Ég átti klárt twilight-zone moment í morgun.
Þar eð Silfrið mitt fríða hafði stöðvast og drepist á miðri götu í síðdegistraffíkinni í gær, var ég mætt með það í aðhlynningu og hlustun á verkstæði Heklu. Þar hafði ég fengið mér sæti og beið úrskurðar þegar....................inn gekk MUNKUR!
Í brúnum kufli, með reipi um sig miðjan, ráfaði hann þarna um meðal okkar hinna morgunfúlu, og skínandi hjólkoppa og barnabílstóla- eins og ekkert væri eðlilegra.
Þetta er kannski ekkert svo far out, nema fyrir það að síðast þegar ég heimsótti Heklu með Silfrið mitt, sem er fyrir tæpum tveimur árum síðan, hitti ég líka fyrir MUNK! Í brúnum kufli, með reipi um sig miðjan - og var hann þar m.a.s. við annan munk. Ritaði ég færslu um þennan merkilega fund þá.
Nú gæti verið að ég sé að lesa of mikið í hlutina.....en ég held samt ekki. Það hljóta að vera klár tengsl á milli munksins, mín og Silfursins.........almáttugur það hlýtur að vera.
Engin perrakomment við þessa færslu takk. :)
