Hmmmmm

31 júlí, 2003

Einn og hálfur sólarhringur í brottför til Eyja.

|

Allt vitlaust í blóðtökunum í dag. Eina sem heldur Katli gangandi er það að eldhús ríkisspitalanna framreiðir karrýfisk í dag, en það mun vera eini rétturinn sem kallast matur skv. skilgreiningum gikksins Kötlu. Ég er ekki sammála henni, enda fyrir löngu löngu búin að taka mötuneyti spítalanna í sátt. En það er gott að karrýfiskur gleður.

|

29 júlí, 2003

En nú eru bara þrír sólarhringar í brottför á Þjóðhátíð!!! híha

|

Ég er náttúrulega að sýna afburða lélega takta í blogginu þessa dagana, en því er um að kenna að elskulegur bróðir minn er búinn að fokka upp tölvunni minni. Hann er ekki í góðum málum þessa dagana, og tölvan mín elskuleg er á leið í heimsókn til Heimis tölvunörra. Helgin var bráðfín. Fór í leikfimi kl 8.55 á laugardagsmorgninum (brynjólfur skuldar mér af þeim sökum kippu af bjór!!), og fór svo í alveg hreint stórskemmtilegt brúðkaup hjá vinafólki Júlla og Sossu. Var meira þar til að syngja fyrir þau heldur en eiginlegur gestur, en fannst svo gaman að ég bara ílengdist. Síðan pikkaði Katla mig upp og við fórum í partý á Ásvallagötuna og þar var stemma. Gott kvöld.

|

24 júlí, 2003

Við líffræðileifarnar Valli, Katla, Óli, Siggeir og Gunni skelltum okkur á Dúndurfréttir í gær á Gauknum. Snilld. Hljómsveitin er náttúrlega bara fáránlega þétt, og Pétur Jesú er bara með flottari börkum í Evrópu. Evrópu sjáiði. Annars er lífið nokk ljúft, og ég er í því þessa dagana að skrapa skítinn af ryðguðum raddböndum, og því mjög heppilegt að vera komin á bíl, en þar er hægt að gaula og góla að vild, án þess að nokkur heyri til. jamm...

|

23 júlí, 2003

Stórtíðindin eru þau að Ásdís Rósa er komin á sinn eigin bíl. Já, við strætó höfum loksins skilið skiptum, enda var samband okkar orðið mjög þreytt og stirt, og olli orðið meiri mæðu en góðu hófi gegnir. Nú er rúntað af innlifun um borg óttans, og Silfrið (sem er VW Polo 2001, silfurgrátt beauty) er alveg að standa undir væntingum....and then some.

|

Jæja, það gerðist allt á Seyðisfirði. Algjörlega frábær túr. Keyrðum landið þvert í guðdómlegri blíðu á fimmtudeginum, vaknaði í sólarlandastemmu á Egilsstöðum á föstudeginum. Föstudagskvöldinu var eytt á Hótel Snæfelli og Hildirhans og Kári gerðu allt vitlaust. Það var mjög gaman, og þar hitti ég margan manninn sem ég hef ekki séð í mörg mörg ár, enda virðist sem að brottfluttir ungir Seyðfirðingar hafi líkt og við sigtað á þessa helgina til heimsóknar. Á laugardeginum var enn blíða og við brunuðum uppí Hérað og sóluðum okkur þar. Um kvöldið var síðan kveikt í brennunni sem Elvar og félagar í bæjarvinnunni voru búnir að vera að safna sveittir í í einhverjar vikur, enda ætlaði Elli ekki að tíma að kveikja í. Eftir brennu á Eyrinni, gítarspil og stemmu, var síðan haldið á ball með Jónsa og félögum í svörtum fötum í Herðubreið. Þar var gífurleg stemmning, og fá strákarnir hrós fyrir magnaða frammistöðu. Brunuðum síðan aftur heim á sunnudeginum í frekar slöppu módi, úldnar en sælar.

|

17 júlí, 2003

Það er allt að gerast á Seyðisfirði! Juuuubilation.

