Það mætti mér unaðsgrillilmur þegar ég fótaði mig gegnum snjóinn að húsinu hennar Freydísar í gær. Beljunni Rauðku hafði eftir tilmælum Bergþóru verið slátrað, og hún, ásamt meðlæti, var afbragðsgóð. Upphófst síðan mikil gleði, dj Valþór þeytti skífum og liðið steig dansinn. Að sjálfsögðu var Britney og Jet Black Joe gerð gítarskil. Fórum, aldrei þessu vant, á Hverfis. Það er náttúrulega alltaf gaman, en stundum eru svooooo slæmir skífuþeytarar þar vá. Grease, Nína, Gleðibankinn, Meatloaf....þetta er orðið gott . Svo lufsuðumst við nokkur á 22 og reyndum að blóðmjólka gleðina, sem tókst með ágætum. Við Katlan blikkuðum okkur svo inná Næsta eftir lokun (pæjur!!) og Heimir gaf okkur far og pulsu. Gott kvöld.
29 mars, 2003
28 mars, 2003
Stöð eitt var aldrei þessu vant með brilliant sjónvarpsdagskrá í gær. Fyrst kom mjög góður þáttur um einelti, sem Siggi Hólm og félagar gerðu. Ótrúlegt hvað krakkar geta verið grimmir og vitlausir. Fýkur í mig. Hmmm. Jæja, síðan kom Beðmál í borginni, sem er náttúrulega snilldarþáttur. Fyndið (eða sorglegt) að maður finnur alltaf einhver gullkorn í hverjum þætti sem að setja hlutina í samhengi. Mamma var á útsaumsnámskeiði ásamt fleiri gellum hjá einni sem er komin á áttræðisaldur í gærkvöldi. Kl 22.20 var námskeiðið stöðvað, komið að heilagri stund, og húsfreyjan kveikti á Beðmálunum. Svo tístu þær saman yfir þessu. Garg hvað það er fyndið! Nú síðan kom þátturinn um Micheal Jackson. Ég hef verið einlægur aðdáðandi MJ síðan ég var svona 9-10 ára, kunni BAD-plötuna gjörsamlega utan að. Ég held að snilld goðsins hafi fram eftir aldri verið það eina sem við systkinin vorum sammála um. Ég pældi samt aldrei neitt sérstaklega honum sem persónu, bara tónlistinni. En Bashir þátturinn pirraði mig svo,að ég gerði mér sérstaklega far um að horfa ekki á hann. Það eyðileggur enginn MJ fyrir mér! Þátturinn í gær var því ánægjulegur. Hann er skrýtinn en sannarlega snillingur, semsagt skrýtinn eins og vera ber.
Hvað er samskynjun? Hvers vegna sýnast sól og máni stærri lágt á himni? Hvað er þorskígildi? Hvað er kynorka? Eru geðsjúkdómar ættgengir? Hverjar eru orsakir stams? Af hverju myndast stírur? Hvað er megineldstöð? Til hvers er meyjarhaft? Hvað er kaupmáttarjafnvægi? Hefur einræktaður einstaklingur eins fingraför og fyrirmyndin? Í hverju felst hollusta lýsis? www.visindavefur.hi.is er með skemmtilegri síðum.
27 mars, 2003
Það er kannski helst í fréttum að Magnús gaukur hefur verið náðaður. Hann sýndi mér vinahót þegar ég blés hismið af korninu hans og frá þeirri stundu hefur allt verið gott okkar í millum. Erla Rut hárgreiðslupæja og leikhúsplöggari bauð Klúbbnum á generalprufu í gærkvöldi, á Rauða spjaldið. Það var ágætt...ja mér fannst félagsskapurinn eiginlega skemmtilegra en leikritið (sem var reyndar drama). Annars er líffræðiliðið að fara að taka semi-lokadjamm, svona áður en leiðir skiljast, og próflestur og leiðindi, Thailand og líf eftir útskrift sundrar grúppunni. Bergþóra fékk sendan hlemm af kjöti að norðan, og Freydís bauð húsnæði. Ég hef fengið sæti í rauðvínsnefnd, og er ekkert smá glöð, enda hef ég ekki setið í neinni nefnd síðan 15.mars.
