Við komumst að því fyrir rælni, ég og einn vinnufélagi minn að við höfum bæði dálæti á ljóðum. Síðan þá höfum við verið að skemmta okkur yfir nokkrum slíkum og kynnti hann mig fyrir prýðisskáldinu Erni Arnarssyni (Magnúsi Stefánssyni). Ótrúlega skemmtilegur, með látlausan og tilgerðarlausan stíl - maður að mínu skapi. Ég læt tvö af þeim sem kættu mig fylgja hér:
SKÖPUN MANNSINS
Alfaðir í Eden fann
apa, sem um greinar rann,
ætlaði að gera úr honum mann
sem elskaði guð og náungann.
Sat hann við með sveittar brár
sextán hundruð þúsund ár.
Apinn reyndist þrjózkur,þrár,
þykkjukaldur og hyggjuflár.
Að hálfu leyti api enn,
eðlin geymir tvenn og þrenn,
lítil von hann lagist senn.
Lengi er guð að skapa menn.
BÓKIN
Við vorum um daginn og veginn
og veðrið og lífið að spjalla.
Mér fannst þú þykk og fáséð bók
og fýsti að lesa þig alla.
Svo fáséð og fallega bundin,
og fremst var snoturt kvæði.
Ég fékk þig að láni, fór með þig heim
og fletti þér í næði.
En að fletta þér allri
var okkur báðum skaði,
því í þér fann ég ekkert nýtt.
Allt var á fremsta blaði.
