Hmmmmm

29 október, 2002

Tuesday tuesday, það byrjaði að snjóa í dag. Fór í angurvært skap og langaði helst að kúldra mig undir sæng og koma undan henni á Þorláksmessu. Kláraði litingafarþegafyrirlesturinn í gær sem var þvílíkur léttir. Svaf lítið nóttina áður, og var svo stressuð að ég var róleg. Svo gekk þetta bara svona ljómandi, þó ég hafi reyndar tekið krabbameinsumræðuna út frá röngu geni!! En ég meina, hægan æsing, hver er munurinn á aurora A og aurora B?? Hehe, þetta finnst bara sameindalíffræðingum fyndið. Fór svo með Kötlunni á Dillon og fékk mér bjór til að halda upp á þetta. Það er alveg fyndinn staður, eins og tímaskekkja, á vissan hátt, sem geymir þó einn flottasta bar sem ég hef séð, gamlan og solid. Er að fara í alifuglasláturhús í fyrramálið að safna sýnum, en ætla að skella mér í leikhús eftir hádegið og borða súpu í Veislunni. Hlakka til, sá myndina í fyrsta skipti fyrir ekki svo löngu síðan og fannst hún mögnuð. Er annars að spá í að skella mér til Frakklands um jólin. Hef ekki komið út fyrir landsteinana síðan vor ´99 og finnst þetta orðið gott. Pæling.

|

23 október, 2002

Jæja...við erum hólpin á Gásnum á ný, eftir ferð og upplifun sem alveg mætti flokka sem lífsreynslu. ahhh þarf að hlaupa meira á morgun

|

Það er ótrúlega fallegur miðvikudagur, sem væri svo tilvalinn til að eyða í einhverja skemmtilega útivist. En mín ætlar, ásamt öðrum jafnáhugasömum bakteríufræðinemendum og ég er, að eyða deginum í svínabúi á Kjalarnesi, þar sem við ætlum safna....haldið ykkur...saur. Svo ætlum við að ferja hann í bæinn, n.t.t í Ármúla 1a þar sem við reynum að finna út hvaða bakteríupartý er í gangi í þörmum svína..... Þetta er góður dagur.

|

21 október, 2002

Ég svaf í 13 tíma í nótt. Það út af fyrir sig er fáránlegt. En mér líður líka alveg ótrúlega. Ég held að það hafi ekki verið ítrekað nógsamlega hvað svefn er mikilvægur fyrir heilsuna, líkamlega og andlega. Ég segi þetta ekki bara í framhaldi "æðislegri" nótt, heldur af því ég þekki alveg ótrúlega mikið af vansvefta fólki, og það er mín einlæga trú að góður svefn geri allt betra. Ja flest að minnsta kosti.

|

17 október, 2002

Jafet Sigfinnsson frændi minn á Seyðisfirði á afmæli í dag. Ástæðan fyrir því að mér er hugsað til hans í dag, er reyndar ekki sú að ég sé svona frændrækin, heldur frekar sú að drengurinn fæddist tveimur dögum eftir að ég varð 12 ára. Ég var mikið með hann lítinn. Í dag er hann 12 ára, og ég ......þ.a.l orðin 24. Sem er fínt. Ég fæddist semsagt 15. október 1978 um kaffileytið í Reykjavík, sem var sólríkur sunnudagur að mér skilst. Ég veit að mamma var að bugast þessa daga, með bumbuna útí loftið, og alveg sannfærð um, af spörkunum að dæma, að þriðji drengurinn væri á leiðinni. Það er til æðisleg mynd af henni 2 dögum fyrir fæðingu þar sem hún situr í stofunni í Furugerðinu, með prjóna í kjöltunni, og með hönd, sem hún styður með bumbunni, undir vanga og strákarnir í stríðsdansi í kringum hana. Uppgefin. En svo fæddist stelpa, og bræður mínir urðu vægast sagt vonsviknir, enda ekkert hægt að leika við stelpur eða sparka með þeim bolta. Þeir gerðu nú samt gott úr hlutunum býst ég við, þar sem ég var bæði stuttklippt og bláklædd að eigin ósk fram eftir aldri. Anyways, það er brjálað gera. Fyrirlestur dauðans númer 2 coming up, og vakan sefur aldrei.

|

06 október, 2002

Það fór víst ekki alveg eins og ég hafði spáð, þ.e. að himnuflekavísindin og ég yrðum ein samfella....stemmningin aðfaranætur föstudagins, dómsdagsins, var orðin frekar súr klukkan hálfsjö, og eftir ögn dramatískari atburðarrás sem er óþarfi að útlista, fékk ég frest. Svo það er bara 'back to the drawingboard' . Annars hittumst við vökustelpur á föstudagskveldinu, og það var ótrúlega gaman. Mætti á Astró um tíuleytið, og þá var þar pakkað af háskólanemum útúr dyrum. Það var líka auðséð að vel hafði verið veitt í vísindaferðunum :) Tékkuðum okkur svo inn á Hverfis, sem er náttúrulega ákveðin skyldumelding, og gerðum góða hluti þar. Mér reyndar tókst að glata peningaveskinu mínu,en ég fékk það til baka daginn eftir, en þá var auðvitað búið að hreinsa það af öllum peningum, seðlum og klinki, og síðast en ekki síst, hafði þessi óprúttni aðili séð sér mikinn feng í að ræna strætómiðunum mínum!!! En debetkortið, ökuskírteinið, organ donor kortið og ljósritunarkortið fengu frið. Gottgott. Á laugardaginn, þegar ég vaknaði um kvöldmatarleytið (ég er frábær), fórum við Katla í matarboð til mömmu minnar. Þar voru mættar 3 systur pabba, og maður einnar þeirra, bræður mínir báðir og þeirra fjölskyldur-og svo mætti ég með Kötlu. Okkur fannst þetta frekar fyndið, en hún er auðvitað albesta boyfriend-substitute sem maður gæti hugsað sér. Og maturinn....ótrúlegur. Mamma heldur því fram að henni þyki leiðinlegast að elda, en ég bara er ekki sannfærð, því hún hefur eitthvað alveg sérstakt ´touch´ í eldhúsinu....ah, verð að fara , meira síðar...

|