Aðfaranótt laugardags, á sama tíma og ég barðist fyrir inngöngu á Hverfisbarinn, barðist Agnes Marí bróðurdóttir mín nýfædd, fyrir tilveru sinni og við frænkurnar höfðum þetta báðar af. Þó er ljóst að hennar atlaga og "entrance" var að öllu leyti og algjörlega merkilegri en mín. Gunnari Kristni bróður mínum og Evu Hrund hans fæddist sem sagt þessi ljómandi fallega stúlka, 16 merkur og 53 cm, rétt eftir miðnætti og skrifast því á 28.desember. Okkur virðist eðlilega sem að barnið beri Grundarættareinkenni öll, en foreldrarnir hafa gefið það út að hverjum og einum megi finnast hann eiga eins mikið í Agnesi Marí og þeim sýnist og það verður nýtt til fullnustu. Velkomin Agnes Marí Gunnarsdóttir.
29 desember, 2002
27 desember, 2002
jæja, þá er maður búinn að snúa sólarhringnum við eins og vera ber um jól. Nýskriðin framúr og á leið út í lífið. Frostið. Það verður gleði í Kópavogi í kvöld því Siggeir sameindanörd er mættur á klakann í stutt stopp og býður í bio-partei. Vantar bara Yann og Kötlu sem bæði eru í frönskumælandi fáránlegheitum sitt hvoru megin Atlantshafsins, fjarri góðu gamni. Ólafía Lár er hinsvegar komin heim frá Svalbarða og mætir eflaust með ísbjarnasögur. Ómissandi. Eyddi gærkveldinu/nóttinni með Hrönnsu, Urði og Auðuni og þau reyndu að kenna mér Kana....ég skil ekki enn af hverju fólk vill segja tíu slagi eða kani, ef það eru yfirleitt helmings líkur á því að fá það allt í mínus. Af hverju segir það ekki bara pass þegar það frekast getur. Play it safe. Ég er kannski "dull" spilafélagi, en punkturinn er samt sem áður sá að ég vann!!
25 desember, 2002
Aðfangadagur, dagur aðfanga? Anyways, átti indælan dag. Litla fjölskyldan af Laufásveginum kom til okkar um fimmleytið, og sýndu okkur í Fífulindinni svo ekki var um að villast að jólin eru hátíð barnanna. Það flaut allt í gjöfum, og sú sem vakti mesta athygli var páfagaukur sem hann Snær litli fékk frá Júlla bró og Sossu. Ég bið fyrir fuglinum.
Ég fékk líka nokkrar gjafir, þó þeim fari reyndar óðfluga fækkandi með árunum, en það er samt allt gott og blessað því á sama tíma hefur hátíðleiki jólanna minna færst frá gjöfum yfir í að njóta í mat og drykk, og glugga í jólabókina.
Ég fékk skó frá m&p, sem ég valdi reyndar sjálf, en það hefur reynst heillavænlegast að fara með mor í slík mál. En allt hitt var óvænt! Fékk líka ljóðabókina Hvar sem ég verð eftir Ingibjörgu Haralds frá m&p, en það er von móður minnar að bókin verði mér innblástur og endurvekji skáldið, ef skáld má kalla. Svo fékk ég gamla George Michæl diskinn, Listen without prejudice, sem er algjört listaverk. Fékk hann frá Gunna bró sem var greinilega að hlusta þegar ég lofsamaði diskinn fyrir mörgum mánuðum. Svo fékk ég “í búið” frá Júlla og Sossu, sem var mjög flott, dökkt stell. Þetta er gjafaflokkur sem virðist hafa fest sig í sessi hjá mér undanfarin ár, og ég veit ekki nema að það sé verið að hinta að einhverju við mig. Fékk pæjutösku frá Erlu Rut og heimlagað pesto frá Þóru og Guðný orti til mín ljóð. Það er ekki amalegt að eiga svona fjölskyldu og vini. Takk fyrir mig öll.
23 desember, 2002
|Er annars búin að hafa það ansi ljúft síðan prófin kláruðust. Svoleiðis búin að rækta vinagarðinn að leitun er að öðru eins, en það sama er því miður ekki að segja um fjölskyldugarðinn, og verður því kippt í liðinn lige nu. Hlakka til góðrar bókar, góðs matar og fjölskyldustemmu.
Varð eiginlega fyrir upplifun í gær! Þetta er kannski svoldið ýkt lýsing, en því fer samt ekki fjarri sko. Frú Borland bauð mér á jólahlaðborð á Argentínu í gær og það var hreint út sagt frábært. Sátum þarna í fjóra tíma og borðuðum geðveikan mat og frábært rauðvín, og stemmningin var bara til að skila hverjum gesti með góða tilfinningu í sál og sinni útí jólageðveikina. Mæli með þessu.
Þorláksmessa. Mamma hefur tekið sér stöðu í eldhúsinu og skapar vellyktandi fegurð eins og það sé enginn morgundagur, en þó í þetta skiptið nákvæmlega af því það kemur morgundagur. Ég á reyndar enn eftir að gera allt en er einmitt á leiðinni í Smárann í gleðina. Vonandi er Helga Möller með skemmtiatriði meðan ég er þar.
19 desember, 2002
Halelúja, halelúja, halelúja. Búin í prófum!!! Tók reyndar alveg afspyrnu lélegt próf í dag, en ég get með engu móti reynt að vera leið yfir því. Er á leið til Erlu Rutar í kjaft og klipp, og svo á Coldplay tónleikana í kvöld-ég hlakka mikið til, enda hefur diskurinn verið í græjunum öll prófin og stemman verið að byggjast upp. Praise.
15 desember, 2002
...og í anda jólanna þá á eftirfarandi texti að hafa kántríundirspil og kjánalegan bandarískan hreim.. "Grandma got run over by a reindeer, on her way from our house Christmas Eve. You may say there´s no such thing as Santa, but as for me and grandpa, we believe."
Two down and two to go.... Svo ég reyni að sjá einhverja glætu í þessum prófahryllingi, þá er það góða við prófin og þennan dauðans desembermánuð, að manni verður ljóst hvað það er ljúft að draga andann alla aðra daga. Er það ekki alveg málið? Annars höfum við Katla náð ákveðnum lágpunkti í einkahúmornum í því tilliti hvað hann er orðinn súr og svartur, en kannski um leið hápunkti því okkur finnst við vera svo snilldarlega skemmtilegar. En það er e.t.v ekki við öðru að búast þegar við höfum bara hver aðra, nú og svo náttúrulega skruddurnar....blu.
02 desember, 2002
Mánudagur. Ætli upphaf mánudaga setji í raun tóninn fyrir vikuna? Átti í hatrammri baráttu við sængina mína í morgun og eftir sigur, skrúbbum og tiltekt (á sjálfri mér) er ég mætt á Gásinn. Ein. Það er enginn tími.