|

16 júlí, 2003

Á morgun verður lagt af stað til Seyðisfjarðar. Um helgina verður nefnilega haldið LUNGA þar, en það stendur fyrir Listahátíð Ungs fólks á Austurlandi. Við Hrönn og Fanney ætlum að bruna suðurleiðina eftir vinnu, eins og vindurinn, og planið er að ná austur á ótrúlegum tíma. Ég verð síðan eftir á Egilsstöðum, og verð nóttina hjá Erlu Rut og Palla. Palli var að útskrifast úr læknisfræðinni í júní, og þau eru sumsé 'læknishjónin' á Egilsstöðum þetta sumarið. Það finnst mér mjög fyndið, enda eru þau bæði bekkjarsystkini mín úr barnaskóla. Við Erla ætlum að eiga smá quality á Egilsstöðum á föstudeginum, en um kvöldið mun þakið rifna af Hótel Snæfelli, Seyðisfirði, þar sem að tríóið Hildirhans og Kári munu halda uppi stuðinu. Mér skilst að menning og listir muni fljóta um fjörðinn, alls kyns workshop í gangi og så videre. Á laugardagkvöldinu er síðan stórdansleikur í félagsheimilinu Herðubreið-16 ára aldurstakmark- og ekki ómerkari hljómsveit en Í svörtum fötum spila fyrir dansi. Fór einmitt á 16 ára dansleik á Sey í fyrrasumar og hitti þar fyrir haugdrukkin börnin sem ég passaði í den. Hreint frábært. Anyways, hlakka mikið til, enda bráðnauðsynlegt að kíkja á bernskuslóðir annað veifið.

|

15 júlí, 2003

Gunnar Kristinn bróðir minn er 29 ára í dag. Til hamingju afmælið Gönsó!

|

Ég er andvaka. Sá nefnilega bíl í dag. Held ég verði að fá hann. Vandinn er að það ætlar sér einhver annar að fá hann líka. hmmmm

|

14 júlí, 2003

Svaf yfir mig í morgun, missti af strætónum mínum, tók næsta og endaði uppí Árbæ. Þolinmæði mín gagnvart strætó er endanlega á þrotum. Er að spá í að gera eitthvað í málunum í dag.

|

13 júlí, 2003

Á Hlöðum í Hvalfirði moraði allt í afkomendum Þóru Þorvaldsdóttur langömmu minnar í gær. Þetta var alveg fínt, eða svona eins fínt og ættarmót geta orðið, þegar maður bókstaflega þekkir ekki kjaft utan sinnar nánustu fjölskyldu. Kannski var það þó helst leikurinn þar sem allir áttu að standa upp, labba upp að ókunnugum ættingjum sínum, faðma þá og segja án nokkurrar tilgerðar sæll/sæl frændi/frænka, sem mér fannst á gráu svæði...eða meira svona hilarious. Þetta er svona leikur sem steriotypiski ofhamingjusami Bandaríkjamaðurinn fann upp og leikur við hvert tækifæri. Ekki alveg leikurinn sem steriotypiski spéhræddi Íslendingurinn finnur sig í. Við systkinin tókum síðan lagið með Jónasi frænda, og heil harmonikkuþenjandi fjölskylda sleit mótinu. Eyddi síðan kvöldinu hjá Kötlu, Gunnar bró kíkti á okkur og við stimpluðum okkur síðan inn á Hverfis..

|

Maður á náttúrulega bara að fara að sofa þegar maður kemur heim af djamminu ;) (vísun í síðustu færslu).

|

Ekki í samhengi við nokkurn hlut þá það hafa allir gott af smá Steinari; í enda Gamalla skriftamála..... Ég bregst því öllu sem ég sé og skil. Ég elska það sem aldrei verður til.

