Varð þeirrar gæfu aðnjótandi seint í gærkvöld, að fá loksins að heyra nokkur lög af margumtöluðum disk indversku prinsessunnar Leoncie, Sexy loverboy. Þetta er náttúrulega tær snilld, bjargaði algjörlega deginum. Textarnir fundust mér sérstaklega skemmtilegir, en Leoncie er greinilega eldheit, ástríðufull og rúmlega sæmilega sátt við eiginmann sinn. Ég gef henni rokkstig fyrir að vera sjálfri sér samkvæm í (list)sköpun sinni og vera bókstaflega ekki að reyna að gera neinum öðrum til hæfis en sjálfri sér.
28 nóvember, 2002
Happy to be...a biologist! The best job in the United States is that of biologist, according to this year´s ranking by the Jobs Rated Almanac. Biologists have moved up from 23rd place a few years ago to displace financial planners at the top of the heap. "I´m not suprised," says Howard Garrisson, spokesperson for the Federation of American Societies for Experimental Biology. "They all love their work." Garrison, a sociologist by training, says you can´t beat that combination of intellectual stimulation and the opportunity to improve poeple´s lives. :) Vonum það.
26 nóvember, 2002
Skilaði inn litningafarþegaritgerðinni í dag,-ótrúlega ánægð. Fór og keypti smekklega möppu, bólstrað umslag og setti hana í póst. Afgreitt. Síðan er það var spurning um að gera plakat dauðans fyrir Guðna örveru. Ég hef t.d. alltaf verið sehr intressieret um einsleit örverusamfélög í svömpum úr mismunandi höfum. Halelúja.
Ég frétti að Strandatindur væri við það að hrynja niður. Það er ekki gott. Það hefur víst rignt mikið undanfarnar vikur, og skv. veðurbörðum, frústreruðum Seyðfirðingum hefur ekki stytt upp síðan í maí. Mér þykir nóg um þegar snjórinn fellur úr fjöllunum um vetur, hvað þá að fjöllin hrynji í snjóleysu. Allavega...það fer að koma að þeim tíma að sólin hættir að sjást í firðinum, og lætur ekki sjá sig aftur fyrr en um miðjan febrúar-það er skrítinn tími. En þar er gott að vera.
20 nóvember, 2002
Í kvöld kl 21 stendur Vaka fyrir umræðufundi um raunveruleikasjónvarp á Stúdentakjallaranum. Það gæti orðið áhugavert. Eitthvað sem flestir líta hornauga, en allir virðast sogast að.
18 nóvember, 2002
Fór í gær með Brynna ( Armed wolf son of Stefan) og Ástu Sóllilju að hitta bekk af bandarískum ungmennum. Þau eru búin að vera hér í nokkra daga í tengslum við kúrs, Skandinavískar bókmenntir eða eitthvað þvíumlíkt, sem þau eru í á sínu 1.ári í háskóla. Kynntum HÍ og stúdentaráð, og svöruðum spurningum. Ólíkir veruleikar sem við búum við dags daglega í leik og starfi, en fyrir utan þann eðlismun sem er á stjórnsýslu og umgjörð háskólans þar og hér, verður náttúrulega að líta til þess að þau eru bara 17-18 ára og við, já , eldri.
Fólk er að hrynja í veikindi þessa dagana, og ég spái sjálfri mér falli innan skamms. Hans Júlíus, Björn Hildir og Kári frestuðu einmitt spilamennskunni á laugardaginn því Júlli kom ekki upp tóni. Ekki gott. En við fórum bara á Hverfis í staðinn, þar sem plötusnúður dauðans var við völd. Hann kveikti ekki einu sinni þegar Valli og Katla báðu um lagið Hang the DJ. En þetta var bara alveg bráðfínt.
16 nóvember, 2002
Mín vaknaði eldsnemma og trítlaði á Gásinn í morgun. Vel sátt við sjálfa mig,- og þar sem ég trúi því að samkvæmt afköstum skuli verðlauna, ætla ég leggja puttana á púls miðbæjarins í kvöld..og etv stíga dansinn. Þríeykið Hildir hans Kára míns eru að spila í kjallara Celtic Cross um helgina, og planið er að kíkja þangað og tékka á strákunum. Ég spái rífandi stemmningu.....
14 nóvember, 2002
Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt. Í gær fór ég í dagsferð og skoðaði ástand skólpmála á Suðurlandi. Þetta var svoldið magnað. Komst að því að þessi mál eru yfirleitt í algerum ólestri, og eini sómasamlegi staðurinn til að gera þarfir sínar á með góðri samvisku, er í Hveragerði. Þeir eru alveg að standa sig.
12 nóvember, 2002
Er víst á leið uppí sveit í dag, þar sem planið er að taka blóð úr kind annars vegar og hesti hinsvegar. Rollu og hrossi. Strákarnir fóru í gær, og þeim fannst tilhugsunin um hvernig við Katla myndum höndla mykjuskotnar blóðtökur tryllingslega fyndin. Hvað meina mennirnir?
Mér líst svoldið vel á þessa stelpu. Hún heitir Soffía Kristín og er í framboði. Tékkið á henni.
04 nóvember, 2002
Já og svo eitt í lokin, af því ég notaði skemmtilega orðið funky hérna að neðan. Ég heyrði nefnilega svo skemmtilega þýðingu á því, að sjálfsögðu í textabroti á bandarískri bíómynd á stöð 1, þaðan sem öll raunveruleg undirstaða minnar ensku er upprunnin, en hún var semsagt hrynþokki. Snilld- funky music altso hrynþokkatónlist. Leikur að orðum :)
Annars átti ég góða góða helgi. Fór á guðdómlegt tilgangslaust ráp í verslunarmiðstöðvum eftir himnuflekafyrirlesturinn á föstudaginn, fékk mér Gleym mér ei borgara á Vitabarnum í kvöldmat (sem er hreinasta snilld), rústaði ásamt Kötlu, Actionary á móti Óla og Valla síðar um kvöldið (við unnum víst!), og fór svo hamförum á Hverfis, rosalega gaman. Laugardagskvöld var tileinkað kræklingum. Líffræðinemar fóru í Hvalfjörðinn fyrr um daginn og týndu krækling, sem var svo soðinn í súpu, sem fólk borðaði að sögn með bestu lyst, ásamt hinni víðfrægu Haxa-bollu. Ég kom seint, sem var ágætt, ég er ekkert sérlega mikið fyrir að borða það sem býr í hafinu, a.m.k það sem fer út fyrir þennan temmilega venjulega ýsuramma. Það var mjög fínt, en kvöldið áður, og þessi funky chicken sem ég át fyrr um daginn stuðluðu að snemmbúinni heimför...sem var gottgott. Fór á hroðamyndina Red Dragon í gær, sem er í frásögur færandi. Hún var bara alveg fín. Ekkert skelfileg þannig. Góður endir á góðri helgi. Ta ta.
Það er komið að þessum tíma annarinnar, að það rennur upp fyrir manni að allt sem maður bölsótaðist yfir í síðustu prófum, og lofaði sjálfum sér betrun og bót um í upphafi annar, er SVO að fara að gerast að nýju. Þá fer maður að nálgast gömul próf, og blikka í allar áttir og innheimta alla útistandandi greiða, og svaraðar prófspurningar verða að gjaldmiðli.
