Hmmmmm

27 febrúar, 2004

Ég er búin að uppgötva myndasafn á vef Akraneskaupstaðar, sem er m.t.t til ættgarðs míns þar, það allra fyndnasta sem ég gef komist í tæri við lengi. Er t.d búin að finna fullt af myndum af föður mínum ungum, á hinum ýmsu uppákomum, syngjandi í kvartett, eða í ham í einhverju leikritinu..en myndin sem sló allt út, og er bara fyndnust í heimi (og nú hlæja þeir sem þekkja til föður míns), en hér er hún, og faðir minn stendur þarna fremst á sviðinu, annar frá vinstri, að sýna leikfimi á sviði Bióhallarinnar við Vesturgötu á Akranesi. Bara fyndið. Svo eru nokkrar alveg illa töff myndir af Hans Júlíusi afa, eins og t.d þessi...aha...töffari.

|

..i don´t care if monday´s blue, tuesday´s gray and wednesday too, thursday I don´t care about you, it´s friday i´m in love...jaha! Ég segi bara halelúja, helgi handan við hornið - og aftur komið að útborgunardegi...sem er gott. Busy weekend framundan, samdrykkja Deiglukvenna á Obbustöðum í kvöld, og hvorki meira né minna en þrjár útskriftarveislur í gangi á morgun....hugsa um að sjá bara hvert lífið leiðir mig og rúlla áhyggjulaus inní helgina. jebb.

|

26 febrúar, 2004

Erna Gunnarsdóttir snillingur, mín traustasta vinkona og móðir, á afmæli í dag. Til hamingju með daginn mamma!

|

25 febrúar, 2004

Ég sá krakka í dag, strák sem sennilega er ekki deginum eldri en tíu ára....í syngandi öskudagsfíling í dulargervi smokks! Hvað er málið?

|

Nú hef ég minnst á Sting áður á blogginu mínu, en verð að gera það aftur. Sting er algjör snillingur. Er með einn af safndiskunum hans í bílnum núna, og þetta bara þreytist ekkert! Gamalt og gott. Hinn diskurinn, sem er þess heiðurs aðnjótandi að leysa Sting af þessa dagana, inniheldur hins vegar ferskt píkupopp, sem Fannsa tók til fyrir mig...snilldarlög eins og 'shut up', 'Hey ya' og svo Sugababes....sem ég btw fíla. Þannig þetta er svona ´hope the russians love their children too'/'shake it like a polaroid picture' stemmning í bland. Hmmmm. Á nefnilega ófá quality í Silfrinu mínu.

|

Ég er að fara til Strassburg! Liggalá líklega.

|

22 febrúar, 2004

Viðskiptafundurinn á Vínbarnum tókst með miklum ágætum, og mættu fleiri en von var á. Mjöög skemmtilegt kvöld með Deltaskvísum og Pharmacogellum,- jú og Togga. Tók laugardagskvöldið með fádæma rólyndi, eða þannig, og skreið síðan í fósturstellinguna uppí rúm um tíuleytið og svaf í svona tólf tíma. Therapeutiskt. Í dag var síðan bollukaffi hjá Júlla og Sossu á Sólvallagötunni, og þar var etið og glaðst, og kelað við börnin. Góð stund. En ný vika er handan við hornið...bolludagur, og Harpa Hrönn býður í árlegt og alræmt bollukaffi...að líkindum mun ég skila disknum sem hún sendi mér bollur á, á þessum degi fyrir 3 árum. Þá stóð ég á haus í kosningabaráttu og samfara geðveiki, og bollurnar hennar Hörpu komu eins og sending af himnum ofan, á umtöluðum diski til að gleðja þreytt hjarta. Líklega bestu bollur ever.

|

20 febrúar, 2004

Hvað ætlið þið kommentaduglegu vinir að gera um helgina, svo ég afgreiði alla í einu...??

|

Afskaplega virðulegur viðskiptafundur hefur verið settur á Vínbarnum klukkan tuttugu núll núll sharp. Nú er að sjá hverjir mæta...dararadamm....(og hálftón neðar)...dararadamm...

|

19 febrúar, 2004

Ég er að hafa ansi hreint gaman af þessu kommentakerfi, alveg nýr öngull á blogglíf mitt. Heh. Fór á Murrayinn í gær og hann sem slíkur var baara góður. Myndin svona la. Við Fannsa ákváðum í sakleysi okkar að reka nefið inná Players í einn kaffi fyrir murrayinn, og löbbuðum inní slíkt og þvílíkt kraðak karlmanna....enda e-r landsleikur í gangi...að ég hefi bara ekki séð annað eins. Maður ætti kannski að 'álpast' oftar inná svona samkomur, auðvitað eingöngu vegna ástarinnar á íþróttinni.

