..hamingjuconceptið. Þráinn Bertels tjáði sig um hamingjuna í einhverju viðtali í tv-et um daginn og mér fannst hann hafa skemmtilega heilbrigða sýn á hamingju. Að hamingja sé ekki eitthvað eitt stórt ultimate bliss, þar sem allt fær sinn stað og allt fellur í ljúfa löð. Blissið sem allir bíða eftir en virðist aldrei í heild sinni koma. Hamingjan sé heldur augnablik. Þessi augnablik sem eru alveg sérlega misjafnlega merkileg, og eru jafnvel hin fábrotnustu þau fullkomnustu. Í einfeldninni. Ég amk skildi alveg hvað hann var að fara, og á í minningunni algjörlega fullkomlega hamingusöm, en nauðaómerkileg moment. T.d ein á gangi við tjörnina í vetrarsól, sem ég kýs að flokka undir hamingju. Jamm það held ég nú. Spöööök maður.
30 október, 2003
Lufsaðist til allrar lukku loksins í leikfimi í dag. Mörg L-orð. Sem var síðan-eins og alltaf þegar öllu er yfirlokið-alveg hreint lovely. Vikuskróp skrifast á reikning ofmætingar á liðnum mánuði. Er það ekki hægt? Er allavega gríííííðarlega spræk, og mun með þessu áframhaldi skora á Kötlu á armbeygjukeppni þegar hún kemur heim frá Strass. Þetta er náttúrulega brandari hjá mér þar sem að hún gerir 50 á tánum svona rétt fyrir svefninn......hvað er það?
28 október, 2003
Það vill svo til að þó ég sé bílnotandi nýorðinn, er ég ekki bíleigandi, heldur bílleigjandi. Frá og með deginum í dag er ég hinsvegar orðinn dekkjaeigandi. Fór nefnilega, í framhaldi af því að hafa beinlínis runnið ofan úr Kópavogi í vinnuna niðrí Skútuvogi, að grennslast fyrir um dekkjamálin á bílnum mínum, og seisei, nei, dekk eru ekki inní rekstrarleigu. Af hverju dettur sölufólki ekki í hug að smella dekkjakostnaði inní þjónustupakkann? Miklu einfaldara. Þannig ég er óumflýjanlega orðinn stoltur eigandi fjögurra fagurra nagladekkja. Mér finnst þetta náttúrulega alveg steikt. Þannig eftir tvö ár, þegar ég að öllum líkindum kveð Silfrið, þá get ég að minnsta kosti huggað mig við það að eiga fjögur fögur nagladekk. Yeesssss!
27 október, 2003
Fékk 2 alveg sérstaklega frumleg afmæliskort á laugardaginn. Annað var skrifað með hvítu á svarta sundhettu en hitt aftan á spjald úr 'Hreiðuspjaldskrá Náttúrufræðistofnunar' . Snilld. Enn fremur verður að hrósa Jónasi og Úlla frænda sérstaklega fyrir frumlegheit, en þeir mættu með fallegt hálsmen og geisladisk, sem komið hafði verið snyrtilega fyrir á gulum klósettpappírsrúllnapakka úr bónus, en þar á hafði einnig verið tyllt eins og einu Bernaissósubréfi, og öllu pakkað í sellófan. Hamingjuóskir voru síðan ritaðar á barnabókina 'Herra Kitli' og þar fylgdi með ljóð, eða orðasamsuða um Toysungann, sem mun vera ég. Gaman að þessu.
jaherna góð helgi liðin. Blístrandi kát með gleðina mína, og þá sem glöddu mig bæði með komu og gjöfum. Var óskaplega ánægð með allt, og er nú heldur betur í stakk búin undir listilega kaffigerð, léttvínsdrykkju, konfektát, ljóðalestur og fleira gott. Hugsa að ég taki jafnvel uppá þessu aftur við tækifæri, þ.e teitluhaldi.
Óli skóli, varð 24 ára þann 25. október. Til hamingju óli minn!