Spáiði í það, að ár hvert er í alvörunni valið prótín ársins. Það er fyndið. Sé fyrir mér ceremoniuna.
25 mars, 2003
Helgin var lllljjjjúúúf og góð. Fór með mömmu á finnsku myndina á laugardaginn, Maður án fortíðar heitir hún víst-alveg stórgóð. Moms fannst hún hreint útsagt mannbætandi, veit ekki með það, en góð var hún. Svo hófst kvöldið hjá Óla í smá teitlu, sem færði sig svo yfir á Hverfis. Á Hverfis var ég kynnt fyrir tvöföldum Bombay í tonik, og það voru skemmtileg og hressandi kynni. Gerði ekki handtak á sunnudaginn, og heldur ekki í gær, og það er onkoveiru fyrirlestur á morgun...
Ég hef eignast herbergisfélaga. Hann heitir Magnús, og hann er páfagaukur. Jú, sá hinn sami og Snær fékk í jólagjöf, og jú hann er ennþá lifandi. En ekki mikið lengur held ég, því %#&$% fuglinn er ofvirkur og er ekki að gleðja mig punkt.
21 mars, 2003
Sterkur leikur var það sannarlega, er á við hundrað manns, og ætla að smella mér niðrá svæði (a.k.a Háskólasvæðið) í leiðinlegasta tíma vikunnar, tölvunotkun. Góður dagur.
Eyddi gærkvöldinu í góðra vina hópi á Næsta bar og er í slakari kantinum í dag fyrir vikið..og sit hér eins og slytti er að reyna sannfæra sjálfa mig um að það væri e.t.v sterkur leikur að fara og svitna svoldið en hef efasemdir um það.
20 mars, 2003
|Náði að koma þessum fyrirlestri nokkuð klakklaust útúr mér, með bráðabirgðaþýðingunni og öllu. Var bara frekar sátt, þangað til að spyrillinn minn grillaði mig."Jú, einmitt...uh...þetta er einmitt mjög skemmtileg pæling...vissulega....en ég bara því miður veit það ekki. Nei, því miður það kom hvergi fram í mínum heimildum....eða ég man ekki til þess...;) Skemmtilegt. Við Katlan, sem notum hvert tilefni til að celebrera, gerðum það og fórum með Óla á brennsluna í hádeginu-og hlógum-enda átti Ketill eitt af sínum ljóshærðari andartökum í fyrirlestrinum sínum í dag.
19 mars, 2003
...og þá er það komið á hreint að orðið neurites finnst ekki í neinum orðasöfnum og hefur e.t.v ekki enn verið þýtt skv. prófessornum mínum sem hefur sjálfur að sögn aldrei þurft að nota það. Hann stingur þó uppá þýðingu blessaður, sem mætti nota til bráðabirgða, svona rétt á meðan að á fyrirlestrinum stendur...jahérna. :)
Ég held að það sé fátt meira pirrandi en að þýða greinar sem fjalla um efni á svo sértæku og afmörkuðu sviði, að það er ekki nokkur von til þess að finna neins staðar bærilegar íslenskar þýðingar á þessum ófögnuði. Er með fyrirlestur á morgun um skautun tauga, sem verður í meira lagi enskuskotinn.
17 mars, 2003
Það er vorblíða í dag. Það er víst í frásögur færandi að daman hélt sig heima alla helgina. Er ennþá að melta það hvort gleðin hafi runnið svona af mér á laugardaginn því að a) ég hafði hvorki þörf né áhuga á því að spóka mig, b) ég hafði engan til að leika við eða c) þurfti að læra mikið á sunnudaginn. Spurning. En ég bætti þetta þó upp í gær og smellti mér á kaffihús og bíó með Drífu. Við kíktum á Lilja 4-ever, og ég sá fyrirfram fram á illa grátbólgna hvarma. Myndin var flott sem slík, en inntakið eins og ég vissi alveg hörmulegt. Hörmulegt. Mér fannst þetta svo fjarstæðukennt og viðbjóðslegt, að þetta fór eiginlega í hring og kom ekki við mig. Uppskar semsagt tóma tilfinningu og viðbjóð á karlmönnum. Hmmm.
