Það var óneitanlega freistandi að taka frídag í dag eftir helgi marineringar, enda aðeins 23 klst í brottför í Berlín-Zürich-París rúntinn okkar Ívars Páls. Flest er til reiðu, og eina planið okkar er að hafa ekki alltof mikið plan. Borða góðan mat, drekka gott vín, horfa á fólk og hitta vini okkar.
Hryggilegt er þó á þessum degi að Silfrið er í lamasessi. Ég veit þetta er bara bíll, en mér finnst það alveg genuinly leiðinlegt. Minn fákur og förunautur.
Við verðum að sjálfsögðu á tæknivæddu ferðalagi - reporting next time from Berlin.
