...svoleiðis kolófært í Blásölunum! Mér tókst að valda því að eldri kona á rauðri (af því að liturinn skiptir máli) Micru festi sig í beygjunni, og hún var langt frá því að vera glöð. Hún eiginlega gargaði á mig. Þoli ekki þegar fólk gargar á mig. Henni var svosem nær, ég les ekki hugsanir og hún var bara eitthvað að juða sér í snjónum konan. Konan á neðri hæðinni og ég tókum okkur síðan til og dubbuðum okkur upp og réðumst með snjóskóflum á bílastæðið og mokuðum eins og óðar konur. Í þeim svifum bar að 'snjómokstursgröfuapparat' eitthvað, og létti okkur aðeins lífið. Mikil átök og eiginlega bara mjög gaman. Þarf lítið til að gleðja mig. Moka. Mooooka. Heyrði annars í Kötlunni, og hún var í góðum sköpum í DC eins og þeir segja. Þar skein sólin, og hún sat út á verönd með kaffibollann sinn og hafði það náðugt á afmælisdaginn sinn. Ohhhh lovely. En gleymum því ekki að hún fær t.d ekkert að moka.
29 desember, 2003
Veðrið í dag minnir mig bara á gamla daga á Seyðisfirði. Akkurat núna situr bíllinn minn í ruðningsskafli fyrir utan Omega og ég er að búa mig undir þrekraun dagsins. Koma 50 hestafla silfrinu mínu í gegnum skaflinn og uppí Kópavog...haldiði að það sé stemmning!
Katla Guðrún Harðardóttir stórvinkona mín er töttogu og sjö, nei ég meina töttogu og bíbb :) Afmæliskveðjur til usa!
25 desember, 2003
Jól. Hvít jól meira að segja. Hér voru haldin sannkölluð barnajól í gær. Það er sannarlega frábært að fylgjast með litla fólkinu urlast af kátínu. Kertasníkir kíkti í heimsókn. Hann barði öllum að óvörum húsið að utan skömmu eftir matinn, akkurat á sama tíma og Júlli fór út með ruslið...dularfull tímasetning. Sveinki hræddi náttúrulega líftóruna úr Salóme litlu, en Snæsa er farið að gruna eitthvað. Frábært kvöld með fjölskyldunni minni. Háttaði síðan uppí hreint rúm, í nýjum náttfötum með jólabók. Alveg eins og það á að vera. Jæja, innan stundar munu Blásalirnir fyllast af hungruðum ættmennum og grislingum, því víst hollara að smella sér í eitthvað hátíðlegt og pússa rykið af brosinu. Gleðileg jól!!
22 desember, 2003
|Tveir dagar til jóla, trúi því varla, tíminn flýgur trúðu mér. Er reyndar í frekar góðum málum hvað jólagjafir varðar og á bara tvær eftir. Fór á tónleika í Grafarvogskirkju á föstudaginn, Dívurnar. Pabbi og Júlli voru báðir sönghópnum sem Fóstbræður lögðu til verksins og því var þetta kannski extra gaman. Dáldið þröngt svona, en góð stemmning. Fannst þær allar mjög góðar á sinn hátt, en í heildina var Margrét Eir langbest. Flottasta lagið var samt án efa Ave Maria með Eivöru Páls sem var eiginlega þannig að ég bæði missti andann og táraðist,glæsilega gert hjá henni. Á laugardagskvöldið var síðan jólaglögg Deiglunnar og það var eins og við var að búast mjög gaman. Sunnudagur var heldur letilegur, og vökustundir hans fóru flestar fram í Laugarásbíó, þar sem að 'Hilmir snýr aftur' rúllaði mínu fólki til mikillar ánægju í þrjá og hálfan tíma. Gottgott.
16 desember, 2003
Mæli með blaðsíðu 24 í Fréttablaðinu í dag. Þar má finna litla mynd af jólastelpu, og telpan sú er engin önnur en bróðurdóttir mín Salóme Júlíusdóttir. Tveggja ára hnátan ku hafa brugðist sérstaklega vel við bón ljósmyndarans um myndatöku og pósaði af innlifun í blómabúðinni í Eiðistorgi. Í dag hefur hún svo lagt áherslu á það við móður sína að myndin sé höfð meðferðis og sýnd. Barnið er hilarous.
