Hmmmmm

25 janúar, 2008

Ég er veðurteppt heima hjá mér. Í Reykjavík! Þetta er nýtt. Útsýnið héðan úr kjallaraholunni í Hæðarseli minnir mig óneitanlega á veðurtryllta daga á Seyðisfirði - þar sem veðráttan er (eða var a.m.k.) af einhverjum allt öðrum meiði en sú sunnlenska.

Annars hafa liðið hér á blogginu mínu dagar, vikur, jól og áramót án tíðinda - en þó ekki vegna þess að það sé tíðindalaust. Höfuðið er bara einhvers staðar annars staðar, með allan sinn fókus á vaxandi kvið og gulan lazy-boy stól. Pjakkurinn innra dafnar og er orðinn það styrkur í spörkum og rassaköstum að nóg finnst mér um - og þó eru 6 vikur í áætlaðan komudag. Í engu er hægt að lýsa þessari upplifun og enn upplifir maður hálfgerða vantrú á því að þarna leynist heil ný lífvera, sem komi svo fullsköpuð í mannsmynd einn daginn útúr belgnum, og breyti öllum innviðum manns og umhverfi í einni svipan.

Jamm, það eru alls kyns naflaskoðanir í gangi í Hæðarselinu. Yfir og inn.

|