Þá er komið að Pixies í kvöld...jibbíjei hlakka til. Átti fína helgi, var bara að vinna og dúlla mér. Hittumst síðan á laugardagskvöldið á Sólon, sem til þess komust úr árgangi '78 úr Seyðisfjarðarskóla...merkilegt hvað hlutfall snemmbrottfluttra var yfirgnæfandi..við hin erum kannski bara komin með leið hvort á öðru. Veit ekki, en þetta var mjög gaman...
25 maí, 2004
21 maí, 2004
fredag fredag..og það rignir. Sem er ekki það skemmtilegasta, en þegar maður horfir til þess að það var haglél á Costa del Sol í morgun....þá lætur maður það vera að amast meira við þessu. Spurning hvað maður á af sér að gera um helgina.
19 maí, 2004
Þórður Ásmundsson Júlíusson faðir minn er sextugur í dag! Til lukku deddio. Akkurat núna eru þau Erna einhversstaðar yfir Atlantshafinu að láta sig dreyma um sólarstrendur og kokteila sem bíða þeirra við lendingu. Dísan ein í koti.
18 maí, 2004
Prófið gekk vel! Eða svona u.þ.b jafnvel og það getur gengið með kvef í haus og hjartað á milljón. Mjöööög gaman, altso þegar allt var yfirstaðið ;) Nú er bara að krossa fingur. Já og í dag fékk ég ofnæmi, sem þýðir að það er sannarlega komið sumar. Flábælt.
17 maí, 2004
..búin að rembast við það í allan dag að ná raddböndunum góðum. Sítróna og engifer á kantinum. Svo er bara nett krafa að hugsað verði vel til mín um hádegisbil á morgun þegar ég mun standa frammi fyrir ákveðinni nefnd í ákveðnum skóla með hjartað í buxunum að líkindum. Henti í Deiglupistil í dag, frá mér til mín textasjúkrar ;D
13 maí, 2004
..jæja hvernig líst síðan fólki á nýja nafnið á vinnustaðnum mínum...Actavis hf.? Ég er að venjast þessu. Bý a.m.k eftir starfsmannafundinn góða í Smárabíó í gær svo vel að eiga derhúfu, bakpoka, lyklakippu, stuttermabol og svona þetta helsta með nýja lógóinu. Ný kona, og merkt. Það er allavega ægileg ánægja í Skútuvoginum með þetta, og hér er fólk t.d í óðaönn að berja saman söngtexta við abbalagið Waterloo, sem sungið verður hástöfum í rútuferðinni á morgun, auðvitað frumflutt sérstaklega fyrir Robba Wess. Actavis...! Allt heila batteríið er semsagt að fara í óvissuferð eftir vinnu á morgun, og þótt allt sé enn í sannarlegri óvissu með ferðina, eins og vera ber, þá hefur þó lekið út að eitthvað verði um brjóstyljandi veigar. Mitt fólk hafði nefnilega af því stórar áhyggjur að um einhverja coca-cola lest yrði að ræða, en það var sumsé óþarft. Því má búast við því að einhversstaðar á Suðurlandinu muni á 5. hundrað starfsmenn Actavis fagna saman í leikjum og öðru glensi. jamm.
11 maí, 2004
Fékk þennan smellna líffræðibrandara sendan áðan; "Did you hear about the biologist who had twins? She baptized one and kept the other as a control". hehehehehe
10 maí, 2004
...átti heldur fjörlega helgi. Drjúgum hluta sunnudagsins eyddi ég hinsvegar í rólegheitum með móður í Hveragerði, þ.á.m í Eden. Eden er bara svoooo fyndinn staður. Með sína skelfilegu kaffiteríu, útskorna tréverk, gróður þar sem honum verður við komið, 100 furðulegar lyktir...og staðurinn hefur ekki breyst neitt í 20 ár. jamm. Annars átti Valþór Ásgrímsson snillinguf, verðandi maraþonkappi og frumulíffræðingur afmæli í gær. Hamó Valli. Ég vek athygli kærra vina minna á því að ógnvaldar lífs míns, þverröndóttar svartar og gular, eru óumflýjanlega komnar á stjá og dísan vígbýr sig. Hvet ykkur til þess sama.
05 maí, 2004
Þetta er eitthvað ægilega skemmtilegur dagur af engum sérstökum ástæðum. Sem er gott. Þessi netti sumarfirðingur kominn í mig ha. Ætla henda mér í spinning eftir vinnu og gera svo eitthvað skemmtilegt. Ég er í einhverju kasti núna, og m.a.s búin að skrá mig í hlaupahóp Delta..go figure...
03 maí, 2004
|02 maí, 2004
2. maí og ég er með höfuðverk af svefni. Hef fundið mér nýjan félaga síðan síðast, Sony Ericsson T610...og hann er allt sem ein kona gæti óskað sér.
