Ha-le-lú-já. Frí!!!!!!!!!!!!!!!
12 júlí, 2005
|06 júlí, 2005
Eftir nákvæmlega viku verð ég komin í frí. Eftir nákvæmlega viku ætla ég mér því að sitja í sólinni fyrir utan Brennsluna og fá mér Cesarsalat og bjór með Kötlu, Antoine og fransmönnunum tveimur (man ekki hvað þeir heita...jean og claude?) Can´t wait.
Var ég annars búin að minnast á hvað ég er geysilega ánægð með hrun geitingastofnsins? Geysiánægð. Enda mun þetta án efa hafa áhrif á aukna útiveru mína í sumar og almenna tan-töku. Hér í vinnunni er ég kölluð Dísa White. Ég tek það ekkert sérstaklega til mín, enda er það Dóra Tan sem helst galar þetta á eftir mér. Hugsa ég reyni engu að síður smá session í tan-töku, helst áður en franska liðið gerir innrás í Hæðarselið. Verð eins og finnskur skeinipappír við hliðina á þeim. Hrumph. :D
03 júlí, 2005
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir, vöku/deiglu/snilldarkvendi, minn kæri nágranni og vinkona á afmæli í dag!!!
Innilega til hamingju með afmælið Ásta mín!
Annars er ágætis sunnudagur og ég sit í vinnunni og er að reikna. Það er dálítið off að reikna daginn eftir djamm. Lexía dagsins. Eigi skal reikna með djammi nema ekki sé reiknað með reikningi post djamm. Erum við ekki alveg að tala saman? Markísa.
Djúran tónleikarnir voru alveg frábærir. Tjúllaðir jafnvel. Var reyndar á B-svæðinu. Við Ásta hinsvegar komum okkur mjög þægilega fyrir á barnum (uppá stól sumsé) og nutum út í ystu æsar. Hversu skemmtilegt!! Í gær fór ég síðan við þriðju dömu á Wig Wam á Gauknum. Meiningin var nú aðallega að ná 'In my dreams' og jafnvel fara síðan bara....en nei. Wig Wam rúla. Ég hef bara sjaldan séð annan eins performance! Þetta var hvort tveggja í senn, pjúra snilld og gjörsamlega hilarious. Söngvarinn var svooo fyndinn, en samt svoooo kúl - þeir allir reyndar. Tóku bæði sitt stuff og cover og voru brilliant.Vefsíðan er shcnilld.
Jæja. Rigningin ber rúðurnar og dísin heldur heim. yfir og inn.
