Hmmmmm

30 desember, 2005

VOG 23. september - 22. október Vildir þú ekki óska þér að eiga ísilagða á sem þú gætir skautað á? Hvers vegna? Jú, vogin er í Joni Mitchell-ham þessa dagana; hnuggin. Það breytist strax með símtali, gönguferð með vini eða matarboði.

...ég skil reyndar ekkert sérstaklega í þessari Joni Mitchell pælingu fyrir utan þá vitneskju að hún var víst oft helvíti blue. Einmitt. Ég er hinsvegar ekkert hnuggin...en þó með matarboð á kantinum! Við Katla ætlum að framreiða dýrindiskrásir (líklega Katla þar sem hún er vangefið bossy í eldhúsinu) fyrir líffræðiklíkuna úr árgangi 2003 í selinu Hæða í kvöld. Alltof langt síðan við höfum hist, og síðan síðast hafa hópmeðlimir ýmist fengið mastersgráður, fætt börn, gengið út og m.a.s. 'breedað' innan hópsins. Baaaaara skemmtilegt.....if I could craaaaaaaaaaaawl into your dream.....don´t you know that we´re running out of tiiiiiime...(jet black joe).

|

29 desember, 2005

...ég verð að blogga inn ammliskveðjur núna. Í dag (gær-28.des) varð Agnes Marí litla ljós þriggja ára. Í dag (morgun-29.des) á Katla Guðrún pjatla síðan 2X ára afmæli. Þessar manneskjur, báðar frekar smáar (sorry katla :)), með stóra stóra karaktera skipta stóran stóran sess í hjarta dísunnar. Til hamingju:)

Var annars að koma heim úr leikhúsi. Mín eigin kona. Hilmir Snær er svo vel..gerður. Schnillingur. Frábær saga. Bravó..

|

27 desember, 2005

..gleheðileg jól allir.

Ég borðaði og svaf þessi jól. Það var yndislegt. Samt himinglöð að þetta helsta jólajóla er yfirstaðið. Það fer ekki vel með mann að verða svona jólasósaður. Langar að fá mér gulrót og fara í splitt. (Agnes Marí litla fékk latabæjar DVD-ið í jólagjöf)

Fór í nokkur stórgóð glögg(deigluglöggið rúlaði, Borgar og Obba eru án nokkurs vafa fyndnasta fólk í Evrópu), messu í dómkirkjuna(þar sem mér tókst að fipast ca 10 sinnum í trúarjátningunni-enda lítt trúuð svosem) og söng hástöfum alla messuna,borðaði kalkún,fékk fallegar gjafir(reyndar eina hræðilega ljóta en það er ljótt að segja svona um gjafir af góðum hug), svaf af mér aðfangadagskvöld (var kosin skemmtilegasti fjölskyldumeðlimurinn það kvöldið), fór í fyndið fjölskylduboð, svaf meira, fór í árlega vitjun til lifandi ættingja og dáinna upp á Skaga, og endaði síðan jólaruglið á stórfínu stuðkvöldi í gær, dísan enda orðin vel eirðarlaus eftir jóladoðann.

Í gær varð ég líka vitni að undri. Vini mínum tókst að týna pizzu á leið heim úr bænum. Pizzakassinn komst helst til veðraður í hús. En pizzan ekki. Hvernig gerist það? Viðbjóðslega fyndið.

|

20 desember, 2005

...ég held að karlmönnum finnist það að borða viðbjóðslegan mat bera vott um óumræðanlega karlmennsku. Að minnsta kosti mínum karlmönnum. Pabbi og bræður hafa undanfarnar Þorláksmessur tekið upp á því að hittast á veitingastað í hádeginu og svæla í sig kæstri skötu. Aha, sömu bræður og fóru beinlínis að grenja við tilhugsunina um skötu ekki fyrir margt löngu. Þetta er greinilega eitthvað svona statement. Totally grown up and ready to swallow toxics.

Pabba er reyndar ekki viðbjargandi. Enda er hann töffari af guðs náð. Kom eitt sinn heim úr skötuveislu í Landsbankanum með skinnhulu munnholsins þannig lausa að það var hægt að fletta henni auðveldlega af. Honum fannst það frábært. Svoldið kæst, en klárlega þess virði. 'Sé þig í næsta stríði'(innanhúshúmor).

