Hmmmmm

26 ágúst, 2003

London baby yeh!

|

25 ágúst, 2003

Það var lljjjúft að sofa út í morgun, enda hef ég ekki átt eiginlegt frí lengi lengi. Mínir dagar í blóðtökubransanum eru taldir og ég hef semsagt ákveðið að láta eftir mér vikufrí áður en ég hef störf á nýjum vettvangi. Nú þegar maður er á annað borð kominn í þennan eftirlátssama gír, þá er auðvitað mál að skella sér svolítið til útlanda. Hef því ákveðið að fylgja Katlinum áleiðis til Frakklands, altso til London þar sem að tvíeykið mun án efa finna sér eitthvað til dundurs og dálætis frá miðvikudegi til sunnudags. Eina planið sofar, er að kaupa dagpassa í double-decker, og taka túristarúntinn með rauðvínsflösku(r). Miiikil tilhlökkun í gangi...

|

23 ágúst, 2003

Ingunni og Eiríki fæddist þessi fjallmyndarlegi drengur um sexleytið í morgun. Algjört undur.

|

21 ágúst, 2003

Á svona degi segir maður bara pass.

|

20 ágúst, 2003

Eðalmanneskjan Björn Hildir er 27 ára í dag! Björn rekur ættir sínar til Seyðisfjarðar og hefur gaman af tónlist. Björn vinnur hjá Nýherja, er lofaður og heldur að hann hafi verið Íri í fyrralífi. Björn er jafnframt ábyrgur fyrir síðbúnu tónlistarlegu uppeldi Bank-barnanna, og hefur tendens til að mæta í fjölskylduboð familíu Bank með gítar. Það er gott að Björn er til. Til hamingju kallinn minn :)

|

Harðangur og klaustur! Mér finnst það hljóma eins og upphrópun, blótsyrði, eitthvað sem kapteinn Kolbeinn í Tinnabókunum myndi segja í sömu andrá og 'hver þremillinn' og öll hans brilliant viðkvæði. En nei. Harðangur og klaustur er sérstök tegund af saumi. Saumurinn sá verður kenndur inní stofu hjá mér í kvöld. Hugsa ég verði vant við látin.

|

19 ágúst, 2003

Eftir að hafa hóstað svo hart að lá við uppköstum, hvatti sjúklingurinn minn mig til að fara bara til læknis. Það er alls ekki fyndið, en um leið mjög fyndið þegar maður hugsar til þess hvað það hlýtur að vera ógnvænlegt þegar manneskjan sem hefur starfann af því að halda nál kyrri í handleggnum á þér getur með engu móti verið kyrr :) Þannig ég var send heim. Er því enn á ný komin undir sæng, með stelpublað og fjarstýringuna. Allt að gerast. Hvað er með þetta kvef? Nenni þessu amk ekki lengur og ætla því að fara á eftir og blikka einhverjar sýklalyfjabombur útúr lækninum.

|

Guðfinnur Guðjón er 25 ára í dag, til hamingju með daginn Guffi. Stóla á veislu í því tilefni við tækifæri.

|

18 ágúst, 2003

Það er hægt að segja að það sé annar í þynnku í dag. Hef afráðið að spinningtími dagsins sé ekki málið, heldur muni kúr undir sæng með stelpublað vera það eina sem bjargi. Það var blautur laugardagur, sem varð þess valdandi að sú menningarþyrsta, en jafnframt borderline-veika, lét ekki sjá sig í bænum fyrr en rétt fyrir flugeldasýningu..sem var svosem ágæt, en náði alls ekki að toppa þjóðhátíðarshowið. Samt mjög fínt, og mikil stemmning í bænum. Við Katla og Fanney enduðum síðan eftir tiltölulega stutt rölt með viðkomu á Næsta og Prikinu, á Kaffibarnum, þar sem ég fékk versta tequilaskot lífs míns en líka margt annað gleðilegra. Heilsan var eftir því. Fííín menningarnótt.

|

15 ágúst, 2003

Plan kvöldsins er að verma sófann fyrir framan sjónvarpið, með teppi og púða. Ætla að njóta þess að hafa einvald yfir fjarstýringunni og hugsa ekki neitt. Ætti því að verða úthvíld fyrir átök morgundagsins sem hefjast kl 8.55 sharp, í sal 1 í Hreyfingu. Bevægelse. Það verða þó sjálfsagt ekki einu átök morgundagsins, enda er stefnt á stemmu og gleði á 'menningarnótt'. Hugsa það verði hörkupuð að komast yfir allt sem mann langar að sjá. Væri þó vel sátt við að heyra eilítið í Eivöru Páls og kannski Kristjönu Stefáns...heyra trompetblásturinn af svölum Landsbankans..flugeldasýning....allt annað er plús. Alltaf gaman á Menningarnótt. Oftast.