15 mars, 2003
I´m coming out...I want the world to know..(ótrúlega fínt lag úr nýju J-Lo myndinni)....ég er svona glöð. Var að klára prófið. Nú ætla ég að demba mér útí laugardaginn, og fara að finna Camel. Er semsagt að passa kettina, íbúðina og bílinn hennar Kötlu um helgina og mig vantar (gúlp) einn kött. Camel plummar sig. Síðan tekur við allsherjar kökuveisla heima síðdegis, en móðir er búin að vera á haus að baka því föðurættin mín eins og hún leggur sig að ég held, ætlar að leggja leið sína í Fífulindina, m.a.s alla leið ofan af Skaga, til að fá hana Agnesi Marí, næstum 3gja mánaða séð. Við erum að tala um kökur með rjómasprautuðu nafninu hennar og det hele. Býst ekki við því að hún æsi sig yfir þessu frekar en öðru.
14 mars, 2003
Jæja, nú eru 33 klst og 16 mínútur þangað til ég fer í próf. Á þessum klukkustundum ætla ég að innbyrða ótrúlegt magn af fróðleik um stjórnkerfi dreifkjörnunga og rústa þessu. Ég þarf hinsvegar einnig á þessum rúmlega 33 klukkustundum að ná sæmilegum svefni, mæta eins og á einn skiptafund og neita mér í framhaldi um alveg fáránlega löngu planað og lofandi djamm þ.e skiptafundardjammið. Við erum að tala um 2 ára plan eða svo!!! E.t.v á maður ekki að láta svona útúr sér, eigandi að vera að kafna úr námsmetnaði þegar sér fyrir lok þessarar háskólagöngu minnar í bili. Verandi að auki svo löngu búin að djamma út kvótann að foreldrum mínum var raunverulega brugðið þegar ég sat með þeim heima síðasta laugardagskvöld. En þetta er samt sem áður fílingurinn. Vona bara að eitthvað sterkviljað vökufólk hafi dug og þrótt til skála á laugardaginn líka.
11 mars, 2003
Hvað er þetta samt með blessað eurovisionlagið? Sammála því að umræddur kafli lagsins er vissulega líkur kafla annars lags, en hversu mörg lög eru hljómalega séð alveg eins eða mjög lík?? Mörg mörg mörg. Svo er bara spurning um rhythmík og melódíu sem gefur hverju lagi sitt gildi. Þvæla.
Nú er lífið til baka fengið, og skólann hungrar eftir mér. Skautun tauga og próf í sameindaerfðafræði munu halda mér hugfanginni næstu vikur. Bra.
10 mars, 2003
Hrönn Sigurðardóttir stórvinkona mín frá Seyðisfirði átti afmæli í gær. Til hamingju með afmælið Hrönnsa mín. Hún fékk dóttur hennar Urðar í afmælisgjöf og inneign í IKEA-skilyrta með gardínukaupum þó-frá okkur stelpunum( erfitt að gera upp á milli gjafa). Heiðrún skellti í eina veislu og svo átum við á okkur gat, og það var bra. Fékk kjaftasögur af austfirðingaballinu, og var ekkert smá pissed að hafa misst af þessu...en það var líka mjög gaman á sigurhátíð. Ræman frá kosningavökunni var snilld, sem skildi sannarlega eftir sig góða tilfinningu. Ó svo glöð.
07 mars, 2003
Allt að gerast. Hið árlega austfirðingaball verður haldið á Players í kvöld og Andri Már og Bylgja bjóða til teitlu fyrir það. Það verður örugglega rokna stuð, enda ætlar ekki ómerkilegri hljómsveit en Sú Ellen að stíga á stokk og spila fyrir dansi. Ekki má gleyma sigurhátíð Vöku sem verður haldin á Hverfisbarnum í aften, en búist er við 1883, svo það er gott að koma snemma.
Haldin var nafnaveisla til heiðurs Agnesi Marí Gunnarsdóttur um helgina og lét ég mig ekki vanta í þetta skiptið. Hún er sannarlega einstök blessað barnið. Horfir á mann svo pollróleg, svo yfirveguð og örugg, með augnaráði sem sá einn gefur sem allt veit. Gunnar segir að hún sé jógi. Engin spurning.
