Afi minn heitinn, Hans Júlíus, var frekar merkilegur kall. Hann lagði okkur systkinunum svo fjöldamargt til, frá því að kenna okkur á klukku til þess að leggja okkur lífsreglurnar. Kunni varla orð í ensku þegar ég kunni 'Standing at the foot boy, gazing at the sky. How will you get up boy, if you never try'. hmmmm.
27 nóvember, 2003
23 nóvember, 2003
Fór á jólahlaðborð Pharmaco í gær. Stemmningin var Hótel Loftleiðir með Helgu Möller í bakgrunni. En það var ótrúlegt en satt mjöööög fínt. Mér finnst þetta nefnilega alveg toppurinn. Sitja og borða ótæpilega af góðum mat, með rauðvín í glasi og tónlist í eyrunum. Mæli samt með borðinu á Argentínu, fór í fyrra og það er alveg geeeðveikt.
Fór í afmæli til Þurýar á föstudagskvöldið, og það var rosagaman. Gott fólk og góður matur. Frammistaða mín í gettubeturspilinu mun samt líklega seint teljast til afreka, enda gjörsamlega slökkt á öllu í toppstykkinu eftir hriiiikalegan dag í vinnunni. Hversu pirrandi er það að klúðra mikilvægu leysnihraðaprófi sem maður er búinn að vera að undirbúa í heilan dag á ljóshærðu sekúndubroti klukkan hálffimm á föstudegi!! Garg! Elísabet kennd við rokk plöggaði afmælisgesti inn á Hverfis, þar sem einnig var að finna leifar-bæði spaða og tromp- af Vökupartýi kvöldsins. Gaman.
Það fór svo að allar mínar væntingar mínar um fimmtudagskvöldið urðu að engu. Ekki nóg með að Eldsteinn hafi svikið mig og valið Jen-sem ég reyndar skil, þá komst Gunnar Axel ekki einu sinni í úrslit í Herra Ísland. Lýsi hér með frati á dómnefndina:) Púra pólítík!
20 nóvember, 2003
...þetta gæti orðið spennandi kvöld. Herra Eldsteinn, bachelor með meiru, mun velja sér spúsu í þættinum í kvöld og færi vel ef hann veldi Kirsten, þar sem að ég setti allt mitt traust á tælingarhæfileika hennar í ómegaveðmálinu. Síðan ræðst einnig í kvöld hver af þeim mismyndarlegu karlmönnum (fyrir utan Gunnar Axel sem er bráðmyndarlegur og ljúfur) sem keppa um titilinn Herra Ísland hreppir hnossið. Við bekkjarsysturnar látum okkur að sjálfsögðu ekki vanta á svæðið og munum reka upp gól í hvert sinn sem Gaxeli mun bregða fyrir. Maður þarf líklegast að vera illa pæjaður ef maður ætlar að gera tilraun til að fitta inn á svona samkomu. Held að þetta verði sprenghlægilegt, nei ég meina stórskemmtilegt, já eða bæði.
18 nóvember, 2003
úff og púff, úrvinda að bíða eftir að síðasta leysnihraðaprófið klárist. Ákvað að vera garpynja og vinna 4 tímum lengur í dag...mér mun líklega finnast það hafa verið meiriháttar hugmynd um mánaðamótin, en núna er ég bara pirruð og svöng, og þ.a.l ekki sérlega kát. Er reyndar á leiðinni að fara að hitta skemmtilegar vökupæjur og lítill sætan snáða, og mér segir svo hugur að skapinu verði fljótlega bjargað og rúmlega það.
Herra Ísland er á næsta leiti. Myndi etv gera létt grín að þeirri keppni hér og nú, en sit á mér, því Gunnar Axel Davíðsson heljarmenni og eðalmenni, bekkjarbróðir minn frá Sey, er að fara rúlla þessu upp. Get a load of this!
12 nóvember, 2003
Ég heyrði jólalag í dag í útvarpinu. Ekki ánægð með það. Ég fékk aldrei að spila jólaplötu eða jólast nokkurn hlut heima hjá mér fyrr en 1. des, og ég er á því að þannig eigi það að vera. Mér er sama um, og reyndar fíla vel jólaljósin öll til að létta á skammdegisdrunganum,- og þau mega alveg koma aðeins fyrr, en hitt er alveg off. Ætli það sé einhver útvarpsstöð sem virði 1. des 'regluna' ?