|

Þóra Kristín hélt til Brasilíu í byrjun mánaðarins, í svona læknanemaskiptiprógramm og er greinilega að gera spennandi hluti. Er að vinna á fyrirburadeild á skítugum spítala, þar sem enginn talar ensku. Daman hefur þó lagt land undir fót og ég játa að ég gæfi vinstri höndina fyrir að vera hjá henni.

|

14 ágúst, 2003

Það er vandræðalega lítið að gera í blóðtökunum. Katla situr hérna við hliðina á mér og blæs sápukúlur, var einmitt rétt í þessu að monta sig af einni þríbura sápukúlu, sem ku vera mikil kúnst að blása til. Er sjálf afskaplega þreytt, enda hékk ég á bar til eitt í nótt (sem er alveg off þegar fótaferð er kl sjö). Pikkaði Björn Hildi upp og við kíktum á Ölstofuna, sem var bráðfínt. Er tilbúin til að gefa henni stjörnu og fleiri sjénsa. Sætur barþjónn :) Björninn fékk sér öl og ég fékk mér kaffi og svo sungum við 'ef ég ætti óskastein'-óðinn og yljuðum okkur á gömlum tímum.

|

12 ágúst, 2003

Guðný Kjartansdóttir, snillekvinde, átti 25 ára afmæli í gær! Til lukku Gúgú mín. Annars nokk tíðindalaust af vígstöðvunum, utan upphafs þriðju kvefpestar sumarsins. Frábært. Plan dagsins er i) fara á bókasafn ii) fara í HB búðina í Hafnarfirði (snilldarbúð) iii) fara í leikfimi iv) hjálpa Júlla að flytja v) fer eftir framvindu liða i) - iv).

|

11 ágúst, 2003

Ágætis helgi liðin. Var sett í það að passa Snæ á föstudagskvöldið, og ákvað að drífa barnið og Gunna bró með mér út að borða og í bíó, fórum á Pirates of the Caribbean. Hún var mjög fyndin, og Johnny Deep var alveg hreint óborganlegur. Þegar við komum síðan heim á Laufásveginn sátu lúnir verkamennirnir Júlíus og Björn (a.k.a hildirhans) þar í svarta myrkri með bjór í agalegri stemmningu og hituðu upp fyrir djammið með því að spila X-Box!! Hvað er málið með karlmenn og tölvuleiki? Síðan spiluðu þeir bara á X-Boxið þangað til þeir fóru á Hverfis....geeeðveik stemma. Jæja maður skilur ekki allt. Á laugardaginn var haldið í Gaypride göngu í þvílíkri rigningu. Blautt en skemmtilegt. Fórum síðan á gayprideball á Nasa um kvöldið, sem var án efa sveittasta ball sem ég hef farið á. Við Fannsan yfirgáfum þó staðinn um síðir og héldum á Hverfis...en þá var maður eiginlega búinn á því. Bráðfínt framan af;)

|

09 ágúst, 2003

Gaypride í dag. Ganga kl 15 frá Hlemmi og ég hvet alla til að mæta. Hrönnsa mín ætlar m.a.s að vera með þeim fremstu í göngunni, á einhverjum palli í sportlegum félagsskap. Þær verða stöllurnar nokkrar í Henson göllum, ægilega vígalegar. Svo er teitla hjá Hrönn og Heiðrúnu í Þingholtsstrætinu, og síðan er eitthvert ógurlegt ball á Nasa. Er víst búin að lofa að mæta. Haffi vökustrákur er líka með partý í kvöld. Allt að gerast.

|

08 ágúst, 2003

Fanney (sem btw tekur Corky eins og enginn annar) bloggar um Eyjar. Steik!!

|

Maður fer náttúrulega bara ekki nógu oft út að borða! Alltaf jafn gaman að setjast niður í góðum félagsskap, sötra rauðvín og borða góðan mat. Við Davíð Tómas mæltum okkur mót á Horninu, gerðum nákvæmlega þetta og kjöftuðum hvort annað í kaf. Davíð er snilld, en hann er sumsé nýkomin úr sex vikna ferðalagi um Thailand og Indónesíu, og ætlar sér á næsta fimmtudag að vinda sér í 4gra mánaða dvöl á Svalbarða, þar sem hann mun vart geta skroppið á klósettið án þess að vera vopnaður ísbjarnariffli. Hann hafði margar magnaðar ferðasögur að segja mér, og búinn að lenda í ótrúlegustu ævintýrum. Nú síðan beindist samtalið að mér og mínum ævintýrum....og einhvern veginn fölnuðu allar sögurnar mínar af ferðum til stórmerkra staða eins og Seyðisfjarðar og Vestmannaeyja, eða af einhverjum raunalegum djammpakkaendurtekningum við hliðina á sögunum hans, t.d þessari með göngunni uppá brún sprengigígsins, sem er 6 km í þvermál með eldfjallaeyju í miðjunni,..já þú veist þarna rétt hjá Bali. Er maður strax orðinn að þessum ævintýrametta Íslendingi sem maður ætlaði aldrei að verða?

