buhuhuhuhu. Hún er fjögurra ára gömul þessi elska og er nú hætt að kæla sig og gefur þess í stað frá sér hljóð sem minna á dauðastríð og kastar á skjáinn viðvörunum til mín í tíma og ótíma. Ég er reyndar búinn að plögga specialista til að koma í húsvitjun, en mér segir svo hugur að samfylgdinni gæti verið lokið. Þrátt fyrir að hljóðið í henni hafi alltaf verið bilað, geisladiskadrifið óvirkt í ca.2 ár, hún tengist ekki þráðlausu neti, og sé eilífð að starta sér upp....þá elska ég hana samt.
29 ágúst, 2006
24 ágúst, 2006
..ég kallaði til móður minnar þar sem við stóðum um hálfsexleytið í dag við bílinn minn á P-stæði á troðnum Laugarveginum og hvorug okkar fann klink í fyrstu atrennu...'eigum við ekki bara að taka sjénsinn á þessu?'.......
........heyri ég þá kallað hárri röddu 'NEI! ekki gera það! Þeir eru hérna á fimm míntúna fresti!!...af vegfaranda sem ásamt spúsu sinni leit ekki út fyrir að hafa farið í sturtu í mánuð og myndu þau líklega að öllu jöfnu teljast af allri umgjörð sinni vera óreglufólk. Ég kallaði til baka 'ok takk kærlega' og spurði mömmu aftur hvort hún væri örugglega ekki með neitt klink.
Parið hugulsama snarstoppar þá, konan rífur upp pyngjuna sína - sem er örugglega at all times dálítið mikið léttari en mín, grefur upp fimmtíukall, labbar til mín og réttir mér. 'Heldurðu að þetta dugi?'. Næsta orðlaus, þakkaði ég kærlega fyrir mig og við kvöddumst. Þetta ágæta par sem ég stimplaði fast við fyrstu sýn, sýndi þarna meiri náungakærleika en ég hef orðið vitni að lengi í borg óttans. Þau toppuðu góðan dag, og voru mér þessi ágæta raunveruleika núllstilling sem öllum er nauðsyn öðru hverju. Magnað.
23 ágúst, 2006
...það féllu lauf í Hæðarselinu í kvöld. Þá er víst komið haust. Og ég er að fíla það. Hef einhverja mjög skemmtilega tilfinningu fyrir þessum vetri. Það er eitthvað í honum þessum. Hmmmm.
18 ágúst, 2006
Lítil, ómerkileg en kómísk saga af fjölskyldunni Bank.
...ég var stödd í mat hjá foreldrunum í gær og hnaut þá um óvenjulega tóma þvottakörfuna sem situr alltaf inni á baði á mínu heimili. Verandi flutt að heiman og að hafa fyrir þann tíma sjaldan séð botninn á tómri þvottakörfunni sá ég mér til mikillar undrunar hlut þar sem ég hef ekki séð í fjöldamörg ár, en sá samt einhvern veginn síðast á botni annarrar þvottakörfu í einhverju af þeim húsum sem við áttum heima í á fyrri árum. Þessu fylgdi ákveðið æsku-flashback, eins og þegar maður óvænt hnýtur um leikfang sem skipti mann máli í lífinu á einhverjum tímapunkti, en maður hafði gleymt að væri til. Svona ámáta.
Á botninum lágu úr sér gengin og handónýt ca. 25 ára skíðagleraugu sem annar hvor bróðir minn hafði átt. Mjöööög lógískt.
Ég tók þau upp og veifaði þeim fram í stofu og spurði fjölskylduna hvort við ættum ekki örugglega að leyfa skíðagleraugunum að sitja í svona 25 ár í viðbót á botni þvottakörfunnar sem þau virtust greinilega orðin órjúfanlegur partur af. Enginn hafði greinilega spáð í tilgangsleysi veru þeirra þar eða almennt í tilvist þeirra, og þar sem fjölskyldan bara hló og ippti öxlum þá rötuðu skíðagleraugun á þrítugsaldri aftur ofan í þvottakörfuna. Að sjálfsögðu. Af hverju að vera að hrufla við þessu. Svona er bara þvottakarfan Bank.
01 ágúst, 2006
Lifandi og sparkandi. Komin úr nostalgíuferð ársins í Seyðisfjörðinn - sem stóðst allar væntingar og meira til. Æskuþránni svalað í bili.
Á heimleiðinni staldraði ég við á sælureit fjölskyldunnar í Skorradal, og eiginlega áttaði mig í fyrsta skipti á þvílík paradís þetta er. Bústaðurinn er orðinn glæsilegur og fullbúinn, pottur og læti. Foreldrarnir mínir eru þar eins og lítil börn í kæti sinni, pabbi upp um alla veggi að dytta að, negla eitthvað eða moka, og mamma labbar hnusandi í leiðslu um jörðina okkar og fylgist daglega með hvernig trén og blómin dafna. Svo er reynt að vekja áhuga okkar hinna sem höfum litla tengingu við gróandann með því að skíra ákveðin tré og lundi í höfuðið á okkur. Næst á döfinni er t.d. að grisja lítinn Ásdísarlund. Þar á síðan að setja bekk með útsýni upp á Skessuhorn. Um verslunarmannahelgina á síðan að skíra sumarbústaðinn en mikil leynd hvílir yfir þessu öllu. Tadadaramm.
Helgin síðasta var alveg brill, stórskemmtilegt beyglupartý á föstudeginum og snilldarbryllup hjá Obbu og Ágústi á laugardeginum. Hamó! :)
Verslunarmannahelgin framundan og ég býst við rólegheitum. E.t.v. bara Skorró, og svo innipúkadjamm á sunnudeginum. Hugmyndir..?
