Hmmmmm

26 febrúar, 2006

Móðir mín, Erna Gunnarsdóttir fagnar 60 ára afmæli sínu í dag. Knúsuð, kysst, gjöfuð og dænuð er hún í lok dags. Til hamingju mamma mín.:)

....annars er Katlan á klakanum, og helgin eftir því - helvíti góð :)

|

21 febrúar, 2006

...ég get ekki sagt annað en að ég hlakki til vikunnar í maímánuði sem fær endi sinn í Eurovision. Hversu skemmtilegt verður að fylgjast með sirkus Silvíu Nætur?? Mjööög.

Partýið hjá Betu var alveg hryllilega skemmtilegt, og þegar 6 x Silvíanótt plús eitt par Hommi og Nammi, náðu niður í bæ var sigurpartý SN - í eðlilegu framhaldi og í fullkomnu samhengi - crashað. Ég verð að segja að það er ákveðin upplifun að crasha celebpartý. Það var eiginlega hilarious. Það lá einhvern veginn fullkomlega í hlutarins eðli. Þetta SN partý hennar Betu átti í heild sinni eðlilegan og sjálfsagðan stað í þessu VIP geimi. Og það var fjör.

Opinn bar, celeb og gleði. Og Ég. Non-celeb. Sem fór snemma heim :)

Þrjár mucho importanto konur í lífi mínu hafa átt afmæli í þessum mánuði. Sunna þann 4.feb, Þóra Kristín þann 13.feb og Erla Rut 18.feb. Þær hafa allar þegar fengið knús, en fá þessa kveðju að auki. Til hamingju Ísland....nei ég meina með afmælið.

Síðar.

|

03 febrúar, 2006

Já. Fannst kominn tími á eins og eina færslu. Dyggum veffarendum til handa. Hef þó heldur lítið fram að færa, frjótt eða skemmtilegt. Er svo praktísk, skipulögð, einbeitt og upptekin þessa dagana að ég er hálfleiðinleg. Svoleiðis.

Gleðilegt er þó að á morgun 3.febrúar verður Deiglan.com 8 ára gömul. Það finnst mér frábært, og ætla að skála fyrir henni með deiglungum. Lifi Deiglan!

|