24 október, 2003
..og guð skapaði diet kók. Ég er ekki frá því að mín kona, Kirsten, sé að rúlla upp Bachelor. Hinar stelpurnar hata hana, en hún spilar leikinn. Hugsa ég gæti unnið veðmálið.....skrapp sumsé til Fönnsu í Bachelor og diet kók. Fanney er búin að sitja sveitt við (nb. í fyrirlestrum í skólanum) og downloada fyrir mig pottþéttri teitlutónlist, sem mun fá að njóta sín á lau. Fékk prufuhlustun áðan og komst í þvílíkan gír. Langar rosalega til að segja frá því sem að Fanney uppgötvaði um sjálfa sig og píkupopp, en hætti ekki á vinslit. lol.
21 október, 2003
jaherna hér, var að byrja að glugga í áhættugreiningu vegna hugsanlegs Kötlugoss, úff. Best að setja sig í stellingar.
Leysnihraðatækið var með derring í dag. Ég varð fyrir frekar miklum vonbrigðum enda taldi ég okkur hafa náð ákveðnu samkomulagi, um hvernig best væri að komast í gegnum daginn án teljandi vandræða og tafa. Held samt að við höfum skilið sátt. Kannski það sé fúlt út í hörkumælinn, sem var að komast í lag, enda hef ég eytt umtalsverðum tíma undanfarið með honum. Ég veit það ekki. Maður getur ekki skilið allt. Síst af öllu tækjabúnað á mótþróaskeiðinu.
18 október, 2003
Þetta er langur laugardagur. Þeir hafa tendens til þess dagarnir þegar maður vaknar snemma sjáiði. Maður bara gerir það ekki svo oft á frídögum, og þ.a.l eru frídagarnir alltaf töluvert styttri. Ok ég er greinilega óvenjulega spök í dag. Vaknaði snemma, dagurinn ekki enn hálfnaður og ég er búin að fara í leikfimi og á kaffihús og det hele. Kvöld trompanna hefst um níu á garði Guðfinns, tilhlökkunarefni. Hver veit nema við dettum í stofuganginn eða eitthvað ámáta skemmtilegt! Fjórir í mánuði! :D
17 október, 2003
Já, svo þessu sé framhaldið...þá er gamli Skuggabarinn að fara að opna á laugardaginn sem Borgarbarinn. Veit reyndar ekki meira um þetta nema það að brósi, Björn og Kári eru að fara að spila. Hvet alla sem leið eiga á tjúttið, að reka inn nefið.
Það er komið að því. Hildirhans og Kári munu stíga á stokk á nýjum bar í borg óttans á laugardagskvöldið. aaa rokin, sýnataka.
Svona er stemmningin í vinnunni hjá mér. Gaman að þessu.
15 október, 2003
Ég á víst afmæli í dag. 25 orðin. Töttogu og femm. Það er aldeilis. Gengur ekki lengur að segjast vera um tvítugt. Hefur alltaf þótt svolítið óþægilegt að eiga afmæli, en dagurinn er góður. Lífið gott. Held bara að ég sé í ríkara kantinum. Þakkir fyrir kveðjur og knús vinir mínir.
12 október, 2003
Stúlkan sem fer ekki í ljós fór í ljós. Ég er nefnilega yfirlýst 'á móti ljósum'-manneskja allra hluta vegna. Hélt einhvern veginn að ég væri búin að taka próf í rannsóknum um órjúfanleg tengsl krabbameins og UV-geislastökkbreytinga osfrv osfrv, en nei. Neineinei. Best að smella sér svoldið í ljós, fá sér tvær þrjár freknur og frískleika...og brunninn botn. Ái. En er ekki allt gott í hófi?? :) Er ekki líka hægt að fá krabbamein af því að overdoza á gulrótum? Sjálfsagt.