|

07 ágúst, 2003

Misglæsilegir myndir frá LUNGA eru komnar inná Hildirhans.com!

|

06 ágúst, 2003

Fór í dag og keypti mér þriðja gsm símann. Mér finnast tveir símar á fimm árum alls ekki svo slæmt. Fyrsti síminn var Ericsson hlunkur, sem bræður mínir gáfu mér í útskriftargjöf. Þá áttu ekki margir síma, og ég var gífurlega montin. Man mér fannst þetta samt hálfvandræðalegt í fyrstu, því ég var búin að gera óspart grín að undrinu, og ætlaði síðust manna að fá mér svona óþarfa grip. Talandi um hluti sem maður vissi ekki að maður gæti ekki verið án. Átti hann alveg í 3 ár þangað til hann splundraðist á gólfinu á Astró-sem var engan veginn mér að kenna :)....þá keypti ég mér síma nr. 2 sem auðvitað varð að vera Ericsson, með svona fliploki. Mér hefur þótt vænt um hann, en hann hefur ekki reynst svo vel, því fliplokið bilaði snemma, og ég hef síðan verið í því að skella á fólk í amk annað hvert sinn sem síminn hefur hringt. Sem á stundum hefur valdið miklu ergelsi og í framhaldi stighækkandi símareikningi. Sá stutti lét síðan lífið á götu við Brekastíg í Vestmannaeyjum um helgina. Þrátt fyrir undantalið, sem og tilraunir vina minna til að afvegaleiða mig, hef ég enn og aftur keypt Ericsson, eða altso Sony Ericsson. Lítill, nettur, einfaldur, ljósblár (af því að liturinn skiptir máli), ericsson....held svei mér þá að þetta gæti flokkast undir einhverja þráhyggju. Ericsson eða lífið.

|

05 ágúst, 2003

Komumst heil á húfi til Reykjavíkur uppúr hádegi á mánudag, í lúnari kantinum. Þjóðhátíðin var í einu orði sagt glæst. Mættum um kvöldmat á föstudegi, og hreiðruðum um okkur 'heima' á Brekastígnum. Tókum fljótlega til við að kveikja í sambuccanu hennar Fanneyjar og innbyrða, með sérstaklega glæsilegum árangri...náðum þó brennunni inní dal og vorum dugleg. Fyrir utan að hafa skemmt símann minn og að hafa næstum glatað gallakápunni minni í hendur rauðhærða mannsins hehe, var þetta algjörlega frábært kvöld. Katla kom síðan með jólfinum á laugardeginum og Brynjólfur Vestmann fór með okkur í rúnt um eyjuna í rjómablíðu. Get sagt í framhaldi að það er næstum því jafn fallegt í Vestmannaeyjum og á Seyðisfirði. Um kvöldið var síðan tvískipt stemma á Brekastígnum, þarsem að Birgir Hrafn hélt upp gítargleði í öðru horni stofunnar en lagleysingjar ásamt mér héldu sig í hinu horninu í banvænasta drykkjuleik ever. Héldum síðan í dalinn, og fengum frábæra flugeldasýningu. Fór með Þórlindi og Andra á 'hvítutjaldarúnt' og fékk lunda og fínerí. Það er alltaf jafn magnað. Svo var dansað, og spjallað og loks sofið. Sunnudagur sveik ekki heldur, leikurinn góði setti tóninn og við náðum í dalinn í þann mund sem að þyrlan sveif yfir með pakkann frá Árna. Mögnuð stemmning og mér fannst Marshallinn alveg standa sig bráðvel, kunni fleiri grip en sumir og svona. Sálin var náttúrulega mögnuð, og Skímómenn voru skondnir. Ég er nett á móti Á móti sól, en þeir voru blessunarlega lítið að spila. Athyglisverðasta bandið var án efa Hippabandið, sem er ekkert hægt að lýsa, menn verða bara að sjá. Anywho, afskaplega góð helgi með afskaplega góðu fólki. Er með harðsperrur í maganum.

|

01 ágúst, 2003

Þá er kominn dýrðarinnar föstudagur. Haldið skal í dag á Þjóðhátíð! Hef ekki farið síðan 2000 og því eftirvænting mikil. Rifjaði einmitt upp verslunarmannahelgina mína fyrir 2 árum í gær, þegar ég horfði með öðru auganu með foreldrum mínum á myndina sem gerð var um Eldborg 2001. Hafði ekki séð hana, og óskaði mér meðan hún rúllaði þess heitast að mér brygði hvergi fyrir. Myndin dró náttúrulega ömurlegustu mynd af samkomunni sem hægt var.

|