Hmmmmm

29 apríl, 2004

Fanney Stefánsdóttir snilldarkona og nb. verðandi líffræðingur, er 26 ára í dag! Til hamingju Fanney :D

|

27 apríl, 2004

Það er ástand í Blásölunum. Ég er veik og síminn minn lést í seint í gærkvöldi. Bara gaf upp öndina fyrirvaralaust....ætli það verði þá ekki bara annar sony ericsson? Yet again ericsson eða lífið.

|

26 apríl, 2004

Árshátíðin heppnaðist sérlega vel, omega liðið var með hressasta móti og svört föt í stuði. Simmi og Jói brilleruðu sem kynnar, og maturinn var actually góður! Eftir 8 broadway árshátíðir í MR gat ég aldrei ímyndað mér að eiga góða kvöldstund þarna..en viti menn það tókst. Hinsvegar náði kvefið mitt áður óþekktum dýptum í kjölfar gamansins, og nú sit ég heima með sýklalyf á kantinum. Ég og þessi kvef mín...afskaplega dularfullt mál.

|

Harpa mín Hrönn skreið nær þrítugu á laugardaginn, og af því tilefni hittist Klúbburinn á sunnudagseftirmiðdegi og við fórum í hátíðargöngutúr um Laugardalinn og í brownie/ostaveislu í Ljósheimana eftir það. Óðinn Bragi var í essinu sínu, og tókst honum algjörlega að stela athyglinni frá afmælisbarninu.

|

22 apríl, 2004

..nú er árshátið Pharmaco á laugardaginn, og outfittið er að verða hausverkur. Fer ekki í kjól, það er víst. Það hlýtur að koma mínu fólki á óvart hinsvegar að outfittið verður svart, og það er m.a.s búið að fjárfesta í nýju pæjubelti..sem maður verður glæsilegur...og síðan er ekkert slorband sem leikur fyrir dansi! í svörtum fötum og allur pakkinn.

|

Gleðilegt sumar! Þvílíkt fallegt veður í dag...en mér tókst þó einhvern veginn að halda mig í bólinu fram yfir hádegi, og leggjast síðan í videogláp fram að kvöldmat...steikt, en varð bara að sjá kill bill aftur. Ætlaði svo að fá mér vænan hjólatúr, renndi mér niður í smáralind til að setja meira loft í dekkin...og tókst á einhvern stórbrotinn máta að sprengja afturdekkið! And...hel..svo pabbi kom og náði í okkur hjólið...frábært. Rosagaman í gær. Við Fannsa rákumst á margt gott fólk og það var fjör. Frétt dagsins er þó án efa sú að Rut Finnsdóttur og Mike Borland fæddist lítill drengur í fyrradag, 15 merkur og 54 cm. Kveðjur yfir hafið!

|

21 apríl, 2004

jæja miðvikudagur á kantinum, en föstudagur í mannskapnum. Stefnt á að viðra sig í kvöld með góðum konum...annars tíðindalaust af vígstöðvunum. Hrumph. Sem maður er skemmtilegur.

|

19 apríl, 2004

bloggibloggiblogg. Manudagur handan vid hornid.. og thad er fint. Onnur fjogurra daga vinnuvika framundan...og thad er lika fint. Til tidinda telst liklega ad disan steig ekki inn faeti a oldurhus um helgina...og thad var bara fint. I stadinn bra disan ser a Silfrinu austur fyrir fjall i heimsokn til Ernu, sem er thar nuna i manud i nalastungum og leirbodum. Thar er audvitad ekkert a bodstolnum nema graenmeti og hveravatn, thannig vid tritludum okkur maedgurnar i Eden (sem btw hefur ekki breyst i 20 ar, og mer leid eins og eg vaeri ad labba inn i dag aesku minni) og fengum okkur eitthvad pinulitid sveitt, og sitthvad med rjoma i desert. Dagurinn i dag (gaer taeknilega) nyttist sidan prydilega, en mer tokst að koma baedi hjol og bil i thvilikt gott horf. Lappadi upp a rauda 18 gira fakinn minn sem nu vantar bara orlitid meira loft i dekkin (ja og bretti) og tok Silfrid i sumarsjaenun ad innan sem utan..og thad var fint. En hvað er það sem ég heyri um aðra Pixies tónleika??!