11 október, 2003
|Landsleikur eftir klukkutíma. Fréttnæmt þykir sjálfsagt að ég ætla að horfa á hann. Get nefnilega alveg misst mig þegar kemur að þjóðarslag. Var annars á barvaktinni í gær hinum megin borðsins. Allt við það sama á Næstabar. Sama fólkið, sama stemmningin, sama tónleysið. Blessun að Heiðrún er á minni vakt. Annars erum við Erna á leiðinni í löngu overdue íþróttaskókaup handa dísunni en förum að því búnu í að vinna að því að koma okkur í andlegar stellingar fyrir innrás, því Snær og Salóme koma í kvöld í Blásalina. Þau munu vafalítið sjá ömmu sinni og afa fyrir skemmtun í kvöld og snemmteknum og orkuþrungnum sunnudagsmorgni. Líklega vænlegast að yfirgefa svæðið:)
09 október, 2003
Bachelorgeðveikin náði hámarki í vinnunni í dag. Í dag var nefnilega síðasti dagurinn til að veðja á rétta stúlku til handa hinum unga og lofandi piparsveini mr. Firestone, eða Eldsteini eins og hann er kallaður í Omega. Mikil leynd hvílir yfir vali hvers og eins, og spennan mun magnast eftir því sem að fleiri blómarósir fara rósarlausar á brott frá Eldsteini. Ég hef aldrei getað fylgst með þessum ósóma, en þetta þykir mikill húmor og skemmtun í vinnunni hjá mér....þannig það er annað hvort að horfa eða þola kalda félagslega einveru í föstudagsmorgunkaffinu (nb. Bachelor er sýndur á fimmtudagskvöldum). Ég hef því valið mér gæðing, stúlku, og legg 500 kall undir. Eins gott að mín kona standi sig í hösslinu.
06 október, 2003
Held ég sé orðin netfíkill. Kemst stundum hvorki á netið eða msn-ið heilu dagana í vinnunni, og mér finnst bara eins og ég sé að kafna. Svo kemst ég loksins heim, tengi mig um leið og er svalað. Frekar steikt. Líður altso frekar vel núna :)
05 október, 2003
Við í Omega tókum 2.sætið á föstudagskvöldið. Við vorum frekar sátt við það. Villi stóri í blönduninni og félagar hans, tóku 1.sætið, en þeir áttu það alveg skilið, þeir voru glæstir. Stakk af í þann mund sem Bjöggi hóf raust sína í rauðri hawaiiskyrtu, og fann líffræðiliðið á hverfis. Endaði með Fönnsu á Ölstofunni, þar sem að ungur maður fann sig knúinn til að deila með mér misheppnuðu deiti með nýorðinni kærustu sinni sem hefði endað í því að hún stakk hann af. Ég sagði honum bara að kvenfólk væri geðbilað. Hann virtist nokkuð sáttur með það. Góðverk kvöldsins. Tók vidjópakkann á lau og var því ólíkt hressari þennan sunnudaginn en margan annan. Agnes Marí eyddi síðan deginum hjá okkur í Blásölum. Stúlkan er orðin 8 mánaða og farin að standa upp. En ekki mikið meira en það og því er blessunin eilítið marblettuð.
02 október, 2003
Náði því loksins í gær að heyra tónlist flutta á Næsta bar. Súkkat meðlimir (sem einnig eru mublur staðarins) voru mættir galvaskir til leiks og voru snilldarlegir. Ég kunni reyndar færri lög en flestir þarna inni en staðurinn var pakkaður og stemmningin stórgóð. Á döfinni; Á morgun er Ramiprilfest. Já það er rétt. Ramiprilfest. Ramipril er semsagt hjartalyf sem að Delta er að fara í gang með að vinna. Í því tilefni var ákveðið að blása starfsfólkið af stað með heljarinnar veislu á NASA. Jú, einmitt, starfsfólki og mökum er boðið á barinn og á Deltaskemmtun á NASA. Síðan er þar ball á eftir með Brimkló. Á milli deildanna, sem eru þónokkrar, verður síðan keppni um frumlegasta auðkennið. Ég get auðvitað ekkert upplýst um hið magnaða auðkenni Omega Farma á þessari stundu (við erum líklega að fara að vinna, enda titill að verja), en get þó sagt að höfuðskrautið sé þess eðlis að það krefjist þess að sá sem það ber, drekki hvað það sem í boði er. Þó ekki meira en svo að það verði örugglega tekið niður þegar brimklóin byrjar og NASA yfirgefinn.
Hvað á maður að segja um svona vinnubrögð eins og viðhöfð voru innan fráfarandi stjórnar Heimdallar á dögunum. Svívirðilegt? Lágkúrulegt? Eða bara rangt? Á erfitt með að velja því þankagangurinn sem býr að baki er mér með öllu óskiljanlegur. Rangur segi ég.