Mér var reyndar boðið með (til málamynda held ég, enda um árlega male-bonding stund að ræða) en ég afþakkaði pent. Borða ekki skötu - er því ekki fullorðin? Fine by me.

|

12 desember, 2005

Prófið yfirstaðið, kennaraviðtöl líka og dísan siglir sátt inn í 'jólafrí'. Komin langt með jólagjafakaup, en er sem fyrr í tvivl með hvort ég eigi að taka upp jólakortaskrif þetta árið. Er einhvern veginn hvergi nærri komin í jólaskapið...yfirleitt hittir það mig ekki fyrr en á þorlák. Katla mín kemur líka heim á þorlák, þannig ég hlakka til 23. Er búin að fara á tvenna jólatónleika, aðra frábæra og hina slaka, og leið í bæði skiptin eins og mér væri kippt úr hversdagsleikanum mínum inn í einhverja tilbúna stemningu sem ég væri klárlega stödd í á fölskum forsendum :)

...var annars veik heima í dag, og ákvað að verja deginum með ökklanum mínum á slysó. Þar beið ég vopnuð lesefni og nesti í 3 klukkutíma áður en nafn mitt var kallað, og eftir rúman klukkutíma af röntgen og spjalli við Rúnu lækni var ég útskrifuð með teygjusokk og lyfseðil fyrir íbúfeni. Frábært. Það fyndna er að Rúna læknir sem mætti mér með sjö mánaða bumbu var með mér í 3.bekk í MR...and it dawned upon me yet again..að maður er (eða að verða) fullorðinn. Og aldur er skv. deiglupistli mínum í dag - FÍNN!

yes yes yes

|

07 desember, 2005

jæja....próf kl 16 á morgun. Nú er ég búin að draga próflestursetu eins og ég frekast get - en það er einmitt miður leiður ávani sem manni tókst að tileinka sér á síðari árum námsferilsins. Don´t do anything till the heat is on.

Well...the heat is on.

|

05 desember, 2005

...maður ætti greinilega að vara sig á því að gleðjast ekki um of yfir óförum annarra...eins og þær geta nú verið fyndnar. Dísunni hefndist að minnsta kosti síðla föstudagskvölds þegar fall ársins á pæjuskóm dauðans átti sér stað. Á slíkum stundum er gott að eiga góða að sem bera mann á höndum sér og inn í leigubíl.

Ég sat því heima gríðarlegri sjálfsvorkunn afgang helgarinnar með hægri löpp upp í loft. Sunnudagurinn var þó langtum skárri þar sem ég fékk þær mæðgur Rakel Júlíu (snilling) og Katrínu Birnu í heimsókn til mín, og um kvöldið kíktum við Drífa á jólatónleika mótettukórs Hallgrímskirkju. Kórinn ásamt drengjasópraninum Ísaki, og saxófónleikaranum Sigga Flosa voru brilliant.

Ég hef oft ímyndað mér, þegar ég er á svona góðum, 'þýðum' tónleikum hvað það myndi algjörlega hámarka ánægjuna ef maður flotið um í þyngdarleysi á meðan. Væri það ekki superb? Að hlusta á æðislega tónlist og bara líða um á meðan. Líklega myndi einfaldasta leiðin til að raungera þessa fantasíu vera að fá sér bara einhver eiturlyf.....en ég verð líklega bíða átekta og vona að framtíðin beri þennan möguleika í skauti sér.

Eftir að hafa flett upp ökklanum í anatómíubókinni minni flottu, rökræddum við Rakel hvað gerðist í raun og veru þegar tognun á sér stað. Endanleg niðurstaða barst mér í sms-i frá Rakel Júlíu rétt í þessu:
tognun: liðbönd, liðpoki og háræðar rifna => blæðing og bólga.
Utanvert mar: bati 3 vikur.
Innanvert mar: bati 6 mán. Kæling, þrýstingur og hvíld það besta.

...og þar höfum við það gott fólk! :)

|

02 desember, 2005

:D :D :D

Ónefndum aðila tókst í morgun hið ótrúlega. Að læsa bíllyklana inni í bílnum eftir að hann hafði startað honum. Þannig gekk læstur bíllinn meðan ónefndi aðilinn þurfti að gera sér ferð niður í Vesturbæ til að sækja aukalykilinn. hahahahahaha. Takk fyrir þetta. Gríðarlega hressandi svona 'first incidence of the day'. ;)

|