Hmmmmm

25 ágúst, 2008

Sonur minn er sex mánaða í dag! Ótrúlegt. Óendanlega langt og stutt í senn. Við héldum upp á daginn með því að reyna að laga aðeins til á heimilinu. Að laga til er ekki lengur tveggja klst fasi, heldur er þetta svona korter hér og korter þar, allt eftir duttlungum drengsins litla - sem eðlilegt er. Sem verður þess hins vegar valdandi að foreldrarnir eru ennþá latari við þessi verk en áður. Hnuuussss.

Litla familían fór á ættarmót að Urðum um helgina, en þar komu niðjar Páls Bergþórssonar og Huldu Baldursdóttur saman og átu, tóku í spil og sungu. Það var gaman. Í seli hæða vöknuðum við síðan á sunnudegi til að fylgjast með strákunum okkar taka gullið. Einmitt.

Annars er ég að reyna að finna blogg mojo-ið mitt aftur, en það er týnt. Jú sjáið þið, svo margir hafa komið að máli við mig og beðið mig um að taka upp þráðinn að nýju :)

|

07 ágúst, 2008

Já! Ég er mætt aftur. Sumarfrí litlu fjölskyldunnar er á enda og mæðginin reyna nú aftur að koma sér í pabbalausa rútínu. Fríið var óskaplega gott og við náðum að sóla okkur, vera með vinum og fjölskyldum í bústöðum um víðan völl, taka íbúðina okkar í gegn (þvíííílíkur munur) og slaka á. Svona eins og frí eiga að vera. Jón Steinar litli blómstrar og er ótrúlegur gleðigjafi. Merkilegt að fylgjast með svona litlu kríli uppljóstra sínum karakter smám saman. Líklega það merkilegasta sem maður getur orðið vitni að. Læt fylgja hér litla mynd af litla kuðungnum. Meira mjög bráðlega.

|