08 nóvember, 2003
Það er mæðgnadagur í dag, og við ætlum að smella okkur á konumynd í bíó. Fá okkur popp og hafa það huggó tvær. Síðan ætlum við e.t.v að kíkja á listsýninguna hans Guðjóns, en hann opnar myndlistarsýningu í dag á næsta, sem ber heitið Mömmustrákar. Hef alveg lúmskan um yfirbragð sýningarinnar ;)
..vatt mér enn á ný yfir barborðið í gærkvöld. Það var fínt. Enginn reyndi að syngja og enginn reyndi að dansa. Allt mjög dannað og fólk drakk mikið og reykti mikið og talaði og talaði og talaði. Óskaplega þarf fólk mikið að tala. En auðvitað kemur fólk á tónlausan bar til að tala. En sumir vilja líka dansa. Um síðustu helgi komu t.d nokkrar lífsglaðar konur á barinn, sem langaði til að dansa, og þær gerðu nákvæmlega það. Þær bara sviptu upp pilsunum og dönsuðu lengi í leiðslu hljóðalaust. Á barnum heyrðist; 'I´ll just have whatever they´re having' . Sumir vilja líka syngja, og gera það, þó svo að þeir viti að það sé brottrekstrarsök af barnum. Stundum þarf maður bara að syngja.
Líffræðiliðið ætlaði svo sannarlega að sinna skyldukalli á Attenborough á fimmtudaginn, en nei. Hvað meina þessir menn með því að placera Attenborough í 200 manna sal. Hafa greinilega vanmetið náttúrulífsnirði landsins hrapalega.
05 nóvember, 2003
Jaxlataka gekk stórslysalaust fyrir sig og nú sit ég með jaxlana mína tvo í skærgulu 'toothsaver' boxi, eins og bulldog í framan og reyni að slefa ekki. Keypti pakka af parkódíni og bíð nú spennt eftir að deyfingin renni sitt skeið. Doksi er greinilega ekkert sérstaklega vanur því að fullorðnir (það er víst tilfellið) sjúklingar vilji eiga jaxlana sína, en ég útskýrði fyrir honum að ég væri líffræðinörd og mér þættu þetta frekar merkilegir gripir. Þá kímdi hann og náði í gula boxið. Tannlæknirinn minn hefur aðsetur í 'bækistöðvum' , og ég fæ ennþá hálfgerðan kosningahjartslátt við að ganga þarna um.
04 nóvember, 2003
...á morgun ætla ég að borga fyrir að láta pína mig. Þó ég hafi lengi verið afskaplega sátt við þá tvo 'tuttuguárajaxla' sem guð gaf mér í stað fjögurra, og talið mig þróaðari fyrir vikið, þá segir minn maður mér að það sé kominn tími á þá. Mér finnst það nú kannski fullhart að dæma þá svona fyrirfram, enda er ekki langt síðan þeir létu sjá sig, og annar er ekki einu sinni kominn hálfur niður. En jæja, þetta ku vera möst. Það segir kannski eitthvað um lágdeyðuna, en mér finnst þetta bara frekar spennandi, eða öllu heldur forvitnilegur procedure. hmmmm, sjáum hvað setur.
03 nóvember, 2003
Var veik heima í dag. Nýtti daginn vel og fékk loksins næði til að horfa á LOR, Turnana tvo. Keypti hana á flugvellinum í London fyrir tveimur mánuðum, en hef ekki komist í verkið. Enda er ekkert hlaupið að því að fá dvd-ið og sjónvarpið út af fyrir sig í þrjá tíma á þessu heimili, enda allir löngu búnir að sjá snilldina. Hún stóð náttúrulega undir væntingum, en ég verð að játa að ég er svekkt að hafa ekki séð hana í bíó. En nú er ég hinsvegar orðin leið á því að vera veik, og ætla mér að vera frísk á morgun. Er að spá í að eignast bókina hans Þráins Bertels, held hún sé svoldið fyrir mig.
01 nóvember, 2003
..í framhaldi af umræðunni um hamingjumoment eru á hinn bóginn til ósvikin óhamingjumoment. Er orðin veik, og búin að upplifa nokkur fullkomlega óhamingjusöm-nauðaómerkileg- en sannarlega óhamingjusöm moment síðan í gærnótt. Merkilegt hvað maður verður lítill og aumur.