|

Hvað er með veðrið gott fólk? Hveeer pantaði þetta veður?

|

18 febrúar, 2004

Gleði dagsins, sofar, var að í dag hugnaðist stóra bróður mínum loksins að kynna sér msn. Vissi ekki að mér myndi þykja það svona skemmtilegt, en það er stórskemmtilegt að sjá Hans Júlíus (online) online. Jamm og já. Og sjá vinir mínir, dísan er komin með kommentakerfi á kantinn. Prófum það nú.

|

Komst ekki á Murray í gær, heldur endaði á Vegamótum í dýrindismat og bjór með afmælisbarni gærdagsins. Önnur, eða öllu heldur sautjánda tilraun til að sjá Murray verður því gerð í kvöld-þó ekki fyrr en ég hef lokið mér af við gagnfræðinginn sem ég kenni stærðfræði einu sinni í viku. Sem btw er stúlka.

|

Erla Rut Magnúsdóttir, betur þekkt sem bumban um þessar mundir, er 26 ára í dag. Til hamingju með afmælið mín kærasta vinkona!

|

17 febrúar, 2004

...haldiði að maður sé bara ekki kominn í nýtt verkefni núna...búin að vera hálf inní stinkskáp í allan dag að brenna lyfjum í bókstaflegri merkingu...stuuuuuð,. Héldum afskaplega óameríska barnasturtu fyrir Erlu Rut í gær vinkonurnar, borðuðum á okkur gat og hlógum. Hápunktur kvöldsins var án efa kommentið um Kalla Bjarna og Jónas frænda sem báðir voru í Kringlunni á sama tíma.....þeir hljóta að þekkjast....beautiful! Planið í kvöld er að fara með Fönnsu minni í bió að sjá vin minn hann Bill Murray. Mér finnst Murray fyndnasti maður í heimi. Maðurinn þarf í rauninni ekkert að gera nema birtast á skjánum til að ég missi mig. Spái öfgakenndum og velkomnum hlátursköstum.

|

Heimir minn Óskarsson gamli vinur er 26 ára í dag! Til lukku með daginn homeodomain!

|

16 febrúar, 2004

...ég sit hérna og er af skyldurækni að reyna að blogga eitthvað skemmtilegt, vinum mínum til handa...en kem engu frá mér. Shiiiiitty day. Meira síðar. Það eina fyndna sem ég gæti hinsvegar sagt, og er eitt af afrekum helgarinnar er hinsvegar varla blogghæft hehehe en verður efniviður ófárra brandara á næstunni :o)

|

13 febrúar, 2004

Signed, sealed, delivered...I´m yours! Vaka vann!!!!!!!!

|

12 febrúar, 2004

Í dag er síðari kjördagur í kosningunum til stúdentaráðs....hvet alla sem ég þekki, eða þetta lesa og hafa rétt til, til að setja X við A, lista Vöku fyrir klukkan sex í dag! Áfram Vaka, sigur 2004.

|

09 febrúar, 2004

....bluh....blogger ad strida mer nuna, nenni ekki ad skrifa okklasoguna aftur..i stuttu mali, god helgi, marinn okkli, og Vaka er ad fara rusta haskolakosningunum! Holdum Voku okkar, -sigur 2004!

|

06 febrúar, 2004

Verð að minnast á það að Fanney steik er bara alltof fyndin...click and laugh.

|

jæja, þá er kominn föstudagur á ný. Góður dagur. Þó að ég hafi ekki unnið rauðvínspottinn...hef þó í hyggju að vinna hann mjöög bráðlega. Vikan hefur eins og vanalega þotið framhjá mér, enda nóg að gera.. Helgin síðasta var barasta hin ágætasta, sérstaklega laugardagskvöldið, þar sem að Raklettboðið heppnaðist með eindæmum vel. Raklet er nefnilega hrikalega gott, en helsti gallinn er kannski sá að þetta er helv..þungt í maga, osturinn allur altso. Þess vegna er mjöög gott að drekka mikið af hvítvíni með, og auðvitað gerðum við það. Fórum síðan í partý&co spilið og við Harpa rústuðum því! Ömmusulta! Skvísurnar sem við erum..jahernaher.

|

04 febrúar, 2004

Sigríður Sunna, oftar kölluð Sunna skríður nær þrítugu í dag. Bestu kveðjur til Baunaveldis, til hamingju með daginn Sunnsunn.

|