Plön fyrir næstu viku (r) hafa skyndilega tekið óvænta stefnu. Ég ákvað af einhverri rælni á surfi mínu um vefinn að líta inn á háskólavefinn og kíkja á próftöflu sumarprófanna, bara að skoða. Er nefnilega fyrir löngu búin að skrifa upp próftöfluna mína fyrir þessi 2 próf, og skipuleggja mig útfrá þeim, auðvitað-ég er svo forsjál hehe.....kemur ekki bara í ljós að prófið sem ég vissi að væri 23. ágúst er 15. ágúst. Sem er auðvitað alger snilld! Þannig að ég hef í dag reynt af öllum kröftum að hunsa köggulinn í maganum á mér um leið og ég hef verið að reyna að losa tíma frá hinu og þessu, m.a. vinnu til að geta grúft mig í bækurnar og bjarga því sem bjargað verður..ekki sátt.
07 ágúst, 2002
06 ágúst, 2002
Ég er nú ekki meiri skáti en svo, að ég canceleraði útilegunni, rétt fyrir brottför á laugardaginn. Leist vægast sagt illa á blikuna, veðurfræðilega séð. Skynja það ekki sem eitthvað möst að liggja kaldur og blautur í strigahúsi, bara af því að helgin heitir Verslunarmannahelgi..en þó er frekar leiðinlegt, að ef fer sem horfir, þá verður þetta útilegulaustasta sumarið í lífi mínu frá byrjun.... Mér fannst þá bara tilvalið í staðinn að bjóða í teitlu, og nýta mér það að foreldrar mínir voru að heiman. Teitlan heppnaðist með afbrigðum vel, og þangað bauð ég góðu fólki, gömlum og góðum frá Seyðisfirði sem og líffræðiliði, svo þetta var pottþétt líffræðiskotin Seyðfirðingateitla. Björn Hildir greip gítarinn þegar hann hafði hitað sig upp, og stjórnaði skörulega hópsöng og gripu teitlugestir margir, það sem höndinni var næst og hristu það ýmist eða börðu, eftir behag til að fá innlegg í gjörninginn og heppnaðist þetta allt með eindæmum vel, og var ógeðslega gaman. Takk fyrir mig krakkar. Framundan er spennandi vika..meira um það síðar.
