Alltaf jafn skrítið að vakna upp á nýju heimili. Nokkur sekúndubrot líða...hugurinn skýrist, og flutningar gærdagsins rifjast upp. Flutt! Allt í rúst ennþá, en í dag verður tekinn skurkur og vonandi verður allt orðið Ásdísarlegt í kvöld. Líst heavy vel á þetta, og er búin að lofa ótal kaffiboðum og heimsóknum, og teitlum sem best er að fara efna til sem fyrst.
Annars átti ég heldur ævintýralega helgi í Þórsmörk um helgina. Hinn nýstofnaði klúbbur, Fjallaklúbburinn Sigga, ákvað að leggja land undir fót og takast á hendur göngu yfir Fimmvörðuháls, svokallaða Jónsmessunæturgöngu...well, þetta fór e.t.v ekki alveg eins og við ætluðum. Við fengum nefnilega aaaaaaaafleitt veður, stormviðvörun á hálsinum og allt í hönk. Útivistarfólkið fór því með okkur í plan B, sem var 6 klst ganga, nb. 18 km, í argasta óveðri og bara rugli! Þetta var í senn það ömurlegasta og frábærasta sem ég hef gert..erfitt að útskýra það, enda oft þunnar línur á milli andstæðra tilfinninga, en um leið og maður stóð þarna í 45° halla vegna vinds, uppá Morrisheiði, pissblautur og kaldur, og hélt að maður væri að eiga sitt síðasta moment, það voru þetta svona u.þ.b spaugilegustu aðstæður ever. Rúmlega hundrað manns komin uppá reginfjöll í aftakaveðri og sveifluðust þarna um í rokinu eins og strá, holdvot og þvæld....af fúsum og frjálsum vilja. Fjallaklúbburinn fékk blessunarlega á úrslitastundu inní skála, og slapp því við yfirvofandi lungnabólgu og tilheyrandi. Á laugardagskvöldinu borðuðu síðan allir saman, lambakjöt með þremur mismunandi tegundum af mæjonesi, og það var öldungis fínt. F.Sigga gerði síðan góða hluti um kvöldið í hópsöng og almennum skemmtilegheitum. Fjallaklúbbnum Siggu, þ.e. Fanneyju, Línu, Erlu og Helgu, þakka ég fyrir frábæran túr. Leggjabrótur næst?!! :D