|

10 júlí, 2003

Haldiði að dísan sé ekki bara ein í kotinu. Settið fór í Skorradalinn í sæluna og verða þar framyfir helgi. Þannig ég er eiginlega í smá fríi líka...hehe. Á laugardaginn er reyndar ættarmót. Þá ætlar fólkið hennar Ásdísar Ásmundsdóttur ömmu minnar að koma saman, og auðvitað þarf að skella í skemmtiatriði fyrir það. Við Júlli og Jónas ætlum að æfa eitthvað sniðugt og það er lagabræðingur í kvöld, sem er tilhlökkunarefni mikið. Annars er kominn tími á alvarlegar verslunarmannahelgaráætlanir, en það skal haldið á Þjóðhátíð, enginn vafi. Held að Vökufólk verði þar í hrönnum, og ég er ekki frá því að ég fái að taka þátt í heimilishaldi í einu hvítu tjaldi eða svo ef ég hegða mér vel :)

|

Fékk skömm í hattinn frá Fanneyju frugludalli fyrir slaka bloggtíðni, mun taka mig á. Er komin með vinnu!! Afskaplega ánægð með það.

|

05 júlí, 2003

Fékk góðar fréttir á föstudaginn, en ætla bíða með að gleðjast yfir þeim hér fyrr en allt fæst fullstaðfest! Fór engu að síður eftir vinnu á föstudaginn til að celebrera aðeins (með fyrirvara auðvitað), og settist í sólina framan við Brennsluna og fékk mér einn,þrjá bjóra með Borgar og Brynjólfi Ægi. Það var ósköp ljúft og sólin sleikti okkur og kyssti mig nokkrum freknum. Á sama tíma var verið að gæsa hana Guðrúnu Pálínu deiglupenna, og á einhvern óskiljanlegan hátt vorum við þrjú allt í einu komin í fótbolta á Austurvelli við KR-klædda gæsina, sem var bara fyndið og réttlæti fyrirhöfnin með öllu annan bjór. Endaði samt ótrúlegt en satt heima á skikkanlegum tíma og fór snemma að sofa. Er að spá í að njóta bæjarins í kvöld, en hann er tómur.

|

03 júlí, 2003

Til hamingju með afmælið Ásta Sóllilja! Kvartöld og gleði!

|

02 júlí, 2003

Þetta hefur verið reglulega öflugur dagur í blóðtökunum. Hér kom maður um daginn sem fannst 'Blóðtökur' helst til sterkt til orða tekið. Honum fannst blóðsýnatökur fara betur, og ég get svo sem verið sammála honum um það. Anywho, ég er búin að vera óhittin í dag, sem segir sig sjálft að er ekki gæfulegt í mínu starfi. Klikkaði m.a.s á barni í morgun, sem er ófyrirgefanlegt, sérstaklega þegar enginn deyfiplástur er í dæminu. Þannig hefur hver misheppnuð stungan rekið aðra í allan morgun, auk þess sem mannekla og slæleg heilsa náttúrufræðingsins og smávægilegt fúllyndi er allt að spila saman. Hummm, en þetta er allt upp á við því við Katla erum að drekkja kvefinu í okkur með norskum brjóstdropum!

|

Það er málið með þvagglösin. Það eru tvær tegundir glasa einna helst í umferð, önnur tegundin með rauðu loki og hin með hvítu. Reyndar er talsvert meira af þeim rauðu, enda eru það þau sem eru til sölu í flestum apotekum. Ég veit ekki hvað það er sem hefur misfarist í framleiðslu eða hönnun glasanna, en þau halda ekki vatni og því síður þvagi. Það ætti að vera lýðum ljóst að lekt þvagglas bregst á allan hátt tilgangi sínum, sem er sá einn að halda lífsýninu ómenguðu um leið og því er haldið einangruðu frá umhverfinu. Rauðu glösin hafa verið í umferð í mörg ár og verða sjálfsagt um sinn. Ef ég þyrfti ekki töluvert að vinna með lekandi þvagglösin rauðu væri þetta frekar kómískt, altso þegar eitthvað bregst svona gjörsamlega sínum eina tilgangi..eins og t.d götóttir smokkar, já eða vínandalaust tequila! skiljiði.

|