Fór á svo geggjaða tónleika um helgina - Reykjavík 5 í Fríkirkjunni og heyrði þar svo unaðslega flæktar og skemmtilegar útsetningar að eyrum á mér blöðkuðust (er það orð?). Það aldin út er sprungið, það heilagasta, fékk eina slíka....kreisíflott. 4 dagar í jól, og ég hlakka til. Við systkinin verðum öll saman ásamt foreldrunum og smáfólki í Blásölunum þetta árið - og það þykir mér gríðarlega skemmtilegt. Ætli mér verði boðinn Alexander eftir uppvaskið í ár?
20 desember, 2006
15 desember, 2006
Skelfing var erfitt að vakna í morgun! Almáttugur. Mér hefur fundist ég labba um með byrðar margra þreyttra manna í allan morgun. Gleði dagsins felst í góðu kaffi, Jóafel smákökum og í því auðvitað að helgin er framundan. X-factor hangikjötsveisla í Blásölunum í kvöld, tvennir tónleikar, jólaball, hittingar og fundir skreyta svo afganginn af hvíldardögunum. Góða helgi!
Mundi allt í einu eftir þessari vísu um daginn, sem mamma kastaði oft í mig þegar ég var lítil og var eitthvað óðamála:
Hvað ertu að meina, sérðu sko
vertu ekki að þessu þrugli.
Það er að reyna að hitta tvo
steina með einum fugli.
Skemmtilegt.
08 desember, 2006
Það eru litlu jól í Skútuvoginum í dag. Með rjóma út á kinn reyndi liðið að hefja aftur störf eftir pakkaskipti, heitt súkkulaði, tertur, ost og brauðrétti......en það hefur ekki gengið vel. Blóðflæðið er í þörmunum og hvergi nærri heilanum - og afköstin eftir því. Vorum reyndar að spá í að fá okkur af helíum gaskútnum inni á rannsókn til að hressa okkur við. Sjáum hvað setur. Föstudagur í húsi, og í fyrsta skipti í þó nokkuð mörg ár hlakka ég til jólanna.
