Föööööstudagur, halelúja. Góður dagur. Útborgunardagur. Enn á ný hefur sannreynst að leiðin að hjarta mínu og og hamingju er í gegnum magann. Fékk súkkulaðiköku í morgunmat, og kjúklingabringur í einhverri rjómakókossulli sem sló öll met í hádegismat, og ég er bara0sta glöð. Strax eftir vinnu verður síðan haldið í boð til Þóru Kristínar, og að því loknu þarf ég að reyna pússla kvöldinu framundan saman. Klara omegapæja er með partý, það er vökudjamm á Pravda, og fólk í kringum mig almennt í einhverjum gargandi gír til að hrista sig. Ég hinsvegar hef plön um að hafa mig rólega, enda er Rakklett-kvöld Klúbbsins annað kvöld...sjáum hvað setur....
30 janúar, 2004
29 janúar, 2004
Eg vil benda theim Seydfirdingum sem misstu af meintu Thorrabloti aldarinnar, ad myndir af atburdinum er fyrir tilstilli edalmennisins Elvars Snaes, ad finna a sidunni hans Loga, tekkidi a thessu. Synist madur alveg hafa misst af einhverju!
Í dag var dagurinn til að vera heima í rúminu. Eða ein uppá fjöllum. Vaknaði svo öfugsnúin og geðvond, að annað eins hefur ekki hent mig langalengi. Fullkomlega ööööömurlegur dagur af engri sérstakri ástæðu. Ekki fræðilegur möguleiki á öðru en að morgundagurinn verði skárri! heh :)
26 janúar, 2004
Ég fékk loksins sendingu frá Köbenhavns Universitet, bækling sem átti að gera allt fyrir mig...en er ekki að gera neitt. Eins gott ég fékk þetta sent yfir hafið... 'vi håber at du finder noget der kan tilfredsstille din nysgerrighed og lyst til að vide mere..' já nei, eiginlega ekki. En mikið er danska dýrðleg! :) ..og ég meina það.
Spinningkennarinn minn er svoo að gera sig! Ekki nóg með að hún sé brjálæðislega hress og kát, heldur hefur hún svo assgoti skemmtilegan tónlistarsmekk. Er eitthvað skemmtilegra en að taka spinnið með U2, eða 'Gamla Bubba'?? 'Þið munið öll..þið munið öll...DEYJA!' og svo gargar hún...og maður bara missir sig! Bið fólk að athuga að það er mjög stutt síðan ég tók spinninggeðveikina í sátt og hef því fullan skilning á þeim sem hrista höfuðið yfir þessari færslu.
20 janúar, 2004
Harpa Hrönn er með einhverjar meiningar um slælega bloggtíðni.....sem eru réttar. Uuuu hvað skal segja. Helgin var framan af stórgóð, mikil gleði á föstudagskvöldið og í framhaldi hálfgerð ógleði á laugardegi og kvef dauðans í bland með henni. Fór síðan með Fönnsunni á The Last Samurai með Cruisaranum á sunnudagskvöldið, og ég get ekki annað en mælt með henni. Prýðisgóð mynd á alla kanta, falleg og vel gerð. Það er einhvern veginn þannig að þegar heiður/hollusta/hugrekki fer smekklega saman við fallega og vel gerða mynd, þá getur útkoman ekki brugðist. jamm.
16 janúar, 2004
Kominn idolföstudagur. Er búin að rembast af alefli við það í allan dag að hunsa það að ég sé mögulega orðin veik, og jafnvel með hita og ætti líklegast að halda mig innandyra í kvöld. Ætla að halda áfram að rembast, jafnvel fram á nótt. Held að í innliti á Felix, og með smá slettu af Vökubjór og e.t.v einhverju meira brjóstyljandi verði jafnvel komið í veg fyrir ósköpin. Jamm. Áfram Kalli Bjarni!
14 janúar, 2004
Ég var líklegast aldrei búin að minnast á ljósið í lífinu, týruna í skammdeginu, kaffivélina í Omega? Svona vél, er eina maskínan sem ég er búin að ákveða að eignast þegar ég flyt að heiman. Kaffivél sem mylur baunirnar jafnóðum, og er bara hreint eins og hugur manns í morgunsárið....kaffi!!
11 janúar, 2004
Maður sat að sjálfsögðu límdur við skjáinn á föstudagskvöldið, enda um Idol að ræða og því ekki um annað að ræða. Get alveg sagt að ég sé sátt við úrslitin. En nú er þó svo komið að mér finnst endanleg niðurstaða blasa of greinilega við, að Kalli B. verði Idolstjarna Íslands. Vonandi tekur Anna K. sig svoldið á svo að hann fái smá samkeppni á lokasprettinum. Jamms. Tók þá nettan öldurhúsarúnt með líffræðinörrunum mínum og það var bra.
omg hvað ég er kvefuð!! Lekur viðstöðulaust úr öllum vitum og það er líkt og um vessa lífsvilja sé að ræða, slík eru slappheitin. Pestin hefur reyndar hangið yfir mér síðan á gamlárs, síðan stúlkan ákvað að pínupilsatískan væri alveg að gera sig fyrir hana, einmitt mitt um hörkuvetur á landi ísa...en ég hef samt ákveðið að gefa hana ekki upp á bátinn.
09 janúar, 2004
Jú, fór í keilu í gær. Lenti í þriðja sæti af fjórum, sem er auðvitað óásættanlegt. Lexía kvöldsins er fólgin í því að meðan maður er nýgræðingur í íþróttinni er með öllu ómögulegt að hafa bæði glæsilega atrennu og fá fellu. Þegar maður hinsvegar getur bæði haft fallega atrennu, glæsta sveiflu, og tignarlega en svala færslu hægri fótleggjar aftan við þann vinstri um leið og kúlunni er kastað, og nb. fellt....þá....og bara þá... ertu orðin sæmilegur keilari. Hrumph. Þóra Kristín bar sigur úr býtum, en þess ber að minnast að ég malaði hana í þythokkí. Jamm, back to work..
06 janúar, 2004
Fyrir hverja einustu hreyfingu sem ég geri í vinnunni þarf ég að kvitta með staðlaðri undirskrift-bara svona það sé pottþétt að ég, ÁRÞ, en ekki einhver annar hafi framkvæmt hitt eða þetta. Þetta lýtur semsagt allt að rekjanleika og þvílíku. Anyways þá hafa undanfarna daga, sökum nýs árs, verið ítrekað alvarleg átök í toppstykkinu. Breytingin úr 311203 ÁRÞ í 010104 ÁRÞ er bara ekkert að gera sig! Enda er flest sem ég gerði í dag skrifað á 6.apríl 2001. 060401 ÁRÞ. Get bara ómögulega víxlað þessu. Brainmelt.
