Hmmmmm

26 október, 2006

Bloggið mitt líður eins og annað 'líf mitt á netinu' fyrir tölvuleysið á heimilinu. Ég verð samt að játa að lífið er á einhvern hátt mun einfaldara - og betra. Ég er rólegri, slappa betur af heima hjá mér, fer fyrr að sofa og er farin að mæta í vinnuna fyrir allar aldir. Á móti kemur að ég er alltaf töluvert einni heima heldur en áður. MSN leysið hafði í fyrstu nærri því áþreifanleg, bergmálandi áhrif í litla heiminum mínum í Hæðarselinu, en nú er ég búin að fylla tómið af sjálfri mér. Ástin í lífi mínu er gulur sófi og tilveran - er fáránlega skemmtileg.

|

17 október, 2006

28 ára og tveggja daga. Ég fæddist 14.50 á sólríkum sunnudegi í Reykjavík. 28 árum síðar nákvæmlega (m.a.s. á sunnudegi) lá ég í gula sófanum í Hæðarseli ásamt bræðrum mínum og horfði á verstu verstu bíómynd í heimi um rúmenska höfðingjann Vlad sem þjóðsögur skópu Drakúla úr, og tilraun hans til að rísa frá dauðum og inn í nútímann í gegnum kyngimagnað hálsmen - og á meðan barði regnið rúðurnar. Afmælisdagurinn var líka frábruðinn öðrum fyrir aðrar sakir, og endaði bæði steikt og skemmtilega. Móðir mín góð eldaði síðan lamb með salvíusósu (mitt aðaluppáhald)og fjölskyldan brast í söng. Góður dagur. Fyrir utan Vlad - sem ég gleymdi svo að skila og er komin með skuld á að auki! What a waste.

|

11 október, 2006

Samtal mæðgna á Sólvallagötunni:

Móðirin(sem rekur skyndilega augun í dóttur sína með puttann á kafi í nefinu á sér, og segir ásakandi röddu): Heyrðu Salóme, ert þú að éta úr nefinu á þér!?
Dóttirin(5 ára, totally busted, en samt genuinly sár yfir aðfinnslunni,svara með hneykslan í svipnum): Nauts! Ég er bara að taka það úr nefinu og setja það í fötin mín!!

Eitt skemmtilegt barn.

Hvað barnið verður líka ánægt með þessa færslu frænku sinnar þegar hún kemst til vits.

|

06 október, 2006

Þegar ég flutti að heiman fyrir rúmum 2 árum (í fjórða skiptið og það síðasta skilst mér á móður minni) fékk ég skyndilega mikla endurvinnsluþörf - og hún er sértæk. Ég endurvinn pappír - flokka, geymi og skila.

Þá gengur það þannig að ég safna öllum dagblöðum, og öðru því sem kemur í gegnum lúguna mína á stól inni í íbúðinni...og þegar bunkinn er farinn að trufla mig fer ég með hann inn í geymslu. Svona hefur þetta gengið í ca. ár í einu en þá eru komnir inn í geymslu einhver hundruð kíló af pappír! Sem er alveg hreint ótrúlegt - ég hefði ekki trúað að óreyndu hversu mikið gæti safnast fyrir um eina litla lúgu á einu litlu heimili. Þetta endurvinnslusystem mitt virkar líka alveg hreint bráðvel...þangað til kemur að þeim tíma að ég þarf að fara að 'poka' pappírinn, bera hann út í bíl og finna næsta grenndargám. Nú hefur t.d. heilt pappírsfjall dvalið í pokum á eldhúsgólfinu mínu í jatja...a.m.k. mánuð enda þung skref í gáminn með þetta fjall. Með kraftlyftilegu erfiði kom ég fjallinu í bílinn minn í gær, og hugsaði með mér á leiðinni í gáminn- eins og ég hef reyndar gert nokkrum sinnum síðan að 'skila-fasinn' af endurvinnslunni knúði dyra - hvað er ég að spá!?

Svo lagði ég við gám í Mjóddinni og dundaði mér þar í svona korter að rífa upp úr pokunum og leggja í gáminn - og allar vangaveltur um fráhvarf frá endurvinnslu hurfu eins og dögg fyrir sólu. Ég var svo ánægð með sjálfa mig, svo ánægð með þetta hálftonn af pappír sem fær framhaldslíf......t.d. sem klósettpappír! Korterið verðlaunaði ár.

Kannski hljómar þetta pínu klikk. Veit það ekki. En ef að endurvinnsla gerir mann glaðan þá skal því framhaldið. Ég meina sumum finnst gaman að rækta tré...og mér finnst gaman að gefa þeim framhaldslíf. Jamm. Góða helgi.

|

05 október, 2006

...vetrartónn í deginum. Fyrsti skafmorgun vetrarins í dag. Sköfurnar fjarri góðu gamni og því var það geisladiskahulstur af hinum forláta 'Best of Sting' sem tryggði gegnsæjar rúður og öryggi í umferðinni. Sting hefur svo margsinnis gert svo góða hluti fyrir mig...og brást ekki heldur nú.

Allt að gerast á öllum vígstöðvum....jeij.

|