|

15 apríl, 2004

Á morgun föstudag verður haldinn málfundur um títtnefnt útlendingafrumvarp kl 12.15 í Iðnó. Ég hvet fólk eindregið til að mæta og kynna sér málin. Ótal alvarlega vankanta má finna á frumvarpinu, í stuttu máli tíundaðir hér, og því allar liðtækar raddir þarfar til hrópa á endurskoðun.

|

13 apríl, 2004

Afskaplega erfitt alltaf að mæta í vinnu eftir frí. En þetta batnar með hverjum kaffibollanum. Í dag fer dísan í átak, enda hefur hún haldið þeim lifnaðarlágstuðli sem hún náði í Strass algjörlega áfallalaust síðan...sem veit ekki á gott. Átti annars eðalgott páskafrí með öllum þeim vellystingum sem tilheyra, og fer spök inní síðustu törn fyrir sumarið...jamm.

|

Í dag á Hildur Eiríksdóttir 26 ára ammli. Til hamingju með það Hildur mín! Hún fær sömuleiðis bumbukveðjur, enda með bumbubúa undir belti :)

|

11 apríl, 2004

|

08 apríl, 2004

Það er leyndardómurinn með samstæða sokka. Af hverju eru ca. 13 'einhleypir' sokkar í skúffunni minni? Hvernig stendur eiginlega á því að öll sokkapör enda ekki á því að maður gangi þau út, heldur á því að annar sokkurinn hverfur. Ég meina, það er ekki eins og maður sé að skilja annan sokkinn við sig einhvers staðar útí bæ. Þeir bara hverfa inná heimilinu á einhvern furðulegan máta. Þetta á reyndar við um öll heimsins strokleður líka. Hefur maður einhvern tímann klárað strokleður? Nei. Þau hverfa. Páskapælingin.

|

Páskafrí! Ljúft ljúft. Fanney bauð heim í gær, og þar sátum við og Ásta Sóllilja í massakjafti allt kvöldið. Héldum niðrí bæ og hittum þar nokkrar mjög hressar Deiglukonur. Úr varð eiginlega semi-Beyglugleði, fínt stuð. Í dag fór ég hinsvegar í bíó á The Passion of Christ. Hún er alveg ofboðsleg. Mér er hreinlega þungt fyrir brjósti og óglatt í senn. Hmmm.

|

06 apríl, 2004

Var að koma úr heimsókn hjá Erlu Rut og Palla. Páll júníor hefur verið nefndur Óðinn Bragi. Óðinn Bragi Pálsson, en hér er að finna nokkrar myndir að stráksa. Við Þóra vorum þar nýlega sestar þegar Elvar, Andri Már og Gunnar Axel gerðu innrás, og úr varð sannkallað Seyðfirðingagathering, að Þóru meðtalinni..eðlilega! Gaman að því.

|

03 apríl, 2004

Já....jæja, laugardagur laugardagur. Fannsan hélt innflutningsgeim í Pétri í gær, og ekki hægt að segja annað en að vel hafi tekist til hjá skvísunni, allt fljótandi í mojitos og bjór og annars slags eðal veitingum...eðalfólk og mikið gaman. Fórum á hverfis og stóðum í röð í pissrigningu...(sem er auðvitað frábært) þangað til Beta kennd við rokk beitti líkama sínum í orðsins fyllstu og plöggaði okkur inn á nákvæmlega rétta momentinu þ.e áður en manni rigndi hreinlega niður. Tókum töfrateppi og snúning þar og enduðum á 22. Prýðilegur hristingur. Var samt sem áður á einhvern stórbrotinn hátt vöknuð og mætt á fund kl 10 í morgun! Einmitt. Afrekaði líka að henda mér í heimsókn í Petu og Hrefnu á Bergstaðastrætið, í nýju sætu íbúðina þeirra. Þar fékk ég alla þá aðhlynningu sem þreytt kona gæti óskað sér og er því prýðilega stemmd. Rólegheit í kvöld engu að síður.

|