15 desember, 2003
Í dag gerði litla systir, altso ég, stóru bræður sína svo hamingjusama að það liggur við að mér standi ekki á sama. Ég náði nefnilega að redda miðum á forsýningu á þriðju lord of the ring myndina þann 21., og það var eins og ég hefði fært börnum jólin sín. Held ég hafi amk ekki skorað svona stórt hjá þeim (alltaf að reyna samt) síðan ég klippti mig stutt og neitaði að ganga í bleiku. Langt siðan reyndar...og svona þegar ég hugsa um þetta betur, var þetta sérlega góð taktík hjá mér í dag, enda munu jólagjafakaup þeirra, þ.á.m handa mér hefjast innan skamms. Sem maður er séður!
jæja..jólaglöggið heppnaðist stórvel, enda Dóra 'höbbðingi' heim að sækja. En e.t.v var aðeins of gaman. Það hendir besta fólk. Held jafnvel að liðinu hafi ekkert litist á blikuna þegar einhleypurnar nýráðnu hrukku í gírinn :os gaman að því.
12 desember, 2003
..ríííííífandi stemma í vinnunni í dag, enda árlegt jólaglögg gæðadeildar Omega á dagskránni í kvöld. Dóra omegaskvísa á Nesinu býður heim. Daman ætlar þó fyrst að pæja sig upp með klippingu, sem á ánægjuskalanum 1-10 fær fullkomna 8. Sem er gott. Algert quality að láta einhvern fikta í hárinu á sér (sem er gott), fá gott kaffi og lesa upp margra mánaða skammt af séð og heyrt og tískublöðum. Ahhh..
08 desember, 2003
Harpa Hrönn vinkona, Seyðfirðingur og mannfræðispekúlant með meiru er byrjuð í blogginu. Sem er gott. Hún fær að sjálfsögðu link, enda ein af mínum elstu og bestu.
Mér er að finnast afskaplega furðulegt að vera ekki í jólaprófum. Gleðilegt, en skrítið. Ég er eiginlega ekki að kunna lagið á þessu, og er meira í því að bíða eftir 21.des svo ég geti farið að stússast í jólaveseni-svona eins og vanalega. Skvísunum í vinnunni finnst ég vera vítavert kærulaus og sjálfsagt lætur maður á endanum hópþrýsta sér út í geðveikina alltof snemma. Come on það er 8.des! Jamm. Annars tíðindalítið af vígstöðvunum annað en það að Katla mín er farin aftur af landi brott. Sem er afleitt. En eins og katlan hefur réttilega bent á þá er styttra til Strass en mann grunar..;)
Mér varð það ljóst í afmælinu hjá Þóru að það rennur sannarlega þeldökkt blóð í þessari blessuðu föðurfjölskyldu minni. Held það hafi verið á momentinu sem að pabbi og systur hans tóku 'let my people go' svo sótsvart og soulað að ég vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða bresta með þeim í söng. Þau voru æði. Við unga kynslóðin héldum að teitlu lokinni síðan í bæinn, og við Úlfar, Jónas og Þóra Katrín enduðum á Kaffibarnum í ótrúlega troðnum fíling. Þar var fólk dansandi uppá borðum og áfengi úðað í gesti, sem var við hæfi enda 10 ára afmæli í gangi. Þetta var svona 101 Rvík sena. Fínt.
06 desember, 2003
..bremsurnar eru komnar í lag. Ég er mætt í vinnuna og leysi amló af lífi og sál. Tók morguninn snemma og dreif mig í leikfimi, og er að klára nokkur próf núna. Í kvöld er þrítugsafmæli hjá Þóru Katrínu og ég hlakka til. Það verður gaman að sjá hana enda býr frænkan mín sú á Ítalíu. Nú svo má auðvitað búast við því að gripið verði í gítar og það er alltaf gleðilegt. Jú.
05 desember, 2003
..og hann átti enn eftir að batna enda var skálað í kampavíni í vinnunni rétt áður en haldið var heim. Heppilegir samningar eða eitthvað þvíumlíkt tilefnið. Nú verður haldið af stað útí helgina...með ískrandi bremsur.
..held bara að ég elski föstudaga. Átti reyndar afskaplega erfiðan morgun en dagurinn er alltaf að batna, enda alltaf kaka í morgunkaffinu á föstudögum, og síðan nammiúrval eftir hádegismatinn. Rætur erfiðrar risu úr rekkju má rekja til tónleika Dúndurfrétta í gær. Þeir eru alveg frááábærir. Hreint dúndur.
03 desember, 2003
Ég er orðin alveg hreint afspyrnu löt í þessu bloggi....lítið fréttnæmt svosem. Er aðallega himinsæl með að vera ekki í prófum. Samúðarkveðjur til þeirra sem í þeim standa! Átti ósköp gott kvöld á Bergstaðastrætinu í kvöld og ég þakka fyrir góðan mat og góðan húmor.
